Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 500017. desember 2005 — 341. tölublað — 5. árgangur
�������
������
������������������������������������������
�� �����������������������������������
����������
�����������
�����������������������
JólaKubbur2FrBl 11/30/05, 5:37 PM1
7
DAGAR
TIL JÓLA
Ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Konunglegur!
EYÞÓR GUÐJÓNSSON
Kynnti hryllingsmyndina
Hostel í Los Angeles
Færði Tarantino ljósmynda- og fræðibækur um Ísland
FÓLK 70
VEÐRIÐ Í DAG
Frískleg herratíska
Strákarnir mega ekki
fara í jólaköttinn. Grár
og svartur eru mest
áberandi litirnir þessi
misserin.
TÍSKA 50
Fagnar fæðingu sólar
Hilmar Örn Hilmarson allsherjargoði
hlakkar ekki síður til jóla-
haldsins en annarra,
enda eru ásatrúar-
menn veisluglatt fólk
upp til hópa.
FÓLK 28
Er hægt að stela jólunum?
Það er hæpið að fullyrða að það sé
hægt að stela jólunum frá kristnum
í ljósi þess að þau eru ekki sérlega
kristin hátíð, segir Sverrir Jakobsson.
Í DAG 12
SNJÓKOMA NÚ Í morgunsárið um
sunnan- og vestanvert landið en síðar
rigning. Hætt við snjókomu norðaustan
til síðdegis eða í kvöld. Hlýnandi veður
eftir því sem líður á daginn og nóttina.
VEÐUR 4
Barcelona og
Chelsea mætast
aftur
Eiður Smári
Guðjohsen segir
það vera fínt að
mæta Barcelona
á þessum tíma-
punkti í Meistaradeildinni
en liðin drógust saman í
16-liða úrslitum í gær, annað
árið í röð.
ÍÞRÓTTIR 62
LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde utan-
ríkisráðherra sagði í ræðu á fundi
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í
Hong Kong í gær að Ísland væri
nú reiðubúið að lækka verulega
tolla og framleiðslustuðning innan-
lands að því tilskyldu að jafnvægi
í skuldbindingum yrði viðunandi.
Geir sagði ljóst að aðlaga þyrfti
rekstrarumhverfi íslensks land-
búnaðar að slíkum nýjum skuld-
bindingum og breytingarnar yrði
að gera með varkárni.
Yfirlýsing Geirs kemur í kjöl-
far norrænnar matvöruskýrslu,
sem Samkeppniseftirlitið hefur
kynnt, en þar kemur fram að mat-
vöruverð á Íslandi er liðlega fjöru-
tíu prósentum hærra en almennt
gerist í löndum Evrópusambands-
ins. Hátt matvöruverð er ekki síst
rakið til verndartolla og dýrra inn-
lendra landbúnaðarafurða.
„Við höfum veitt landbúnaðin-
um vernd sem hefur áhrif á verðið
og ekki er hægt að útiloka að sam-
þjöppun eða skortur á samkeppni
hafi ekki áhrif á verðið. Þeir sem
ráða þar ríkjum yrðu beinlínis að
vera englar ef áhrifin ættu engin
að vera,“ segir Árni Mathiesen
fjármálaráðherra.
Á fundi Alþjóðaviðskiptastofn-
unarinnar eru ræddir möguleikar
til lækkunar á aðflutningsgjöld-
um, ekki aðeins á matvöru held-
ur einnig öðrum vöruflokkum.
Fjármálaráðherra segir samninga
flókna og snúi að möguleikum
þjóða til þess að styðja landbúnað.
„Af þeim sökum er óskynsamlegt
að fara út í slíkar aðgerðir ein-
hliða. Við verðum að fara varlega
í þeim efnum,“ segir Árni.
Um neysluskatta segir Árni að
ef þeirra tekna yrði aflað á annan
hátt fyrir ríkissjóð kæmu þeir ekki
fram í vöruverðinu heldur í hærri
sköttum að öðru leyti. „Við komum
vel út úr samanburði við hin Norð-
urlöndin í þessu efni. Ríkið tekur
minna til sín hér en þar. Til þess
að fá heildarmynd af lífskjörum
þurfum við að skoða þetta í víðara
samhengi en aðeins matvöruverð-
ið. Við höfum valið að innheimta
þetta stóran hluta af tekjum rík-
issjóðs sem neysluskatta. Skattar
hafa verið lækkaðir og verða lækk-
aðir frekar samkvæmt áætlunum
í stjórnarsáttmálanum. Aðrar og
nýjar ákvarðanir hafa ekki verið
teknar,“ segir fjármálaráðherra.
Sjá síðu 6 / johannh@frettabladid.is
Stjórnvöld boða niður-
skurð landbúnaðarstyrkja
Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir stjórnvöld reiðubúin að lækka tolla og framleiðslustuðning við inn-
lendan landbúnað verulega en hann verði að fá tíma til aðlögunar. Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir
neysluskatta hækka vöruverð en yrðu þeir lækkaðir verulega kæmi það fram í öðrum sköttum.
SAMFÉLAGSMÁL Sævar Arnfjörð,
sem búið hefur í tjaldi í Öskju-
hlíð frá því í ágúst, vissi varla
hvaðan á hann stóð veðrið
þegar hann vaknaði við það að
Sigursteinn Másson, formaður
Öryrkjabandalagsins, var kom-
inn að hitta hann.
Sigursteinn hafði frumkvæði
að því að Sævari var fundið
herbergi á gistihúsi og hefur
Öryrkjabandalagið greitt fyrir
gistingu hans næstu daga.
Einnig hefur Sævar fyllt út nýja
umsókn hjá Öryrkjabandalag-
inu og verður nú unnið að fram-
tíðarlausn á hans málum í snatri
að sögn Sigursteins.
Formaðurinn sagði jafn-
framt að borgaryfirvöld bæru
lögformlega ábyrgð á því að
fólk byggi ekki við þær aðstæð-
ur sem Sævar hefur búið við
síðustu mánuði.
„Við erum að leggja mjög
mikla áherslu á að bæta okkar
þjónustu við utangarðsfólk og
auðvitað þarf þessi maður ekk-
ert að gista í tjaldi. Það er til
dæmis ekki fullt á gistiskýlinu
í Þingholtunum,“ segir Björk
Vilhelmsdóttir, formaður vel-
ferðarráðs Reykjavíkurborgar.
Fjöldi manns hafði samband
við Fréttablaðið í gær og vildi
fólk koma því á framfæri að
það væru reiðubúið til að borga
gistingu fyrir Sævar um jólin.
Sjá síðu 2 / - jse
Formaður Öryrkjabandalagsins heimsótti Sævar Arnfjörð tjaldbúa í Öskjuhlíð:
Útilegumaðurinn fær gistingu
SÆVAR ARNFJÖRÐ OG SIGURSTEINN MÁSSON Sævar og Sigursteinn, formaður Öryrkjabandalagsins, ræddu málin í gærmorgun í rjóðrinu í
Öskjuhlíð þar sem tjaldið hans Sævars stendur. Fréttablaðið/Heiða
BAGDAD, AP Íraskir hermenn náðu
Abu Musab al-Zarqawi, sem sagð-
ur er höfuðsmaður al-Kaída í
Írak, á sitt vald
í borginni Fall-
ujah á síðasta ári
en létu hann svo
lausan þar sem
þeir gerðu sér
ekki grein fyrir
því hver hann
var. Þessu lýsti
Hussein Kamal,
aðstoðarinnanrík-
isráðherra Íraks, yfir í gær.
Í kjölfar umsátursins um Fall-
ujah í nóvember 2004 var fjöldi
uppreisnarmanna handtekinn en
mörgum þeirra var sleppt eftir
yfirheyrslur og hefur al-Zarqawi
að líkindum verið í þeim hópi.
Bandarískir embættismenn geta
ekki staðfest yfirlýsingu. ■
Abu Musab al-Zarqawi:
Sleppt úr haldi
fyrir mistök
ABU MUSAB
AL-ZARQAWI
BRYNHILDUR BÁRÐARDÓTTIR
Konukot opið
öll jólin
bílar • ferðir • tíska • jól
Í MIÐJU BLAÐSINS