Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 34
MARKAÐURINN 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR4 Tilvalinn fjárfestingarkostur fyrir flá sem vilja binda fé í skamman tíma án mikillar áhættu. Enginn munur er á kaup- og sölugengi og innstæ›an er alltaf laus til útborgunar. E N N E M M / S IA / N M 17 5 9 5 P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ U R Peningamarka›ssjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is. * Nafnávöxtun sl. 6 mánu›i á ársgrundvelli m.v. 30.11.2005 – kraftur til flín! 9 , 0% * Landsbankanum og að hluta til Straumi. „Sú hugmynd kom upp á fundi með forstjóra félagsins í Grasagarðinum þegar við fórum yfir möguleikana. Maður fékk viðkvæðið að þetta hefði aldrei verið gert með þssum hætti. Ég svaraði: Hvað með það þó það hafi ekki verið gert áður? Er það hægt? Menn komust að því að það var hægt. Mér finnst alltaf gaman þegar nýjar hug- myndir komast í framkvæmd.” Björgólfur Thor segir það einnig hafa verið skemmti- legt þegar hann sem stjórnarfor- maður Burðaráss afhenti Háskóla Íslands umsjá Háskólasjóðs Eim- skipafélagsins. Sá sjóður átti lengi stóran hlut í félaginu sem styrkti stöðu þeirra sem réðu meiri- hluta á hverjum tíma. „Ég er nú venjulega ekki mikið fyrir slík- ar kynningar, en ég hafði mjög gaman að þessari afhendingu. Það var gaman að vera staddur í Háskólanum þar sem maður hafði verið á bókasafninu í gamla daga og afhenda þennan sjóð. Bæði af því að háskólinn átti það skilið og sérstaklega vegna þess að ég fann svo mikla sam- kennd með frukvöðlunum. Það var svo göfug hugsjón að baki stofnunar sjóðsins og frumkvöðl- ar hans voru svo mikið á undan sinni samtíð. Þegar maður fór að kynna sér sögu sjóðsins fannst manni þetta svo göfugt og svo sorglegt hvað hafði orðið úr.” VAXANDI ÁBYRGÐ MEÐ VAXANDI ÁRANGRI Björgólfur segir leiðtogaþingið í Davos hafa haft góð áhrif á sig og hann skynji vax- andi ábyrgðar- tilfinningu með vaxandi árangri. „Menn eru að vinna að því að tengja viðskipta- lífið við metn- aðarfull þjóð- félagsverkefni. Það er mjög gott þegar það næst. Það er fyrst á þessu ári sem ég hef farið að velta slíku fyrir mér af alvöru. Ég er kannski ekki far- inn að ráðast í nein stórvirki á því sviði, en ég er farinn að hugsa miklu meira út í það.” Björgólfi hefur vegnað sér- lega vel á árinu. Hann segir þó auðvitað ekkert standa fram- ar atburðum ársins í einkalíf- inu. Frumburður hans fæddist á árinu. „Það vita það allir foreldr- ar að það er stærsta stund lífs hvers einstaklings þegar hann sér nýtt líf fæðast. Það er það frábærasta sem hefur hent mig nokkurn tímann. Það er stærsti fjársjóðurinn.” Á R I Ð 2 0 0 5 Björgólfur Thor Framhald af síðu 2 D Ó M N E F N D I N Dómnefnd markaðarins var skipuð tug manna sem fylgjast grannt með íslensku viðskipta- lífi. Hópurinn samanstendur af fræðimönnum og óháðum sérfræðingum. Enginn á ritstjórn Markaðarins sat í dómnefndinni. Dómnefndarfólk skipaði þeim sem taldir voru skara fram úr á árinu í sæti og gaf fyrsta sæti þrjú stig, annað tvö stig og það þriðja eitt stig. Pálmi Haraldsson kom fast á hæla Björgólfs Thors Björgólfssonar í vali dómnefndar Markaðarins á manni ársins í viðskiptalífinu. Pálmi hefur um langt skeið verið áberandi í viðskiptalífinu og lengi vel kunnur þeim sem fylgjast með viðskiptum. Þetta ár var stórt hjá Pálma og hann komst í sviðsljósið og má segja að hann hafi komið sér með afgerandi hætti í hóp þeirra stóru í við- skiptalífinu. Það sem kom Pálma á framfæri voru kaup- in á danska lággjaldaflugfélaginu Sterling og síðan á samkeppnisaðilanum Maersk sem Pálmi ásamt sínum mönnum sameinaði og seldi til FL Group. Þessi viðskipti voru viðskipti ársins að mati dómnefndar sem valdi mann ársins. Pálmi komst fyrst á kortið í viðskipta- lífinu sem fjárfest- ir þegar hann keypti hlut í Flugleiðum fyrir nokkrum árum síðan. Þá var trúin á félag- ið ekki mikil, en fjár- festing Pálma reyndist firnagóð. Hann hefur fjárfest töluvert með Baugi og gjarnan nefndur í því samhengi, en hefur alltaf meðfram fjárfest á eigin vegum og þá gjarnan í fyrirtækjum sem eiga í erfiðleikum og þurfa styrka stjórn til að snúa af þeirri braut. Flest þau erfiðu rekstrarverkefni sem Pálmi hefur tekist á við hafa gengið upp. Hann hefur verið óhræddur