Fréttablaðið - 03.12.2005, Side 39

Fréttablaðið - 03.12.2005, Side 39
[ ] FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Heimild: Almanak Háskólans Jón Einarsson á glæsilegan MGA Roadster árgerð 1957. Þetta er einn af þremur fornbílum sem eru í eigu Jóns. „Ég keypti þennan bíl hálfuppgerðan árið 2000 og gerði hann allan upp. Ég kláraði að ryðbæta bílinn, gerði vélina upp og setti mikið af nýju dóti í hann. Skipti um allar bremsuleiðslur og setti nýja leðurinnréttingu í bílinn. Svo fékk ég vin minn og félaga til þess að mála stálinnréttinguna inni í bílnum eins og hún væri úr viði. Það var nefnilega oft gert við breska sportbíla,“ segir Jón. Hann segir marga vilja meina að þessi gerð MGA bíla sé best heppnaðasta gerð MGA sportbílanna þó hann sé vissulega barn síns tíma enda árgerð 1957. Vélin í bílnum er 1622 cc og skilar heilum 120 hestöflum. Þegar Jón keypti bílinn var hann keyrður rúmar 23.000 mílur en hafði ekki verið notaður í fimmtán eða tuttugu ár. „Hann kom til landsins óuppgerður frá Bandaríkjunum árið 1997 og ég er þriðji eigandi hans hér á landi en fyrsti skráði eigandinn.“ Jón segist nú ekki nota bílinn mikið, kannski þá helst til þess að taka frúna á rúntinn. „Maður fer kannski með konunni í leikhús eða á sunnudagsrúnt þegar veður er gott.“ Þetta er hins vegar ekki eini fornbíllin sem Jón á því hann á tvo aðra mjög frambærilega fornbíla, Buick Century blæjubíl frá árinu 1955 og Hudson Terraplane árgerð 1937 sem er einnig blæjubíll. Jón segist ekki stefna á að kaupa fleiri fornbíla. „Nei, þetta er meira en nóg. MGA bíllinn er meira að segja falur ef einhver vill kaupa hann,“ segir Jón að lokum. steinthor@frettabladid.is �������������� ������� ������������������ ������������� �������� ������ ����������������� ��� ���� ������������������� ������� ������� ������������� �������������� �������������� ��������������� �������������� � �������� Góðan dag Í dag er laugardagurinn 3. desem- ber 337. dagur ársins 2005 Reykjavík 10.51 13.18 15.44 Akureyri 11.00 13.02 15.04 KRÍLIN Ég er góð stelpa en stundum í búðum verða hendurnar mínar alveg óðar! Mælaborðið í bílnum var oðrað. Góður bíll á sunnudagsrúntinn Jón Einarsson ásamt MGA Roadster árgerð ´57 sem hann segir að sé falur fyrir gott verð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN. Jólaútsala Brimborgar á notuðum bílum hófst 1. desember. Til viðbótar við lækkað verð á notuðum útsölubílum fá allir sem kaupa notaðan bíl hjá Brimborg ný dekk frá Nokian eða Pirelli. Kaupandinn velur um sumar- eða vetrardekk. Til að létta þér kaupin býður Brimborg lán með engri útborgun. Kim Basinger mun prýða auglýsingar fyrir Miu Miu tískumerkið á næstunni. Föla leikkonan nýtur fulltingis brasilísk-bandarísku leikkonunnar Camillu Belle við að kynna vor- og sumarlínu merkisins fyrir næsta ár. Miuccua Prada, hönnuður Miu Miu, segir það óþægilegt og vandræðalegt að þurfa að vega og meta fyrirsætur fyrir fötin sín og að mestu máli skipti að persónuleiki þeirra komi til skila hugmyndinni sem liggur að baki fatahönnuninni. Tónlistarhátíð Hallgrímskirkju á jólaföstu heldur áfram með fjölbreyttu tónleikahaldi. Um helgina verða jólatónleikar Mótettukórsins endurteknir tvívegis, laugardag kl. 17.00 og á sunnudagskvöld kl. 20.00. - Orgeljól, - Björn Steinar Sólbergsson leikur franska jólatónlist á sunnudag kl. 17.00. Kvenföt verða nýjasta vígi hönnuðarins Ozwald Boateng. Boateng fagnaði nýlega 20 ára hönnunarafmæli sínu með tískusýningu í Victoria & Albert safninu í Lundúnum. Þar var sýnt brot af þeim herrafötum sem Boateng er þekktur fyrir. Án þess að vilja lýsa fyrirætlunum sínum nákvæmlega sagðist hann við það tækifæri vera að undirbúa innreið á kvenfatamarkaðinn. LIGGUR Í LOFTINU [ JÓL - TÍSKA - BÍLAR ] REYNSLUAKSTUR Subaru Impreza bls. 2 ÁSGARÐUR Jólamarkaður í dag bls. 8 NÆLUR Skraut í skammdegi bls. 11

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.