Fréttablaðið - 03.12.2005, Side 32
3. desember 2005 LAUGARDAGUR32
Desember er tími ofgnóttar í mat, drykk, samveru og kærleika. Hvarvetna
má skjóta sér inn úr kuldanum
og setjast að veisluborði í
veitingahúsum landsins. Hér
gefur að líta sýnishorn af aðeins
fáeinum valkostum þegar kemur
að jólahlaðborðum þetta árið.
PERLAN
Hvað er í boði: Stærsta og mesta
úrval hefðbundinna, íslenskra
jólarétta; yfir áttatíu réttir á
boðstólum. Sérstaða borðsins eru
dádýr og hreindýr meðal aðalrétta.
Verð: 4.950 krónur á mánudögum og
þriðjudögum, en 5.950 aðra daga.
Frítt fyrir börn undir sex ára aldri,
en 3.500 krónur fyrir sex til tólf
ára.
Stemning: Líflegir starfsmanna-
hópar um helgar. Fjölskyldur og
einstaklingar að gera sér dagamun
á virkum dögum. Perlan snýst einn
hring á tveimur tímum.
Í boði fyrir börnin: Ekkert barna-
horn en haft ofan af fyrir
börnum með litabókum og litum.
Sunnudagar eru einkar vinsælir
hjá barnafjölskyldum.
Skemmtiatriði: Lifandi dinner-
tónlist á föstudags- og laugardags-
kvöldum.
SKÍÐASKÁLINN Í HVERADÖLUM
Hvað er í boði: Hefðbundið íslenskt
jólahlaðborð frá fimmtudegi til
sunnudags.
Verð: Fimmtudagar krónur 4.990,
föstudagar og laugardagar krónur
6.400 og sunnudagar krónur 4.500.
Frítt fyrir börn til tólf ára.
Stemning: Hátíðleg stemning sem
felst ekki síst í umhverfinu og
staðnum sjálfum enda jólalegur
skíðaskáli í fögrum fjallasal.
Starfsmannahópar og vina-
klúbbar í meirihluta um helgar,
fjölskyldur á sunnudögum og
minni hópar og einstaklingar á
fimmtudagskvöldum.
Skemmtiatriði: Raggi Bjarna og
Þorgeir Ástvaldsson syngja jólalög
á fimmtudagskvöldum; hljómsveitin
Sælusveitin leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld,
en áður býður Ólafur Benedikt
Ólafsson gesti velkomna með
harmóníkuleik og söng yfir
borðum. Rútuferðir fram og til
baka innifaldar í verði á föstudags-
og laugardagskvöldum.
ARGENTÍNA STEIKHÚS
Hvað er í boði: Amerísk kalkúna-
veisla þar sem heill kalkúnn er
aðalaðdráttaraflið, auk dýrindis
kalkúnarétta, lambafillets, en hvorki
hangikjöt né hamborgarhryggur
á borðum. Fyrir fólk sem leitar
í jólaveislu með amerísku sniði,
enda gömul hefð á Argentínu þótt
breytilegir réttir séu frá ári til árs.
Verð: Krónur 4.900 sunnudaga
til miðvikudags. Krónur 5.700
fimmtudaga til laugardags.
Ókeypis fyrir börn upp að sex ára
aldri. Krónur 1.800 fyrir börn frá
sex til tólf ára.
Stemning: Lífleg um helgar þegar
starfsmenn minni fyrirtækja gera
sér glaðan dag á rótgrónu, litlu og
yndislegu veitingahúsi. Fjölskyldur
í meirihluta á fimmtudögum og
sunnudögum.
Í boði fyrir börnin: Ekkert barnahorn,
en börn innilega velkomin.
Skemmtiatriði: Engin.
HÓTEL VALHÖLL Á ÞINGVÖLLUM
Hvað er í boði: Íslenskt og þjóðlegt
og vel útilátið jólahlaðborð
frá fimmtudegi til sunnudags.
Hádegishlaðborð á sunnudögum.
Verð: Krónur 4.900 í hádeginu á
sunnudögum, annars 6.200 krónur.
Krónur 1.850 fyrir börn frá
fjögurra til tólf ára.
Stemning: Róleg, rómantísk og
afslöppuð. Þjóðlegur hátíðleiki
í bland við fagurt og nýuppgert
hótel sem skín af glæsileika. Kerti
og luktir lýsa upp umhverfið og
áhersla á þjóðgarðinn, hátíðleik og
fagra upplifun. Í boði er sérstakur
gistipakki fyrir tvo, þar sem
jólahlaðborð og morgunmatur er
innifalinn.
Í boði fyrir börnin: Notalegt
sjónvarpshorn með barnaefni,
litabækur og fögur náttúra með
snjókasti og vetrarfjöri utandyra.
Skemmtiatriði: Védís Hervör Árna-
dóttir syngur jólalög við undirleik
Valdimars Kristjánssonar um
helgar.
VOX
Hvað er í boði: Hægt er að mæta í
hlaðborð með jólaívafi í hádeginu.
Þar eru hinir hefðbundnu smáréttir
í boði auk svínakjötsins vinsæla.
Þar að auki gefst gestum færi
á að smakka fleiri eftirrétti en
gengur og gerist á venjulegum
hlaðborðum. Hins vegar er hægt
að fá sér af svokölluðum jólaseðli
þar sem herlegheitin hefjast með
úrvali smárétta, öli og snafsi. Í
forrétt er boðið upp á steiktan
humar í kardimommukrydduðu
gulrótarkremi. Í aðalrétt er hægt að
velja á milli unggríss og villiandar
en í eftirrétt er rjómarönd og
jólaglögg. Þá má ekki gleyma jóla-
brunchi í hádeginu á sunnudögum
þar sem gestir geta mætt með
börnin sín, gefið þeim að borða og
komið þeim síðan í umsjá tveggja
leiklistarnema ef þeir vilja fá ró og
næði.
Verð: Hlaðborðið kostar 3.250
krónur en jólaseðillinn er á 6.500
krónur en hægt er að bæta 3.500
krónum við og fá sérvalin vín með.
Stemning: Vox býður hópa velkomna
til sín og getur útbúið fasta matseðla
sem bornir eru fram í fyrirfram
pöntuðum sal. Veitingastaðurinn
þykir nokkuð hlýlegur og hentar
vel fyrir pör sem vilja gera sér
dagamun.
Í boði fyrir börnin: Enginn sérstakur
matseðill er í boði fyrir börnin en
hins vegar er hægt að einfalda allt
á matseðlinum þegar þau eru með í
för. Leiklistarnemarnir hafa vakið
mikla kátínu meðal barnanna á
sunnudögum.
Skemmtun: Það er lifandi tónlist
á barnum, fimmtudaga til sunnu-
daga.
Á NÆSTU GRÖSUM
Hvað er í boði: Árleg friðarmáltíð,
ígildi jólahlaðborðs, helgina 9.
til 11. desember. Hnetusteik er í
aðalhlutverki með úrvali meðlætis.
Tíu ára gömul hefð þar sem
gestakokkur er Spessi ljósmyndari.
Verð: Krónur 2.200
Stemning: Gríðarleg stemning og
hátíðleiki.
Í boði fyrir börnin: Barnapitsur.
Skemmtun: Blús og djass fyrir
matargesti, auk ljóðaupplesturs
Sigríðar Jónsdóttur á laugardags-
kvöldinu.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Hvað er í boði: Ekta danskt
jólahlaðborð Idu Davidsen, sem er
frægasta smurbrauðsdama Dana-
veldis, og Marentzu Poulsen. Árviss
hefð í þrettán ár, sem byrjaði á Hótel
Borg. Í boði alla daga vikunnar.
Verð: Í hádeginu alla daga krónur
3.000; krónur 4.500 mánudags- til
Ilmurinn úr eldhúsinu...
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
KJÖTSKURÐUR Í PERLUNNI DANSKT SMURBRAUÐ Á HÓTEL LOFTLEIÐUM
AMERÍSKUR KALKÚNN Á ARGENTÍNU JÓLATERTUR Í PERLUNNI
JÓLAHLAÐBORÐ Á VOX, NORDICA HÓTEL