Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 82
3. desember 2005 LAUGARDAGUR62
Síðumúla 13 • Sími 568-2870
Dæmi um verð. Áður. Núna.
Loðin jakkapeysa 6.900.- 4.200.-
Marglit peysa 7.200.- 3.600.-
Peysa m/tölum 6.200.- 3.800.-
Bolur m/pallíettum 4.300.- 2.600.-
Bolur m/nælu 4.000.- 2.400.-
Blúndutoppur m/rós 4.000.- 2.400.-
Röndótt skyrta 4.900.- 3.000.-
Mokkajakki 10.800.- 6.500.-
Pelsjakki 7.900.- 4.800.-
Kápa m/pels 7.800.- 4.700.-
Kjóll m/perlum 7.300.- 4.400.-
Stutt flauelspils 5.100.- 3.100.-
Sítt pils m/reim 4.500.- 2.700.-
Svartar buxur 4.400.- 2.700.-
Kvartbuxur 5.400.- 2.900.-
Gallabuxur 6.400.- 3.900.-
Leðurstígvél 15.200.- 5.900.-
Svartir dömuskór 4.500.- 2.700.-
Silfur skór 5.400.- 2.900.-
ÚTSALA ÚTSALA
40 – 60 % AFSLÁTTUR
Opið í dag 10:00 – 16:00
Opið laugardag 10:00 – 16:00.
Hljómsveitin Ampop fagnaði á
mánudagskvöldið útgáfu fyrstu
smáskífu sinnar í Bretlandi með
vel heppnuðum tónleikum á
Islington Bar Academy í London.
Smáskífulagið My Delusions
hefur verið í daglegri spilun
á útvarpsstöðinni XFM sem,
eins og nafni sinn á Íslandi,
sinnir framsækinni tónlist.
Myndbandið við lagið er einnig
væntanlegt í spilun á MTV2
sjónvarpsstöðinni.
Ampop hefur vaxið töluvert
eftir útgáfu annarrar plötu sinnar
Made for Market, aðallega vegna
innkomu trommuleikarans Jóns
Geirs sem hefur áður spilað með
Heiðu og Heiðingjunum og Urmul.
Sveitin, sem var aðallega rafsveit
hér áður fyrr, hefur einnig opnað
fyrir flóðgáttir nýrra áhrifa. Á
útgáfutónleikunum mátti heyra
slettu af Radiohead, Sigur Rós,
The Doors og þó nokkuð Bítl en
í lok eins lagsins spann sveitin
lokatóna Happiness Is a Warm
Gun af Hvíta albúminu.
Sveitin er þegar byrjuð að
skapa sér hóp dyggra breskra
aðdáenda og margir gesta voru
augljóslega mjög spenntir fyrir
því að sjá og heyra sveitina spila.
Eitthvað var um það eftir að
þeim lauk að gestir bæðu um
eiginhandaráritanir.
Útgáfufyrirtækið Relentless
Records gefur út smáskífu Ampop
og eru viðræður í gangi um að gefa
út breiðskífuna My Delusions sem
nú þegar er fáanleg í Bretlandi í
gegnum Dennis-útgáfuna. ■
Ampop sýndi hvað í sér bjó
á útgáfutónleikum sínum
AMPOP Hljómsveitin Ampop hélt útgáfutónleika í Bretlandi á dögunum.
Söngkonan margfræga Christina
Aguilera hefur sagt að hún
muni líklega taka upp annað
nafn í kjölfar brúðkaups síns
og plötuútgefandans Jordans
Bratman. Hin 24 ára poppstjarna
giftist Bratman hinn 19. nóvember
síðastliðinn.
,,Ég verð líklega alltaf Christina
Aguilera fyrir aðdáendum mínum
og mun líklega halda því nafni
sem eins konar sviðsnafni. En
þrátt fyrir það mun ég að öllum
líkindum skipta um nafn og notast
við miðnafn mitt, sem er Maria,
og síðan eftirnafn hans. Þegar
Christina er spurð út í brúðkaup
sitt svarar hún að bragði að það
hafi verið töfrum líkast. ,,Ég hef
upplifað margt þar sem ég vinn í
skemmtanaheiminum og ég hélt
að þetta brúðkaup yrði ekkert
stórmál. Þar sem ég vinn við að
koma fram á sviði fyrir framan
fólk var ég alveg örugg með að
þetta yrði barnaleikur en annað
kom á daginn. Þegar kom að stóru
stundinni var ég eins stressuð og
nokkur manneskja getur orðið.
Það var bara svo yndislegt að vera
að giftast þeim manni sem ég hef
elskað og dáð. Þetta var augnablik
sem allar stúlkur dreymir um,“
sagði þessi geðþekka söngkona að
lokum.
Ætlar að
breyta nafninu
CHRISTINA AGUILERA Hefur í hyggju að
breyta nafninu sínu.