Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 82

Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 82
 3. desember 2005 LAUGARDAGUR62 Síðumúla 13 • Sími 568-2870 Dæmi um verð. Áður. Núna. Loðin jakkapeysa 6.900.- 4.200.- Marglit peysa 7.200.- 3.600.- Peysa m/tölum 6.200.- 3.800.- Bolur m/pallíettum 4.300.- 2.600.- Bolur m/nælu 4.000.- 2.400.- Blúndutoppur m/rós 4.000.- 2.400.- Röndótt skyrta 4.900.- 3.000.- Mokkajakki 10.800.- 6.500.- Pelsjakki 7.900.- 4.800.- Kápa m/pels 7.800.- 4.700.- Kjóll m/perlum 7.300.- 4.400.- Stutt flauelspils 5.100.- 3.100.- Sítt pils m/reim 4.500.- 2.700.- Svartar buxur 4.400.- 2.700.- Kvartbuxur 5.400.- 2.900.- Gallabuxur 6.400.- 3.900.- Leðurstígvél 15.200.- 5.900.- Svartir dömuskór 4.500.- 2.700.- Silfur skór 5.400.- 2.900.- ÚTSALA ÚTSALA 40 – 60 % AFSLÁTTUR Opið í dag 10:00 – 16:00 Opið laugardag 10:00 – 16:00. Hljómsveitin Ampop fagnaði á mánudagskvöldið útgáfu fyrstu smáskífu sinnar í Bretlandi með vel heppnuðum tónleikum á Islington Bar Academy í London. Smáskífulagið My Delusions hefur verið í daglegri spilun á útvarpsstöðinni XFM sem, eins og nafni sinn á Íslandi, sinnir framsækinni tónlist. Myndbandið við lagið er einnig væntanlegt í spilun á MTV2 sjónvarpsstöðinni. Ampop hefur vaxið töluvert eftir útgáfu annarrar plötu sinnar Made for Market, aðallega vegna innkomu trommuleikarans Jóns Geirs sem hefur áður spilað með Heiðu og Heiðingjunum og Urmul. Sveitin, sem var aðallega rafsveit hér áður fyrr, hefur einnig opnað fyrir flóðgáttir nýrra áhrifa. Á útgáfutónleikunum mátti heyra slettu af Radiohead, Sigur Rós, The Doors og þó nokkuð Bítl en í lok eins lagsins spann sveitin lokatóna Happiness Is a Warm Gun af Hvíta albúminu. Sveitin er þegar byrjuð að skapa sér hóp dyggra breskra aðdáenda og margir gesta voru augljóslega mjög spenntir fyrir því að sjá og heyra sveitina spila. Eitthvað var um það eftir að þeim lauk að gestir bæðu um eiginhandaráritanir. Útgáfufyrirtækið Relentless Records gefur út smáskífu Ampop og eru viðræður í gangi um að gefa út breiðskífuna My Delusions sem nú þegar er fáanleg í Bretlandi í gegnum Dennis-útgáfuna. ■ Ampop sýndi hvað í sér bjó á útgáfutónleikum sínum AMPOP Hljómsveitin Ampop hélt útgáfutónleika í Bretlandi á dögunum. Söngkonan margfræga Christina Aguilera hefur sagt að hún muni líklega taka upp annað nafn í kjölfar brúðkaups síns og plötuútgefandans Jordans Bratman. Hin 24 ára poppstjarna giftist Bratman hinn 19. nóvember síðastliðinn. ,,Ég verð líklega alltaf Christina Aguilera fyrir aðdáendum mínum og mun líklega halda því nafni sem eins konar sviðsnafni. En þrátt fyrir það mun ég að öllum líkindum skipta um nafn og notast við miðnafn mitt, sem er Maria, og síðan eftirnafn hans. Þegar Christina er spurð út í brúðkaup sitt svarar hún að bragði að það hafi verið töfrum líkast. ,,Ég hef upplifað margt þar sem ég vinn í skemmtanaheiminum og ég hélt að þetta brúðkaup yrði ekkert stórmál. Þar sem ég vinn við að koma fram á sviði fyrir framan fólk var ég alveg örugg með að þetta yrði barnaleikur en annað kom á daginn. Þegar kom að stóru stundinni var ég eins stressuð og nokkur manneskja getur orðið. Það var bara svo yndislegt að vera að giftast þeim manni sem ég hef elskað og dáð. Þetta var augnablik sem allar stúlkur dreymir um,“ sagði þessi geðþekka söngkona að lokum. Ætlar að breyta nafninu CHRISTINA AGUILERA Hefur í hyggju að breyta nafninu sínu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.