Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 31
Ljósin tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli í dag kl. 15:30
Allt frá árinu 1951 hafa frændur okkar í Ósló fært Reykvíkingum jólatré sem sett hefur
verið upp á Austurvelli. Á hverju ári hafa borgarbúar fagnað þessari gjöf með því að
bregða undir sig betri fætinum og taka þátt í þeim hátíðarhöldum sem haldin eru
í tilefni af ljósadýrð trésins góða.
15:30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög á Austurvelli.
16:00 Dómkórinn syngur nokkur lög undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar.
Guttorm Vik, sendiherra Noregs, afhendir Reykvíkingum jólatréð fyrir hönd
Óslóarbúa og ljósin kveikir hin 7 ára norsk-íslenska Kristín Magnúsdóttir.
Persónurnar Reyndar og Raunar úr aðventuævintýri Þjóðleikhússins,
Leitin að jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson, líta við á Austurvelli og
syngja jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum við tónlist Árna Egilssonar.
Söng- og leikatriði úr Jólaævintýri Hugleiks byggt á jólasögu Dickens um
Ebenezer Skrögg. Klassísk saga sem öll fjölskyldan getur notið saman,
og er kjörin til að koma fólki í jólaskap.
Stekkjastaur, Stúfur og Þvörusleikir ætla ekki að láta sig vanta,
enda hafa þeir sérstaklega gaman af jólaljósum og ekkert finnst
þeim skemmtilegra en að syngja með kátum krökkum.
Hver veit nema fleiri úr þeirri skemmtilegu og skrýtnu
fjölskyldu séu komnir í bæinn!
Dagskráin verður jafnframt túlkuð á táknmáli
Kynnir er Gerður G. Bjarklind
í hjarta borgarinnar
Ókeypis aðangur í bílastæðahús í Ráðhúskjallaranum frá kl. 13:00 - 19:00