Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 38
3. desember 2005 LAUGARDAGUR38
Hæ Jón,
Af hverju fá sumir krakkar meira en
aðrir í skóinn þótt þeir séu ekkert
þægari? Finnst jólasveinunum ekki
jafn vænt um alla?
Mamma hjálpaði mér og sagði
mér að spyrja þig.
Kristján Pétur, 6 ára.
Sæll, Kristján.
Það er ekki hægt að treysta
jólasveinunum. Þeir eru svo vitlausir
og svo eru þeir líka svo margir og
ruglast í ríminu. Haltu samt áfram að
vera þægur.
Kveðja, Jón
Sæll, Jón Gnarr
Er ekki vön að skrifa svona bréf og hef
aldrei haft neitt sérstaklega mikið álit
á þér, satt best að segja (sorrý! :) en
ég sá þig hjá Sirrý og þar var verið að
tala um þessi samtök fyrir fólk sem
skuldar. Ég er svo kvíðin fyrir jólunum.
Fjármálin mín eru í klessu. Ég er ekki
að fá neitt útborgað og mig langar
svo að taka lán til að redda þeim. En
ég skulda ógeðslega mikið og var að
fara í gegnum árangurslaust fjárnám
í sumar. Ég er orðin andvaka yfir
þessu á nóttunni. Er hægt að gera
mann gjaldþrota? Getur maður farið í
skuldafangelsi? Hvernig kemst maður
í þessi samtök? Getur maður bara
mætt?
Fröken Kvíðahnútur
Kæra fröken Kvíðahnútur.
Það er dýrt að vera fátækur. Þú ert
örugglega svo spennt og stressuð
að þú hugsar ekki skýrt. Þú þarft
hjálp við að endurskoða fjárhaginn
hjá þér. Þessi samtök heita Debtors
Anonymous og eru með fundi að
Seljavegi 2, á miðvikudögum kl.
20.00 - 21.00 og á sunnudögum
kl. 11.00 - 12.00. Ég held að þú
getir bara mætt. Þú getur tékkað á
heimasíðunni þeirra: http://www.
daiceland.org. En hvað sem þú gerir,
ekki taka fleiri lán!
Kveðja, Jón
Kæri Jón,
Mér hefur lengið litist rosalega vel á
eina stelpuna í bókhaldinu í vinnunni.
Um miðjan desember er fyrirtækið
með jólahlaðborð. Er það rétti
tímapunkturinn til að láta hana vita
af áhuga mínum. Ég held ég þori því
ekki fyrr en eftir tvo eða þrjá bjóra.
SKJ
Kæri SKJ.
Jólahlaðborðið er tilvalið tækifæri
til að spjalla við hana. Byrjaðu á
því að brjóta ísinn með því að slá
henni gullhamra og hrósaðu henni
fyrir útlitið eða klæðnað. Konur eru
hrifnar af slíku. Þær punta sig fyrir
mannamót og gleðjast þegar einhver
tekur eftir því. Það er allt í lagi að fá
sér einn eða tvo bjóra en passaðu þig
á því að drekka ekki of mikið.
Kveðja, Jón
Kæri Jón
Ég er fimmtán ára gamall strákur
og finn fyrir miklum kvíða af því að
mér gengur ekki sem best í skóla um
þessar mundir. Gekk þér alltaf vel í
skóla? Ef ekki til, fannstu þú líka fyrir
kvíða og spennu?
Beggi.
Kæri Beggi.
Það komu tímabil hjá mér þar sem
mér gekk mjög illa í skólanum. Það
er gott ráð að tala við námsráðgjafa
eða skólasálfræðing og fá hjálp
við að komast að því hvað er að.
Kannski er ekki allt í lagi heima? Það
er ekki auðvelt að læra þegar maður
er kvíðinn og leiður. Sumum finnst
líka ágætt að tala við prest. Gangi
þér vel.
Kveðja, Jón
Kæri Jón
Ég er kona í kringum þrítugt og hef
komið mér vel fyrir í lífinu, er í vel
launaðri vinnu og á góða íbúð og
bíl. Stundum finn ég fyrir miklum
einmanaleika en er þó ekki að leita
eftir maka. Hvað get ég gert?
ALJ
Kæra ALJ.
Ég held að einmanaleiki stafi sjaldnast
af því að mann vanti félagsskap,
heldur skorti á andlegri næringu.
Alltof margir halda að annað fólk
geti gert það hamingjusamt. Ertu
ekki bara búin að vera að vinna of
mikið? Þú ættir kannski að fara að
gefa sjálfri þér meiri tíma og athygli.
Þú gætir byrjað á að fara á Alfa
námskeið. Svo er líka gott ráð að
reyna að gera eitthvað fyrir aðra. Er
ekki einhver í kringum þig sem vantar
hjálp? Mundu að maðurinn lifir ekki á
brauði einu saman.
Kveðja, JónSendið Jóni spurningar.
Netfangið er:
jongnarr@frettabladid.is
KÆRI JÓN Jón Gnarr ræður lesendum Fréttablaðsins heilt á aðventunni >
,,Minn mesti áhrifavaldur var móðir
mín, Mjöll Sigurðardóttir, sem
reyndar er látin,“ segir Sigurður
Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur
á Stöð 2, betur þekktur sem
Siggi Stormur. ,,Hún lagði alltaf
gríðarlega mikla áherslu á að ég
lærði eitthvað sem ég hefði gaman
af á meðan pabbi gamli vildi að ég
lærði eitthvað praktískt, svo sem
lögfræði eða eitthvað svoleiðis. Ef
hún hefði ekki veitt mér þennan
mikla stuðning hefði ég líklega
bara endað í einhverjum svoleiðis
störfum sem ég hefði örugglega
ekki kunnað við eða enst í.“
Sigurður segir einnig að
Þór Vigfússon, skólameistari
Fjölbrautaskóla Suðurlands, sé
mikill áhrifavaldur í lífi sínu.
,,Hann skólaði mig til kennslu
í raungreinum og stærðfræði
þegar ég var nýskriðinn úr
háskóla, réttindalaus og allslaus.
Annan eins sannfæringarkraft
og dugnað í starfi hef ég aldrei
á ævi minni séð. Ég datt því inn
í kennslu algjörlega fyrir hans
sakir og á hann heiður skilið fyrir
það því af þeirri reynslu hefði ég
ekki viljað missa.“
Spurður um bækur sem
hafa haft áhrif á hann segir
hann að þær séu
ekki margar.
, ,Va r ð a n d i
bókmennir
þá hefur
það nú
verið þannig
að ég les
a f s k a p l e g a
mikið bækur
s e m
tengdar eru
vísindum á einn eða annan hátt,
og þær bækur eru ekki beinlínis
miklar áhrifavaldabækur. Ef
ég á að nefna bók sem fékk mig
til að hugsa þá verð ég að nefna
bók Garðars Sverrissonar ,,Býr
Íslendingur hér?“ sem fjallar um
endurminningar Leifs Müller.
Hann lenti í fangabúðum nasista
í seinni heimstyrjöldinni og bókin
fjallar að mestu leyti um það. Það
eru nokkur ár síðan ég las hana
en ég man hvernig mér leið eftir
lesturinn. Þessi bók upplýsti mig
um hvað maðurinn getur verið
grimm og skelfileg skepna. Ég
man hvað ég hugsaði sterkt að
þetta mætti aldrei gerast aftur.“ ■
ÁHRIFAVALDURINN SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON
Vildi að ég lærði
eitthvað skemmtilegt
ÞÓR VIGFÚSSON SKÓLAMEISTARI
SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON