Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 42
3. desember 2005 LAUGARDAGUR4
Rafmagns og
dísellyftarar
• Lágmúli 9 / 108 Reykjavík
• Sími: 533 2845 / GSM: 896 0515
• www.sturlaugur.is
FRÁBÆRT
VERÐ
Höfundur verðlauna–
myndarinnar Hálendi
Vestfjarða vill að fleiri taki
myndavélar með í ferðalög.
Fyrir stuttu voru tilkynnt úrslit í
myndbandakeppni Ferðaklúbbsins
4x4. Þetta árið var það mynd
Bjarna Þórs Hjaltasonar, Hálendi
Vestfjarða, sem fór með sigur
af hólmi. Í umsögn dómnefndar
segir að í myndinni fari saman
mjög góð myndataka og
skemmtileg sjónarhorn. Þá falli
tónlistin sérlega vel að myndinni
og klippingar séu vel heppnaðar.
Myndin var tekin í árlegri
jeppaferð um hálendi Vestfjarða.
„Það er um áratugur síðan
þessi hópur fór fyrst í þessa
ferð. Undanfarin tvö ár höfum
við gert myndir um ferðina
fyrir þessa keppni. Í fyrra varð
myndin í þriðja sæti en núna í
því fyrsta,“ segir Bjarni. Hann
segir margt ferðafólk vera með
myndatökuvélar á lofti í svona
ferðum en fáir gefi sér tíma til að
eftirvinna það efni sem til verði.
„Fyrst vorum við aðallega að
mynda dekkin við mismunandi
aðstæður til að læra á virkni
bílanna í snjó. Svo þróaðist þetta
út í að mynda samtöl, uppákomur,
félagslífið í ferðum og fræðsluefni
um svæðið. Myndin er í raun
heimildarmynd um þetta svæði
og sýnir vel hvað Vestfirðir
eru frábærir til ferðamennsku.
Einkenni fjallanna þar eru hvað þau
eru slétt að ofan. Það er engu líkara
en tröllin hafi farið með slípirokk
og skurðarskífu á toppana,“ segir
Bjarni og hlær við.
Ferðahópur Bjarna er í
vesturlandsdeild Ferðaklúbbsins
4x4. Þar hafa menn að leiðarljósi
að skilja ekki eftir merki í
náttúrunni og keyra bara í snjó.
„Þetta finnur maður mjög sterkt
hjá ferðafólki í dag, ekki bara í
þessum hópi,“ segir Bjarni. „Eitt af
því skemmtilega við þessa árlegu
ferð er að einn ferðafélaginn,
Hjalti Samúelsson, er fæddur og
uppalinn við Ísafjarðardjúp og er
manna fróðastur um þetta svæði.
Hann kemur mikið við sögu í
myndbandinu. Við næstum hvert
stopp fer hann með einhverja
heimild sem hann er með í
kollinum,“ segir Bjarni.
Bjarni hefur verið viðloðandi
jeppamennsku síðan hann var
barn þó að aðeins séu þrjú ár síðan
hann eignaðist jeppa. „Ég hef
samt alltaf átt fjórhjóladrifsbíl
og hef farið miklu meira í
huganum en veruleikanum.“ Hvað
myndbandagerð varðar segist
Bjarni ekki hafa neina eiginlega
reynslu. „Þetta er bara fikt og fát
hjá mér. Ég hef áhuga á þessu og
hef fengið ábendingar en fundið
margt út sjálfur líka. Maður fer
að horfa á efni með öðrum hætti
út frá þeirri reynslu og ég er oft
að klippa í huganum þegar ég er
að taka,“ segir Bjarni.
Það sem hófst sem upplýsinga–
efni fyrir ferðafélagana þróaðist
út í skemmtiefni fyrir þá og aðra.
„Svona myndir gefa ferðunum
margfalt gildi. Þær halda lífi í
atburðum og uppákomum sem
annars væru gleymdar stuttu
síðar. Ég mæli með því að fólk taki
myndavélarnar með í ferðalög.“
Myndin Hálendi Vestfjarða
er þrjátíu mínútur að lengd og
sýningarrétturinn tilheyrir Ferða–
klúbbnum 4x4. „Það er hægt að sjá
myndina eftir auglýstri dagskrá.
Næsta sýning er 12. desember á
jólafundi vesturlandsdeildarinnar
sem haldinn er í Jónsbúð á
Akranesi og hefst klukkan átta,“
segir Bjarni að lokum.
einareli@frettabladid.is
Gefur ferðunum margfalt
gildi að mynda þær
Höfundur myndarinnar, Bjarni Þór Hjaltason, við klippitölvuna.
Úr myndinni „Hálendi Vestfjarða“ sem bar sigur úr býtum í myndbandakeppni Ferðaklúbbsins 4x4.
Hefðu drúídarnir notað bíla
frekar en steina hefðu þeir
verið til fyrir 4000 árum?
Áttu nokkra gamla og lúna
kagga úti á túni? Af hverju ekki
að breyta þeim í eftirlíkingu
af Þjóðveldisbænum eða
Snorralaug?
Allir hafa heyrt um Stonehenge
í Englandi, steinahringur sem var
reistur fyrir um 4000 árum, og
er í dag vinsæll hjá nýaldarfólki
um sumarsólstöður. Kaninn er
þekktur fyrir að gera hlutina
aðeins öðruvísi og í Nebraska reisti
Jim Reinders, árið 1987, Carhenge.
Gamlir bílar voru sprautaðir gráir,
reistir upp á endann og grafnir
niður til að mynda eftirlíkingu
af Stonehenge. Það ótrúlegasta
við þetta allt saman er að þetta
er orðinn ferðamannastaður, með
minjagripum og öllu saman.
(efni og myndir fengið af fornbill.is)
Hvor er hvað? Á annarri myndinni er steinhringurinn Stonehenge í Englandi, á hinni er
bandaríska útgáfan sem gekk áður fyrir bensíni.
Bílhræ laða að ferðamenn
Jólapakkar
Rafmagnshlaupabretti
15km hámarkshraði
Hitaáklæði í bílinn
12V
4.900,-
12.995,-
AG Mótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is
´