Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 20
 3. desember 2005 LAUGARDAGUR20 „Eitt kvöldið kom til heitra póliltískra orðaskipta milli Thors Vilhjálmssonar og góðborgara er sátu við borð Richards. „Hann spurði mig,“ sagði Thor, þegar hann rifjaði þetta upp, „hvort ég héldi ekki að það kæmi að því einhvern tímann að ég myndi sjá eftir þeim bókum sem ég hafði verið að setja saman“. Það fauk í Thor. Hann segir að sig hafi fyrst sett hljóðan, en „einhver ári hvíslaði að mér því sem Hamlet segir við Polonius: You are a fishmonger sir.““ Richard var einn af Thorsurunum edda edda.is Bókin um Thorsarana eftir Guðmund Magnússon komin í verzlanir. tilkynning ■ HELGIN 26. - 27. NÓV Hengirúm og lágtæknisjúkrahús Ég eyddi góðum hluta helgarinnar í hengirúmi sem sonur minn færði mér þegar hann kom heim frá Brasilíu í sumar og var að reyna að hugsa og koma skipulagi á þau verk sem ég ætla að vinna. Það er mjög gott að hugsa í hengirúmi. Eini gallinn er sá að manni hættir til að sofna. Ég geng með tvær bækur í maganum. Í hinni huglægu ómskoðun í hengirúminu kom í ljós að þær snúa báðar öfugt svo að þetta verður erfið fæðing. Verst að það skuli ekki vera hægt að taka bækur með keisaraskurði. Kannski það verði hægt þegar búið er að byggja hátæknisjúkrahús í húsaþvögunni innan um lágtæknisjúkrahúsin þarna á torfunni við Hringbrautina sálugu. ■ MÁNUDAGUR 28. NÓV. Faðirvorið og móðirvorið Fór á bænastund í H a l l g r í m s k i r k j u . Vinkona okkar Sól- veigar er að gangast undir erfiða aðgerð við erfiðum sjúkdómi á sjúkrahúsi erlendis. Þarna var heilmikill m a n n f j ö l d i samankominn . Stór hópur fólks sem á sameiginlega vinkonu og vildi sameinast um að senda henni góðar hugsanir og fyrirbænir. Ég er ekki sérlega flinkur bænamaður. Hér fyrr á árum leit ég á Guð sem nokkurs konar mjög óáreiðanlegt pöntunarfélag og sendi honum stundum óskalista og fór fram á að hann gengi í ýmiss konar útréttingar fyrir mig eða útvegaði mér hitt og þetta. Mér fannst lítið koma út úr því og þótti þjónustan í Himnaríki litlu betri en hjá öðrum ópersónulegum stórfyrirtækjum. Svo breyttist þetta og ég hætti þessari heimtufrekju. Góður maður kenndi mér prýðilega bæn sem ég hef notað síðan með mjög góðum árangri og almennum. Hún er svona: Verði þinn vilji – ekki minn. Fyrir utan þessa bæn kann ég vitanlega faðirvorið eða móðirvorið sem er mjög kraftmikil bæn. Það er séra Auður Eir sem leiðir bænastundina. Hún notar orðið „hún“ um Guð. Það finnst mér fínt. Almættið sem er langt ofar mínum skilningi hlýtur að vera orðið hundleitt á að láta í sífellu karlkenna sig. Ég reyni eftir megni að taka þátt í bæninni. Ég hef ekki hugmynd um hvernig bænir virka í raun og veru, en ég set það ekki fyrir mig. Ég skil ekki heldur hvernig alnetið virkar, það er rétt svo að ég skilji í megindráttum hvernig bensínmótor virkar. Ég er meira að segja ekki klár á því hvað rafmagn er þótt ég viti af reynslu að það er mjög kraftmikið og óþægilegt að fá það í sig. Mér finnst það eiginlega kraftaverk að sjá ljós kvikna innan í ljósaperu. Það er býsna margt í veröldinni sem ég skil ekki en svínvirkar engu að síður. Ég vona að bænin virki. ■ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓV Meiðyrði í DV og aldraðar vændiskonur Ég sé að þeir/þær á DV eru hörundsárir. Þeir eru að emja í dag út af því að ég skrifaði í bakþanka í Fréttablaðinu í gær að fjölmiðlar væru fullir af fréttum af fólki sem kemur mér ekki nokkurn skapaðan hlut við og ég hef engan áhuga á. Þeir virðast hafa tekið þetta til sín sem var alls ekki meiningin því að ég var að tala um frægt fólk sem lifir í heimi sem er mér jafnfjarlægur og hann væri á annarri plánetu. En þetta finnst þeim greinilega sletti- rekuskapur. Þeir kalla mig álitsgjafa. Það flokkast örugglega undir meiðyrði. Ég nenni samt ekki í mál við þá. Ég vissi ekki að að svona viðkvæmni væri undir hörðum skrápnum á DV og mun reyna að forðast að særa þá/þær í framtíðinni því að þeir á DV vita á byg g i le g a jafnvel og ég að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Enda eru margar áhugaverðar fréttir í fjölmiðlum. Þessi þótti mér einna merkilegust í dag: „Vændiskonur á landsbyggðinni eru jafnan mun eldri en starfssystur þeirra í borgum – að minnsta kosti í Ástralíu. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem ástralskur háskólaprófessor gerði. Elsta vændiskonan sem hann ræddi við var tæplega sextug en sumar þeirra sem talað var við í rannsókninni sögðust hafa unnið með portkonum sem komnar voru á sjötugsaldur, og ein var meira að segja enn starfandi á áttræðisaldri. En það er ekki eingöngu munur á söluaðilunum eftir því hvort um sé að ræða þéttbýli eða dreifbýli því niðurstöðurnar gefa til kynna að viðskiptavinirnir sem kaupa sér þjónustuna á landsbyggðinni eru mun kurteisari en þeir sem versla við vændiskonur í borgum.“ Þetta er eflaust bæði satt og rétt. ■MIÐVIKUDAGUR 30. NÓV Afmælisdagur stjórnleysingjans Eins og venjulega þann 30. nóvember átti ég afmæli í dag. Þetta var fínn dagur. Sólveig dreif mig með sér í sund um morguninn og bauð mér svo í hádegismat á uppáhaldsveitingastaðinn minn, Jómfrúna. Sérrí- marengstertan sem mamma eigandans þar bakar er lostæti sem engin orð fá lýst. Guðafæða. Annars er ég hófsmaður á tertur, en þessi er engu lík. Yfirhöfuð er ég hlynntur mánaðamótum. Það er tilbreyting í þeim og það væri leiðigjarnt ef allt árið væri bara einn óralangur mánuður. En gallinn við m á n a ð a m ó t eru allir þessir r e i k n i n g a r sem sækja að manni úr öllum áttum. Skæðadrífan er óvenjuþykk núna. Það er ótrúlegt hversu mörg fyrirtæki hafa náð að tengja sig við mig til að tappa af mér peningum. Stundum langar mig til að rífa allar þessar leiðslur úr sambandi. Neita að borga. Byggja mér fjallakofa í óbyggðum. Lifa á fjallagrösum og silungi. Afsala mér kosningarétti og neita að borga skatta. Hætta að viðurkenna peninga sem gjaldmiðil og nota gluggapóst eingöngu í uppkveikju. Ég er nefnilega stjórnleysingi innst inni. En ég læt ekki á því bera. Ég vinn og vinn og borga og borga og læt vel að stjórn svo að þjóðfélagið gruni ekki að ég sé í rauninni stjórnleysingi. Kannski ég sé ekki einn um þetta. Kannski maður ætti að skella smáauglýsingu í blöðin og auglýsa stjórnleysingamót í Ódáðahrauni næsta sumar og stofna stjórnleysingjafélag. En sennilega þýðir það ekki neitt. Enginn raunverulegur stjórnleysingi mundi gefa kost á sér í stjórn í stjórnleysingjafélaginu. Við erum og verðum höfuðlaus her. ■ FIMMTUDAGUR 1. DES. Áfram strákar! Fór á skemmtilega ráðstefnu í morgun. Fyrsta karlaráðstefnan um jafnréttismál, bara ein kona á svæðinu, frú Vigdís. Flestir voru mjög alvörugefnir, það er kannski skynsamlegt, en mér finnst samt gaman að karlmenn skuli loksins vera að ná því að jafnrétti kynjanna er báðum aðilum fyrir bestu. Með öðrum orðum að þeir græði á jafnréttinu. Allt sem karldýrin telja sig geta grætt á er mjög vinsælt um þessar mundir. Ferð í Borgarnes með Súsönnu Svavarsdóttur, Ragnari Arnalds og Ólafi Gunnarssyni að lesa upp. Bók Ragnars um Jörund hundadagakonung er greinilega hörkuspennandi. Skelli henni á jólagjafalistann. ■ FÖSTUDAGUR 2. DES. Lifað í núinu Okkur tókst að borga reikningana um mánaðamótin. Þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af þeim lengur. N ú g e t u r maður snúið óskiptri athyglinni að því að hafa áhyggjur af desember-reikningunum. Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að næstu mánaðamót verði strembin. Reyni samt að lifa í núinu og láta hverjum degi nægja sína þjáning. Mikið var lífið einfalt áður en skrattinn fann upp kreditkortin. Faðirvor, móðirvor og jafnréttisbarátta karldýra Í Dagbók Þráins Bertelssonar er að þessu sinni meðal annars fjallað um hengirúm, hátækni- og lágtæknisjúkrahús og fæðingu hugverka með keisaraskurði. Sagt er frá jafnréttisráðstefnu karlmanna, bænastund, afmælisdegi stjórnleysingja, DV og kurteisu viðmóti við aldraðar vændiskonur á landsbyggðinni. Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.