Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 10
Ný
tt!
+ Staðgreiðsluverð
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til allt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu-
dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu.
– HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
Spurðu um ENNE
M
M
/
S
ÍA
Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000
SKIPT_um væntingar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Almera
Ver› 1.790.000,-
Me› nagladekkjum. Sjálfskiptur, sóllúga,
álfelgur og spoiler.
ALMERA
NISSAN
fiÆGINDI OFAR ÖLLU
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is
17. desember 2005 LAUGARDAGUR
Bókabröns á aðventunni
Sögulegur Jóladiskur:
Gæsasúpa
Fennelgrafinn lax á toast melba
Hreindýrapate með bláberjagljáa
Túnfisk tartar með wasabi
Parmaskinka með rucula
Verð 1.850 kr.
Taktu þér tíma í notalega aðventustund þar sem helstu rithöfundar þjóðarinnar
lesa fyrir þig úr bókmenntaperlum jólanna meðan þú kitlar bragðlaukana með
gómsætum réttum á Apótekinu.
Dagskráin hefst í dag klukkan 14.00.
Þórarinn Eldjárn les upp úr ljóðabók sinni Hættir og mörk,
Marta María Jónasdóttir og Þóra Sigurðardóttir lesa úr Djöflatertunni.
GROSNÍ Þingmenn í héraðinu fóru fram á það við stjórnvöld í Kreml í vikunni að nafni
borgarinnar yrði breytt í Akhmad-Kala í höfuðið á Akhmad Kadyrov, sem ráðinn var af
dögum á sínum tíma. Þeir telja nafn Grosní of tengt stríðsátökunum sem geisað hafa í
landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MOSKVA, AP Ríkissaksóknari í
Tsjetsjeníu hefur hafið rannsókn
á ástæðum þess að geislavirk efni
lágu á glámbekk í verksmiðju í
höfuðstaðnum Grosní. Geislunin
í verksmiðjunni er tugþúsundfalt
yfir hættumörkum.
Embættismenn segja að „hrika-
leg geislavirkni“ eigi uppruna
sinn í Efnaverksmiðju Grosní-
borgar, sem er fyrirtæki í eigu
olíufélags sjálfstjórnarhéraðsins.
Hágeislavirk efni eru sögð liggja
þar út allt eins og hráviði og hafa
sérfræðingar sérstakar áhyggjur
af kóbalt-60 samsætum sem eru
mjög hættulegar. Í einni geymslu
verksmiðjunnar var geislunin
58.000 sinnum yfir tilskildum
hættumörkum, en til samanburð-
ar má geta þess að geislavirknin
í námunda Tsjernobyl-versins
var einungis tvöfalt meiri eftir
kjarnorkuslysið þar árið 1986.
Vladimir Slivjak, talsmaður
rússneskra umhverfissamtaka,
segir íbúa í námunda verksmiðj-
unnar vera í stórhættu því þeir
sem verði fyrir slíkri geislun, þó
ekki nema í nokkrar mínútur, geti
orðið fyrir miklu heilsutjóni og
jafnvel beðið bana. Eins er ótt-
ast að hryðjuverkamenn komist
yfir efnin og noti þau í svonefnda
drullusprengju en þá er geislavirk-
um efnum dreift yfir stórt svæði
með hefðbundnu sprengiefni
þannig að geislun hlýst af. - shg
Kjarnorkuslys í uppsiglingu í höfuðborg Tsjetsjeníu:
Geislunin langt
yfir mörkum
SPÁNN, AP Frönsk yfirvöld hafa
framselt Francisco Xabier Garcia
Gaztelu, fyrrverandi yfirmann
í aðskilnaðarsamtökum Baska,
ETA, til Spánar en Gaztelu er gefið
að sök að hafa myrt þingmann frá
Ermua í hinum baskneska hluta
Spánar árið 1997.
Gaztelu kom til Madrídar í
fyrradag en neitaði að tjá sig við
dómara. Hann verður vistaður í
fangelsi þar til réttarhöld hefjast
í máli hans. Aðskilnaðarsamtök
Baska eru sögð bera ábyrgð á yfir
800 morðum síðan barátta sam-
takanna fyrir sjálfstæði Baska-
héraða Spánar hófst árið 1968. ■
Fyrrum yfirmaður ETA:
Framseldur
til Spánar
Í JÁRNUM Gaztelu er meðal annars
gefið að sök að hafa staðið að morði á
spænskum þingmanni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP