Fréttablaðið - 03.12.2005, Page 68
3. desember 2005 LAUGARDAGUR48
S íðustu tvær vikur hefur Madonna trónað á toppi sölulista beggja megin
við Atlantshafið. Ekki bara með
smáskífu sína Hung Up, heldur
líka nýjustu breiðskífu sína,
Confessions on a Dancefloor. Eftir
22 ára útgáfuferil sem hefur fært
okkur tíu breiðskífur (ef ekki eru
taldar með þrjár sem hún gerði
sérstaklega fyrir kvikmyndir) er
Madonna óumdeilanlega drottning
poppsins. Miðað við gæði og
móttökur nýju plötunnar, virðist
hún ekkert vera á leiðinni að missa
kórónuna af höfðinu.
Metnaður og uppreisnarandi
Hvernig fer hún að þessu?
Margir hafa haldið því fram að
hinir raunverulegu hæfileikar
Madonnu felist í smekk hennar og
hversu leitandi hún er. Aðrir segja
að henni hafi sjaldan mistekist illa
hvað tónlist varðar og hún virðist
búa yfir sjötta skilningarvitinu
þegar kemur að því að bera á borð
girnilegan pakka fyrir fjöldann.
Ég held að það sé ekki bara
smekkur hennar eða heldur
hversu límdur putti hennar er á
púlsi dægurmenningar sem gerir
hana að drottningu poppsins. Öllu
heldur er það gífurlegur metnaður
hennar og uppreisnarandi. Frá
því að Madonna kom fyrst fram
á sjónarsviðið árið 1983 með
samnefndri breiðskífu hefur
hún aldrei horfið af sviðsljósinu
í langan tíma. Hún virðist vera
haldin óþrjótandi hvöt til þess
að skapa, og þegar hún hefur
ekki verið að búa til tónlist eða
leika í kvikmyndum hefur hún
verið að búa til börn, eða skrifa
barnabækur.
Hvað viðkemur málfrelsi,
þá aðallega frelsi til þess að tjá
sig kynferðislega, eigum við
uppreisnaranda Madonnu mikið
að þakka. Hún lék sér stöðugt
að fjölmiðlum og notaði þá sem
verkfæri til þess að reyna á
siðferðismörk þjóða heimsins.
Þetta gerði hún með myndböndum
sínum en tvö þeirra To Justify
My Love og What it Feels Like
for a Girl voru bönnuð á MTV
og VH1. Í bæði skiptin var það
viljandi gert hjá söngkonunni að
fara yfir strikið og myndböndin
voru gefin út sérstaklega fyrir
sölu í plötubúðunum á hátindi
fjölmiðlafársins sem myndaðist
í kringum það. Árið 1990 náði
söngkonan svo aftur að valda
fjaðrafoki þegar henni var hótað
handtöku á Blonde Ambition
túrnum í Texas fyrir að herma eftir
sjálfsfróun á sviði í laginu Like a
Virgin. Tveimur árum eftir það fór
hún alla leið og gaf út bókina Sex,
sem innihélt nektarmyndir af henni
og vangaveltur hennar um kynlíf,
og ástarleiki. Aðeins mátti selja
bókina innsiglaða, en í rauninni
innihélt hún ekkert grófara en
aðrar erótískar ljósmyndabækur
höfðu boðið upp á í áraraðir fyrir
það. Eftir að hún eignaðist börn
virðist sem uppreisnarseggurinn
hafi sofnað og Madonna hefur
meira að segja talað opinskátt um
eftirsjá eftir fyrra líferni.
Að lokum verðum við að
viðurkenna að eina raunverulega
ástæðan fyrir því að Madonna
nýtur enn svona mikilla
vinsælda eru hæfileikar hennar.
Hún hefur ótrúlegt eyra fyrir
poppmelódíum, tekur áhættu
og velur samstarfsfólk sitt
vandlega.
Blætt af hjartanu í svefnherbergi
Nýjasta breiðskífa Madonnu er
tilraun hennar til þess að finna
aftur rætur sínar. Platan er
unnin í svefnherbergi Bretans
StuartsPrice, tónlistargrúskrara
sem hingað til hefur ekki gefið
út undir eigin nafni. Hann er
líklegast þekktastur sem Les
Rhythm Digitales eða fyrir störf
sín með Íslandsvinunum í Zoot
Woman.
