Fréttablaðið - 03.12.2005, Qupperneq 10
10 3. desember 2005 LAUGARDAGUR
Bókabröns á aðventunni
Sögulegur Jóladiskur:
Gæsasúpa
Fennelgrafinn lax á toast melba
Hreindýrapate með bláberja-gljáa
Túnfisk tartar með wasaby
Parmaskinka með rucula
Verð 1.850 kr.
Taktu þér tíma í notalega aðventustund þar sem helstu rithöfundar þjóðarinnar
lesa fyrir þig úr bókmenntaperlum jólanna meðan þú kitlar bragðlaukana með
gómsætum réttum á Apótekinu.
Dagskráin hefst klukkan 13.00 í dag.
Steinunn Sigurðardóttir les upp úr bók sinni Sólskinshestur
og Einar Kárason les úr Jónsbók.
NOREGUR Jólasveinn í ráns-
hugleiðingum kom óvænt í heim-
sókn í gólfefnabúð í Þrándheimi í
Noregi nýlega. Eigandi verslunar-
innar hafði lagt sig í bakherbergi
verslunarinnar en var vaknaður
og sat á nærbuxunum við tölvuna
þegar sveinki birtist allt í einu.
Báðir urðu hræddir, versluna-
rmaðurinn og jólasveinninn, en
sveinki þó sýnu meira því hann
sneri sér við og hljóp út. Eigandinn
velti fyrir sér að elta þennan óboð-
na gest en að sögn Dagbladet hætti
hann við þar sem hann taldi eftirför
karlmanns á nærbuxunum á eftir
jólasveini myndi vekja óþarflega
mikla athygli. ■
Furðuástand í gólfefnabúð:
Jólasveinn í
þjófnaðarhug
DANMÖRK Anders Fogh Rasmus-
sen, forsætisráðherra Dan-
merkur, vill að fjögur prósent
ríkisstarfsmanna í landinu verði
af erlendu bergi brotin. Þetta
er tillaga ríkisstjórnarinnar um
breytingar á þriggja ára gamalli
áætlun um aukna atvinnuþátttöku
innflytjenda. Allir stærstu stjórn-
málaflokkar landsins stóðu að
átakinu sem nú er í endurskoðun.
Á landsþingi Venstre, flokks
Rasmussen, um síðustu helgi
áminnti hann fyrirtæki í landinu
fyrir að ráða ekki nógu marga
innflytjendur. En á fundi með
blaðamönnum í fyrradag viður-
kenndi hann að ríkið væri eftir-
bátur einkageirans í þessum
málum. Nú eru þrjú prósent
starfsmanna í einkageiranum af
erlendu bergi brotin, sem er helm-
ingi hærra hlutfall en hjá ríkinu.
Í Politiken í gær er haft eftir
ráðherranum að hann vilji að
innflytjendum bjóðist fleiri
tækifæri í atvinnulífinu, enda
segir hann að þær sögur gerist
sífellt háværari að útlendingar
njóti ekki sannmælis þegar þeir
sæki um störf í Danmörku. - ks
ANDERS FOGH RASMUSSEN Telur að útlend-
ingar njóti ekki sannmælis þegar þeir sækja
um störf.
Forsætisráðherra Dana vill fleiri störf fyrir útlendinga:
Fleiri innflytjendur
í opinber störf
Nýi diskurinn með SPARK
er kominn í verslanir!
Frábærir söngvarar
Allt sungið á íslensku
Diskurinn inniheldur meðal annars lögin:
Sweet Child of Mine - Guns N’Roses
We Are The Champions - Queen
It’s My Life - Bon Jovi
More Than Words - Extreme
Allt er á tjá og tundri - Sálin hans Jóns míns
Fjöllin hafa vakað - Bubbi Morthens
SPARK mun árita geisladiskinn í Kringlunni og Smáralind um helgina. – Dreifing: Sími 897 7922 aria@islandia.is
Gestasöngvari:
Jónsi í Svörtum fötum
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
AFMÆLI Í UNDIRBÚNINGI Lífvörður
Taílandskonungs bjó sig í gær undir
tvöfalt afmæli sem haldið verður hátíðlegt
á mánudaginn. Þá verður Bhumibol
Adulyadej konungur 78 ára en jafnframt
eru 59 ár liðin frá krýningu hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKIPULAGSMÁL Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands, og Gunnar
Sverrisson, forstjóri Íslenskra
aðalverktaka, undirrituðu í fyrra-
dag samning um hönnun og
byggingu Háskólatorgs.
Við það tækifæri afhenti Guðrún
Björnsdóttir, framkvæmdastjóri
Félagsstofnunar stúdenta, rúmar
þrettán milljónir króna sem er
fyrsta greiðsla samningsins.
Starfsemi Félagsstofnunar er
ein af þeim sem flytja munu í
Háskólatorgið.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu eru hugvísindamenn
afar ósáttir við hönnun torgsins.
Starfsemi hugvísindadeildar fer
að mestu fram í Árnagarði og
Nýja garði en torgið mun ekki
tengjast þeim byggingum heldur
koma sem múr á milli þeirra.
Að sögn Óskars Einarssonar,
skrifstofustjóra deildarinnar,
hefur háskólaráð samþykkt að láta
arkitekta endurskoða hönnunina
með gagnrýni hugvísindamanna í
huga.
Framkvæmdir við torgið eiga
svo að hefjast í apríl á næsta ári
og að það verði svo tilbúið fyrir 1.
desember 2007. - jse
Samningar um Háskólatorg undirritaðir:
Nýtt torg verður
tilbúið eftir ár
HÁSKÓLATORGIÐ Svona mun Háskólatorg líta út eftir tvö ár nema tillögur hugvísinda-
manna verði til þess að hönnun verði breytt.
RJÚPNAVEIÐI „Það er alveg ljóst að
siðbótin hefur borið árangur,“
segir Sigmar B. Hauksson,
formaður Skotveiðifélags
Íslands. Í gær voru kynntar
niðurstöður úr könnun á
rjúpnaveiði í haust.
„Í ljós kom að menn hafa veitt
um 15 til 16 rjúpur að meðaltali
og það er mjög í takt við það sem
við lögðum upp með. Þetta þýðir
það að veiddar hafa verið um 75
til 76 þúsund rjúpur og það er
mjög gott,“ segir Sigmar.
Reyndar má enn finna öfgar í
þessum efnum því sá sem veiddi
mest á einum degi skaut 52 rjúpur
þann daginn og sá sem veiddi
mest yfir veiðitímann skaut
alls 68 fugla. „Þetta eru algjör
einsdæmi, flestir eru með sex til
tólf rjúpur,“ segir formaðurinn.
Einnig kom fram í könnuninni
að hver rjúpnaveiðimaður fór
þrjá og hálfan dag að meðaltali
til veiða en sá sem fór oftast fór
ellefu daga. Einnig kom fram að
einungis 3 prósent veiðimanna
keyptu veiðileyfi á friðlöndum
og metur Sigmar það því sem svo
að þéttbýlisfólk hafi gott aðgengi
að veiðilöndum. Hann áætlar að
stofninn sé um 700 til 900 þúsund
rjúpur sem þýði það að hann sé í
lægð en í uppsveiflu.
- jse
Könnun Skotveiðifélags Íslands á rjúpnaveiði:
Veiðimenn gættu hófs
SIGMAR B. HAUKSSON OG SIGRÍÐUR ANNA
ÞÓRÐADÓTTIR Umhverfisráðherra opnar
hér nýjan vef Skotveiðifélags Íslands og
formaðurinn fylgist með. Hann kynnti svo
niðurstöður könnunar sem félagið gerði.