Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 56
MARKAÐURINN 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR26 Þetta ár sem er að líða hefur verið mjög við- burðaríkt. Árið hófst eiginlega með látum og Avion Group var stofnað á fyrsta degi nýs árs. Við tók mikil vinna við að byggja upp stórt og voldugt fyrirtæki í fremstu röð í heiminum á sviði flutninga. Ákveðnum kafla í þessari vinnu er að ljúka nú undir árslok og Avion Group verður skráð í Kauphöll Íslands á næstu vikum. Þetta er búið að vera erfitt verkefni en mjög skemmtilegt. Avion Group hefur á að skipa einhverju öflug- asta alþjóðlega stjórnendateymi sem völ er á í dag. Við fengum svo ánægjulega staðfestingu á því og mörgu öðru sem við höfum verið að gera þegar félagið var valið annað framsæknasta fyrirtæki í Evrópu, nú í nóvember. Það var var nú ein stærsta stund ársins 2005 að vera í hópi lykilstjórn- enda Avion Group í Barcelona og taka við þessari viðurkenningu. En þetta er ekki bara viðurkenn- ing fyrir stjórnendur. Þetta er viðurkenning til alls þess fólks sem vinnur hjá Avion Group. Um leið lýsi ég yfir þakklæti mínu til alls starfsfólksins sem hefur lyft grettistaki og unnið frábært starf, hvort sem er hjá Eimskip, Atlanta eða í Excel airways – sem sagt Avion Group. Á NÝJU ÁRI Varðandi næsta ár, 2006 þá er ég bjartsýnn á gott gengi. Hvar sem er í heiminum eru flutn- ingar að aukast og þetta er mjög spennandi iðnaður að starfa í um þessar mundir. Mikil vinna mun fara í það hjá okkur að halda utan um vöxt félagsins sem hefur verið gríðarlega mikill á skömmum tíma. Annað stórt verkefni er að taka vel á móti ríflega 20 þúsund nýjum hluthöfum í Avion Group á fyrsta ársfjórð- ungi, þegar Straumur-Burðarás mun afhenda sínum hluthöfum bréf í Avion Group eins og um var samið þegar við keyptum Eimskip. Ég sé bara mikla vinnu og bjarta tíma fram- undan, hvort sem er fyrir Avion Group eða Ísland. Ég er bjartsýnn á árið og hlakka til að takast á við krefjandi verkefni og vil nota tækifærið og óska öllum Íslendingum gleði- legs og gæfuríks árs, með þakklæti fyrir það gamla. Gífurlega viðburðaríkt ár MAGNÚS ÞORSTEINSSON STJÓRNARFORMAÐUR AVION GROUP Magnús segir að ein stærsta stund ársins hafi verið þegar Avion Group var kjörið annað framsæknasta fyrirtæki Evrópu. Árangur Kaupþings banka á þessu ári hefur verið góður og er bankinn nú öflugri en nokkru sinni fyrr. Við lítum því til komandi árs með tilhlökkun enda á kröftug uppbygging sér stað á öllum markaðssvæðum bankans um þessar mundir. Ísland, Danmörk og Bretland eru nú mikil- vægustu markaðssvæði okkar. Bankinn hefur náð góðum árangri í Bretlandi og kaupin á Singer & Friedlander skapa ný og spennandi sóknarfæri. Um 500 sérfræðingar Singer & Friedlander og Kaupþings í Lundúnum munu samein- ast í nýjum skrifstofum bankans í hjarta borgar- innar um mitt næsta ár. Starfsemin í Danmörku stendur afar traustum fótum og á næsta ári mun verðbréfamiðlun bætast við núverandi starfsemi okkar þar. Þá bindum við miklar vonir við nýja og öfluga stjórn- endur sem nýlega hafa gengið til liðs við bankann í Svíþjóð og Noregi. KB MERKISBERI Kaupþing banki hefur verið merk- isberi nýrra tíma í bankaþjónustu hér á landi og við ætlum okkur að vera áfram í forystu í þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki. Við höfum stuðlað að verulegri lækkun á stærsta útgjaldalið íslenskra heimila, hús- næðislánum, og markmið okkar er að tryggja viðskiptavinum okkar áfram bestu kjör á því sviði. VANDASAMT VERKEFNI Atvinnulífið stendur traustum fótum um þessar mundir og rekstrarárang- ur fjölmargra íslenskra fyrirtækja er eftirtektarverður. Mikill viðskipta- halli bendir þó til ákveðins ójafnvægis í hagkerfinu. Krónan er sterk um þessar mundir og flestum er ljóst að núverandi gengi hennar er ekki við jafnvægismörk til lengri tíma litið. Stjórnvöldum og Seðlabanka bíður vandasamt verkefni við að tryggja áframhaldandi stöðugleika og mjúka lendingu hagkerfisins. EKKI EINBLÍNT Á NÁTTÚRUAUÐLINDIR Það er þó mín skoðun að íslenskt efnahagslíf hafi aldrei verið sterkara og fjölbreyttara en nú. Ásamt sjávar- útvegi er fjármálaþjónusta nú orðin mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinn- ar á mælikvarða landsframleiðslu. Við treystum því ekki einungis á náttúru- auðlindir landsins, heldur höfum við skapað ný verðmæti með þeim mann- auði sem býr í íslensku þjóðinni. Bankinn öflugri en nokkru sinni fyrr SIGURÐUR EINARSSON STJÓRNARFORMAÐ- UR KB BANKA Sigurður segir að stjórnvölum og seðlabanka bíði vandasamt verkefni að tryggja stöðugleika og mjúka lendingu hagkerfisins Ég vil að lokum nota tækifærið og óska landsmönnum öllum farsældar á komandi ári. Ásamt sjávarútvegi er fjármálaþjónusta nú orðin mikilvæg- asta atvinnugrein þjóðarinnar á mælikvarða lands- framleiðslu Við sækjum! S. 520 2220 www.efnamottakan.is Spillum ekki framtíðinni Við eyðum trúnaðargögnum Efnamóttakan býður fyrirtækjum upp á sérhæfða og umhverfisvæna þjónustu. Rík áhersla er lögð á fullkomið öryggi og trúnað. Efnamóttakan í Gufunesi er opin virka daga frá 7.30 – 16.15. Einkamál Dæmi: Trúna›arskjöl Filmur Tölvugögn M IX A • fí t • 5 1 0 0 2 V I Ð Á R A M Ó T Magnús Þorsteinsson stjórnarformaður Avion Group Um leið lýsi ég yfir þakklæti mínu til alls starfsfólksins sem hefur lyft grettistaki og unnið frábært starf Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.