Fréttablaðið - 28.12.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ALLT Í RUSLI
Ruslatunnurnar eru
aldrei jafn fullar og eftir jól
Tekið til eftir hátíðina
TILVERAN 12
> Markaðurinn
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
���������������������������������
����������������������������������������������������������� ���������������������� �����������
�����������������������������
������
������
Gott til síðasta dropa
Sími: 550 5000
MIÐVIKUDAGUR
28. desember 2005 — 351. tölublað — 5. árgangur
ÞORGEIR AXEL ÖRLYGSSON
Á vakt á
gamlárskvöld
áramót - bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
VEÐRIÐ Í DAG
BANDARÍKIN, AP Kanelsnúður, slá-
andi líkur móður Teresu heitinni,
hvarf á jóladag úr útstillingarskáp
sem hann hafði verið í síðan við-
skiptavinur kaffihúss í Nashville
í Tennessee kom auga á sérstakt
form hans árið 1996.
Kaffihússeigandinn, Bob Ber-
stein, uppgötvaði hvarfið er hann
mætti til vinnu sinnar á annan í
jólum. Fjárhirsla sem var rétt við
skápinn var látin ósnert í innbrot-
inu. „Ég tel því miður að þarna
hafi einhver verið að verki sem
vildi eyðileggja snúðinn,“ sagði
Bernstein.
Sölu á stuttermabolum með
áprentaðri mynd af „nunnusnúðn-
um“ og öðrum slíkum söluvarn-
ingi var hætt eftir að móðir Ter-
esa skrifaði kaffihúsinu bréf þar
að lútandi árið 1997. ■
Innbrot á jóladag:
Nunnusnúð
stolið
LÍKTIST MÓÐUR TERESU Nunnusnúður-
inn frægi í útstillingarskápnum á Bongo
Java-kaffihúsinu í Nashville fyrir stuldinn á
jóladag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hilvítis hilvíti
Það eru forréttindi að fá að kynnast
fólki eins og því sem byggði Gríms-
staðaholtið áður fyrr, rifjar Þorvaldur
Gylfason upp.
Í DAG 20
BESTU BÍÓMYNDIR ÁRSINS
Kvikmyndahátíðir
björguðu árinu
Sin City trónir á toppnum
KVIKMYNDIR 34
Fram úr björtustu vonum
Fyrsta plata Garðars Thors Cortes
hefur selst í rúmlega 18.000
eintökum, sem þykir ekki
síst merkilegt fyrir þær
sakir að platan kom út
fyrir aðeins sex
vikum.
FÓLK 46
VIÐSKIPTI Björgólfur Thor Björg-
ólfsson var af dómnefnd Mark-
aðarins valinn maður ársins í við-
skiptalífinu.
Björgólfur segir það heppilegt
fyrir alla að dreifa áhættu og að
Íslendingar eigi í meiri mæli að
taka upp samstarf við erlenda
fjárfesta og fjármálastofnanir.
Hann segir Ísland og íslenska
fjárfesta undir smásjá erlendra
fjölmiðla. „Í umfjölluninni gætir
mikilla alhæfinga sem ég held
að myndi minnka mikið ef menn
næðu að mynda fleiri tengsl,“
segir Björgólfur Thor.
Sjá Markaðinn / - hh
Björgólfur Thor Björgólfsson:
Maður ársins í
viðskiptalífinu
ROFAR TIL Á NORÐAUSTURLANDI
Annars verður fremur stíf suðvestanátt
með snjókomu eða éljum vestan til,
skúraveðri með suðurströndinni, annars
yfirleitt þurrt. Hiti 0-4 stig en frost til
landsins. VEÐUR 4
Sjötugur á Kanarí
Stefán Hermannsson,
fyrrverandi borgarverk-
fræðingur, heldur upp á
stórafmæli í suðurhöfum.
TÍMAMÓT 26
Garcia verður flogið til
landsins
Læknir íslenska landsliðsins í
handbolta mun skoða Jaliesky
Garcia fljótlega eftir áramót
og meta hvort hann sé
leikfær á EM í Sviss. HSÍ
ætlar að fljúga Garcia
til landsins.
ÍÞRÓTTIR 40
BÍLL ALELDA Á MIÐRI MIKLUBRAUT Eldur kviknaði í gær í metangasbíl á Miklubraut við Lönguhlíð. Ökumaður bílsins náði að forða sér út
áður en bíllinn varð alelda. Vel gekk að slökkva eldinn en bíllinn er talinn ónýtur. Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem eldur kemur
upp í metangasbíl hérlendis. Sjá síðu 6. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLA Eldri kona fannst látin í
íbúð sinni í fjölbýlishúsi í Vestur-
bæ Reykjavíkur á aðfangadag.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu er talið að konan, sem var
fædd árið 1926, hafi verið látin í
nokkurn tíma áður en hún fannst.
Nágrannar konunnar kölluðu til
lögreglu.
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, segir nokkuð um
að eldra fólk finnist heima hjá sér
eftir að hafa verið látið í nokkurn
tíma. „Ég man eftir nokkrum til-
fellum frá því núna í haust,“ segir
hann en kveðst þó ekki hafa tilfinn-
ingu fyrir því hvort þetta færist í
vöxt. „Ég hef ekki samanburðinn.