Madonna Lousie Veronica
Ciccone fluttist frá heimabæ
sínum í Michigan til New York
árið 1977 þegar hún var þá 19 ára.
Tveimur árum seinna var hún
byrjuð að dansa fyrir afskaplega
smeðjulegan diskóbolta að nafni
Patrick Hernandez. Upp úr því
fékk hún áhuga á tónlistarsköpun
og hóf að búa til tónlist með
fyrrverandi kærasta sínum,
trommara og plötusnúð, Stephen
Bray. Þau einbeittu sér að því að
búa til danstónlist, undir sterkum
diskóáhrifum, sem þau dreifðu
svo til plötusnúða.
Madonna minnist þess að hafa
mætt snemma kvölds á klúbba
New York með bók, bíðandi eftir
því að sjá hvort plötusnúðurinn
gæti komið gestunum í dansæði
eða ekki. Ef þeim gekk vel, þá fór
hún til þeirra og fékk númerið
hjá þeim. Nokkrir af þekktustu
slögurum hennar frá upphafi
ferilsins eru einmitt búnir til í
heimsóknum eftir slík skyndikynni
á dansgólfinu. Besta dæmið er Into
the Groove, sem lífgar enn upp á
hvaða dansgólf sem er.
Samstarf Madonnu og Stuarts
Price er ekki alveg nýtt af nálinni.
Hann hefur starfað í tónleikasveit
hennar í um fimm ár, og gerði með
henni lagið X-Static Process. Með
betri lögum þeirrar plötu en hefur
ekki verið gefið út sem smáskífa.
Nýja platan var unnin á hálfu ári
og hófst ferlið á heimsókn Madonnu
í svefnherbergi Stuarts. Þar líkaði
þeim andrúmsloftið vel, og nánast
öll platan er samin, hljóðrituð og
sungin þar. Innan um safn analog
hljóðgerfla og trommuheila.
Upptökurnar hófust iðulega
seint á daginn, eftir að Madonna
var búin að koma börnum sínum
í skóla, funda með markaðsfólki
sínu og uppfylla þau skilyrði sem
stjarna þarf til þess að komast í
gegnum daginn. Að enskum sið,
var Stuart tilbúinn með tebolla
þegar hún mætti en svo var unnið
hörðum höndum í þessu nána
umhverfi þar til að báðir aðilar
skildu sáttir.
Sambandið við almættið
Það er líklega þess vegna sem
það er svona mikill galdur yfir
plötunni. Madonna sneri baki við
stóru hljóðverunum og gaf sig á
vald pilts sem ekki var tilneyddur til
að segja já við öllum hugmyndum
hennar. Hún nálgaðist tónlistina
á svipaðan hátt og hún gerði
þegar hún hóf feril sinn. Þefaði
uppi ungan og metnaðarfullan
tónlistargrúskrara með dálæti á
tækjum og tólum. Stuart skildi
dansmenningu núsins og komið sér
áfram með áhuganum.
Það hjálpar líka til að Madonna
er mjög heiðarleg í textasmíðum
sínum. Á plötunni veltir hún því
fyrir sér hvers vegna hún haldi
stöðugt áfram og hvort það sé í
rauninni þess virði.
Kynlíf virðist heldur ekki
vera hennar æðri máttur lengur,
og í laginu Isaac fjallar hún um
sambandið almættið. Madonna er
á stuttum tíma orðin einn helsti
trúboði Kaballah, trúarbragða af
sömu rótum og gyðingdómur.
Sagt er að eftir þessa plötu
ætli Madonna að segja skilið við
danstónlist. Kannski vegna þess
að hún sér sig ekki dansandi á
sviði fram á sextugsaldur, hver
veit? Sé svo, þá hefði hún ekki
getað haldið betra kveðjupartí.
biggi@frettabladid.is
1 Madonna (1983) Frumraun Madonnu var hlaðin slögurum. Holiday komst
inn á topp 40 í Bandaríkjunum, en lögin
Borderline og Lucky
Star gerðu betur
og náðu á Topp 10.
Vinsældir plötunnar
tryggðu söngkonunni
fyrsta aðalhlutverk
hennar í kvikmynd.
Myndin var Desperatly Seeking Susan, og
er enn eina myndin með henni sem er
þess virði að horfa á.
2 Like a Virgin (1984) Titillag þessar-ar plötu gerði Madonnu að stjörnu um
allan heim. Það
mótaði líka upp-
haf söngkonunnar
á því að reyna á
siðferðiskennd fjöl-
miðla með notkun
kynlífstilvitnanna.
Aðrir slagarar af
þessari plötu voru
Material Girl og Into the Groove.
3 True Blue (1986) Fyrsta plata Madonnu sem ljóska. Hér má finna tilraunir henn-
ar við að blanda saman glysgjörnu poppi
níunda áratugarins við saklaus popplög
kvennasveita sjöunda áratugarins. Titillag-
ið True Blue er gott dæmi um það. Marg-
ir túlkuðu lagið Papa Don´t Preach sem
afstöðu gegn fóstureyðingum, þar sem
Madonna var alin
upp af kaþólskum
sið, en það er lík-
legast misskilningur.
Aðrir slagarar á plöt-
unni voru Open Your
Heart, dramatíska
ballaðan Live to Tell
úr myndinni At Close Range og miðjarðar-
hafspopparinn La Isla Bonita.
4 Ray of Light (1998) Madonna var nokkuð lengi að finna sig á tíunda ára-
tugnum. Hún gat auðvitað ekki hneykslað
jafn mikið og hún hafði gert, og tónlist var
lengi vel aðeins skuggi þess sem komið
hafði á undan. Það var ekki fyrr en hún
gerði plötu með upptökustjóranum Willi-
am Orbit, sem hafði þá m.a. átt þátt í
mótun Bjarkar Guðmundsdóttur, sem allt
gekk upp aftur. Ray of Light var fyrsta plata
hennar sem móðir,
en hún eignaðist
dóttir sína Lourdes
árinu áður. Platan er
dramatísk á köflum
en fangar greinilega
nýja lífshamingju
hennar á þessum
tíma. Slagarnir hér voru Ray of Light, Froz-
en og The Power of Goodbye.
5 Confessions on a Dance Floor (2005) Það er eins og Madonna nái á þessari
nýju plötu að tengja sig aftur við frum-
kraft sinn, og þetta er líklegast fyrsta plata
hennar frá upphafi þar sem ekki er veikan
blett að finna. Platan
á án efa eftir að gera
súperstjörnu úr upp-
tökustjóranum Stuart
Price og færa okkur
handfylli af nýjum slög-
urum.
5 BESTU PLÖTUR MADONNU
Tæplega fimmtug sendir Madonna frá sér plötu
sem inniheldur ungæðislegri ferskleika en hjá
flestum poppdúkkum sem hafa reynt að feta í
spor hennar síðustu 20 ár. Birgir Örn Steinarsson
hyllir hér þessa ókrýndu drottningu poppsins.
MADONNA Madonna á tónleikum í The Astoria í London á dögunum þar sem hún kynnti nýjustu plötu sína.
Krúnan
endurheimt
um ›JÓL
ALIÐ!
Vinningar ver›a afhentir hjá BT Smáralind 19-23.desember milli kl 12-22. 99 kr/skeyti›. Me› flátttöku ertu kominn í SMS klúbb.
AÐALAVINNINGUR ER JÓLAPAKKI
HANDA ALLRI FJÖLSKYLDUNNI!
10. hver vinnur eitthva› af flessu hér:
MEDION V8 X2 tölvur • PANASONIC heimabíó • Denver DVD
spilarar • PANASONIC miniDV tökuvélat • Sony Stafrænar
myndavélar • GSM símar • Jólaís Kjörís • PSP tölva • Sony MP3
spilarar • Konfekt frá Nóa Síríus • PlayStation 2 tölvur
• Bíómi›ar fyrir tvo á The Family Stone • Fullt af geislaplötum
• CocaCola kippur • Fullt af DVD • Víking Malt kippur • Fullt af
tölvuleikjum • Frí ADSL áskrift hjá BTnet!
að verðmæ
ti
550.000,-
Sendu SMS skeyti› BT BTF á
númeri› 1900 og flú gætir unni›!
Vi› sendum flér spurningu tengda BT og jólunum sem flú
svarar me› SMS skeyti BT A, B á númeri› 1900.
10. hver
vinnur!