við að kaupa hlut í fyrirtækjum sem aðrir hafa verið ragir að takast á við. Pálmi gerðist stjórn- arformaður Icelandkeðjunnar eftir kaup Baugs á Big Food Group en Iceland var fyrirfram talið áhættusamasta fyrirtækið í eigu Big Food. Pálmi hefur, ásamt Malcolm Walker, stofnanda Iceland, tekist á hendur að beina félaginu á far- sælli braut. Síðast þegar fréttist var árangurinn af því starfi framar vonum. BRÆÐUR Á SIGURBRAUT Fast á hæla Pálma komu svo bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir sem kenndir eru við Bakkavör. Ferill þeirra í viðskiptum er sér- lega glæsilegur. Þeir hafa byggt upp fyrirtækið Bakkavör frá grunni í það stórveldi sem það er í dag. Árið sem nú rennur sitt skeið er merkilegt hjá þeim bræðrum fyrir margra hluta sakir. Þeir keyptu matvælafyrirtækið Geest sem hafði verið á matseðli Bakkavarar um skeið. Það sem kom markaðnum mest á óvart við þau kaup var að þrátt fyrir að Geest væri mun stærra fyrir- tæki en Bakkavör, þá þurfti ekki að auka hlutafé við kaupin. Ástæðan var sú að stórir erlendir bankar voru tilbúnir að fjármagna þá bræður að fullu sem verður að teljast veruleg traustsyf- irlýsing og sýni vel hversu styrkum fótum þeir bræður standa í bresku viðskiptalífi. Þeir bræður létu ekki þar við sitja, því fjár- festingafélag þeirra, Exista, leiddi þann hóp sem varð hlutskarpastur í keppni fjárfesta um kaup á Símanum. Exista er að stærstum hluta í eigu þeirra bræðra og eru stærstu eignir þess í Bakkavör, KB banka og Símanum, auk kjöl- festuhlutar í Flögu sem gengur nú í gegnum endurskipulagningu. Exista jók hlut sinn í KB banka nú í vetur og virðist sú aukning hafa verið vel tímasett og gengi bankans hækkað talsvert á þeim stutta tíma sem liðinn er frá kaupunum. BLENDIÐ ÁR BAUGS Jón Ásgeir Jóhannesson lenti í fjórða sæti í vali dómnefndar. Engum blöðum er um það að fletta að Baugur undir forystu Jóns Ásgeirs er á fleygiferð og eftir árið liggja stór viðskipti að baki í Bretlandi og í Danmörku. Baugur lauk kaupum á Big Food Group í upphafi árs sem eru ein stærstu við- skipti Íslandssögunnar. Fjárfesting Baugs í danska fasteignafélaginu Keops var vel heppnuð og spenn- andi verkefni framundan hjá félaginu á danska fast- eignamarkaðnum. Baugur hafði einnig forystu um kaup á danska vöruhúsinu Illum og stýrir nú för í stóru vöruhúsunum í miðborg Kaupmannahafnar. Árið hlýtur þó að teljast blendið í hugum Baugsmanna. Fyrirtækið varð að yfirgefa samn- ingsborðið við kaup á bresku verslunarkeðj- unni Somerfield þegar ákærur voru gefnar út í Baugsmálinu. Þar fóru önnur stórviðskiptin sem fyrirtækið hefur orðið af vegna þessa máls sem hefur hvílt yfir fyrirtækinu eins og skugginn. Undir þeim kringumstæðum hefur félagið þó unnið marga sigra á árinu og kemur væntanlega til með að skila góðu ársuppgjöri. Verulegur gengishagnaður er þegar orðinn af eignum í skráðum félögum í Kauphöll Íslands, svo sem Mosaic og FL Group, og ekkert sem bendir til annars en að Baugur verði áfram á fleygiferð. AÐRIR Á TOPPNUM Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson voru efstir þeirra sem eftir standa í vali dómnefndar. KB banki hefur verið á kunnuglegri hraðsiglingu á árinu og keypti bresku bankanna Singer og Friedlander. Aðrir sem kom- ust á topp tíu voru Hannes Smárason, forstjóri Fl Group, Sigurjón Þ. Árnason, forstjóri Landsbankans, Karl Wernersson, eigandi Lyfja og heilsu og kjölfestufjárfestir í Íslandsbanka og að síðustu Róbert Wessman, forstjóri Actavis. Fremstir í flokki viðskiptanna Margir voru kallaðir í vali dómnefndar Markaðarins á viðskiptamönnum ársins, enda árið það stærsta í íslenskri við- skiptasögu. Pálmi Haraldsson, bræðurnir í Bakkavör og Jón Ásgeir Jóhannesson komu í þessari röð á eftir Björgólfi Thor Björgólfssyni í valinu á manni ársins. BLENDIÐ ÁR Viðskiptin gengu vel hjá Baugi undir forystu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Baugsmálið hvíldi á honum og hindraði kaupin á Somerfield. MIKIL UPPBYGGING Bræðurnir í Bakkavör stóðu í stórræðum, áunnu sér traust breskra banka og urðu hlutskarpastir í kaupum á Símanum. GOTT ÁR HJÁ PÁLMA Pálmi Haraldsson kom sér rækilega á kortið og að baki er sérlega hagstætt ár í viðskiptum hjá félögum sem Pálmi fer fyrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.