En ef upp koma tvö til þrjú svona
tilfelli á stuttum tíma bregður
fólki náttúrlega við.“
Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar, sem sæti á í heilbrigðis-
og trygginganefnd, segist telja
að mál eldra fólks sem hætt sé
við einangrun eigi heima hjá
félagsþjónustum sveitarfélaganna.
„Við í Samfylkingunni höfum talað
fyrir því að auka þurfi þjónustu
við aldraða þannig að félagslega
kerfið fari heim til allra líkt og
gert er í tilraunasveitarfélögum og
kannað hvort einstaklingar þurfi
á þjónustu að halda.“ Ásta Ragn-
heiður vísar þar til verkefnis sem
Akureyri og fleiri bæjarfélög taka
þátt í, en þá er fólk sem komið er
yfir 67 ára aldur heimsótt. „Þetta
er gert til að koma í veg fyrir að
fólk verði einangrað, sem auðvitað
er hætt við þegar ekkert eftirlit er
með því hvort fólk sé með þjónustu
eða ekki.“
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
Velferðarráðs Reykjavíkur, telur
fulla ástæðu til að huga betur að
málum eldri borgara í kjölfar mála
þar sem fólk hefur fundist látið
heima hjá sér eftir einhvern tíma.
„Við höfum þéttriðið net þjón-
ustumiðstöðva í hverfum borgar-
innar og síðan félagsmiðstöðvar
sem sinna öldruðum sérstaklega
og ég held að full ástæða sé til að
óska eftir betri kortlagningu aldr-
aðra í borginni og þeirra sem eru
einmana,“ segir hún og vísar til
þess að á íbúaþingi eldri borgara í
Laugardal sem haldið var í október
hafi komið fram vilji eldri borgara
sjálfra til að þetta yrði gert. Hún
segir að auk aðkomu opinberra
aðila þurfi að virkja fólk til betri
nágrannavörslu.
olikr@frettabladid.is
Aukið eftirlit með
eldri borgurum
Formaður Velferðarráðs Reykjavíkur boðar aðgerðir til að huga að aðstæðum
eldri borgara. Á aðfangadag fannst 79 ára kona sem hafði verið látin á heimili
sínu í Reykjavík í einhvern tíma. Nokkur slík mál hafa komið upp síðan í haust.
VEÐUR Úrkoman um jólin í ár er
sú mesta síðan árið 1884, að sögn
Einars Sveinbjarnarsonar, veður-
fræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Fyrir jól hafði heildarúrkoma á
höfuðborgarsvæðinu í desember-
mánuði verið um 120 millimetrar
en um helgina rigndi niður um
fimmtíu millimetrum.
Þó mikið hafi rignt í höfuðborg-
inni í desember segir Einar það
afar ólíklegt að met verði slegið
þetta árið því metúrkoma á höfuð-
borgarsvæðinu í desember er um
180 millimetrar. Jólaveðrið var
jafnframt með hlýjasta móti í ár.
Mestur mældist hitinn á Siglunesi
á jóladag, 13,5 stig. Þrátt fyrir
mikinn hita miðað við árstíma er
ekki um met að ræða því fyrir
þrjátíu árum mældist fimmtán
stiga hiti á Dalatanga.
Hitinn komst upp í tólf stig
á Akureyri á jóladag en það er
mesti hiti þar á jólum síðan 1928.
Hæst fór hitinn í Reykjavík á jóla-
dag, rúmlega tíu stig, og eru þetta
samkvæmt Einari með allra hlýj-
ustu jólum í Reykjavík þó að meiri
hiti hafi mælst í desembermán-
uði nú síðast árin 2001 og 2002.
Ástæða þessa skrýtna tíðarfars
er sú að yfir landið hafa gengið
hlýjar lægðir að sunnan sem færa
með sér mikla vætu sem fellur
helst á Suðvestur- og Vesturlandið
að sögn Einars.
Einar segir að búast megi við
kaldara veðri á næstunni. „Veður-
lag næstu daga verður líkara því
sem við eigum að venjast á þess-
um árstíma.“ - æþe
Rúmlega 13 stiga hiti var á Siglunesi um jólin og mikil rigning í Reykjavík:
Vætusömustu jól frá 1884 FÓLKSFJÖLGUN Á jóladag gerðist sá óvenjulegi atburður að tvö sveinbörn fæddust í heimahúsi í
Reykjavík.
Kristbjörg Magnúsdóttir ljós-
móðir segist telja að heldur fleiri
mæður hafi kosið að fæða heima á
þessu ári en í fyrra, en heimafæð-
ingar séu nálægt þrjátíu talsins.
„Tvær sama dag eru hins vegar
mjög óvenjulegt,“ segir hún.
Þá fæddist einnig stúlka í
heimahúsi í Reykjavík á Þorláks-
messu.
Börnin þrjú bætast við fyrri
tölur um fæðingar um jólin og því
átta börn sem fæddust á Þorláks-
messu og átta á jóladag. - óká
Heimafæðingar á jóladag:
Tveir drengir
fæddust heima