Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 70
 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR30 menning@frettabladid.is ! Kl. 20.00Önnur sýning verður í Þjóð- leikhúsinu á Túskildingsóper- unni eftir þá Bertolt Brecht og Kurt Weill. > Ekki missa af ... ... sýningu Vesturports á Woyzeck í Borgarleikhúsinu, sem frumsýnd var í október, fyrst í London og síðan í Reykjavík. ... tónleikum til styrktar krabbameins- sjúkum börnum sem haldnir verða í Háskólabíói síðdegis á morgun. Meðal fjölmargra tónlistarmanna sem koma fram eru Bubbi Morthens, Sálin hans Jóns míns, Jónsi, Nylon, Heiða, Hild- ur Vala og Paparnir. ... styrktartónleikum fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan sem verða haldnir í Austurbæ annað kvöld. Fram koma Jagúar, Milljónamæringarnir ásamt Bogomil Font og Páli Óskari, Ragnheiður Gröndal og fjölmargir aðrir tónlistarmenn. Hugleikur er nú að ljúka sýningum á söngleik sínum Jólaævintýri Hugleiks í Tjarnarbíói. Þetta er viðamesta uppfærsla félagsins síðan fjölskyldusöngleikurinn Kolrassa sló í gegn árið 2002. Eins og nafnið bendir til er Jólaævintýri Hugleiks byggt á sígildri jólasögu Charles Dick- ens, A Christmas Carol, en eins og við mátti búast hafa Hug- leiksmenn snúið efninu upp á íslenskan veruleika, breytt fjármálamanninum Scrooge í óðalsbóndann Ebenezer, skrifaranum Cratchitt í vinnu- manninn Kristján og draugun- um í alþekkta íslenska móra og skottur. Tónlist setur sterkan svip á sýninguna, eins og jafnan í sýningum Hugleiks, og hefur hún nú verið gefin út á geisladisk. Um undir- leik sér hljómsveitin Forynjur og draugar, en þar eru meðal annars innanborðs félagar úr hljómsveitunum Ampop, Hraun og Innvortis, auk þss sem velflestir leikar- anna grípa í hljóðfæri þegar mikið liggur við. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðfangsefni leikhúsfólks frá því hún kom út árið 1843. Aðsókn hefur verið afbragðsgóð og nú eru síð- ustu forvöð að meðtaka jóla- boðskapinn um samhjálp og gleðina að gefa í gegnum sprellfjöruga sýningu Hugleiks. Síðustu sýningar verða 29. og 30. desember, og síðan lýkur ævintýrinu endanlega á þrettándanum, 6. janúar, eins og vera ber. Brátt er úti Jólaævintýri Vala Þórsdóttir hefur samið leikrit upp úr fimm smá- sögum Svövu Jakobsdóttur. Eldhús eftir máli heitir verkið og verður frumsýnt annað kvöld á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins. „Þegar ósk um ástina og fegurðina í lífinu snýst upp í andhverfu sínu, það er kannski helsta temað í þess- ari sýningu,“ segir Vala Þórsdóttir um Eldhús eftir máli - hversdags- legar hryllingssögur, leikverk sem frumsýnt verður annað kvöld á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Þjóðleikhúsið vill með þessari sýningu heiðra minningu Svövu, sem hefði orðið 75 ára í ár. „Mér finnst mikill heiður að því að fá þetta verkefni,“ segir Vala. „Ég var búin að lesa flest allt eftir Svövu fyrir og hef síðan lesið það allt saman mörgum sinnum.“ Verkið er unnið upp úr fimm af smásögum Svövu, Saga handa börn- um, Krabbadýr, brúðkaup, andlát, Veisla undir grjótvegg, Gefið hvort öðru og Eldhús eftir máli. Vala hefur engan veginn látið sér nægja að semja leikgerð upp úr þessum sögum heldur er um sjálf- stætt leikverk að ræða, innblásið af smásögum Svövu. Vala hófst handa í febrúar síðastliðnum og lauk verkinu í nóvember. Texti verksins er allur frá Völu kominn, en hún hún lætur sögu- þráðinn úr öllum sögunum halda sér og sú sérkennilega veröld sem sögurnar gerast í er að öllu leyti frá Svövu kominn. „Ég fylgi söguþráðunum nokk- uð nákvæmlega en hef svo bætt við sums staðar og tekið úr annars staðar. Ég flétta sögurnar saman þannig að persónurnar úr sögun- um þvælast á milli, þær hittast í öðrum sögum.“ Sem dæmi nefnir hún vinahóp- inn í Veislu undir grjótvegg. „Þær mæta allar í brúðkaups- veislu hjá dauðvona konunni í „Krabbadýr, brúðkaup, andlát“ og allar mæta þær í saumaklúbbinn hjá móður heilalausu mömmunn- ar í „Sögu handa börnum“. Þær flakka svona á milli og út úr því kemur skemnmtilega sérkennileg- ur vinahópur.“ Hryllingurinn býr jafnan undir niðri í þessum sögum, „en samt er þetta einhvern veginn svo óskap- lega venjulegt allt saman, og það er einmitt það sem er svo hrikalegt við þetta. Maður sér hversdags- leikann sem er orðinn svo skrýtinn eitthvað. Við reynum að halda bæði húmornum og furðuveröldinni, bæði hryllingnum og sorginni, blanda þessu saman og snúa svolít- ið upp á það.“ Leikarar í sýningunni eru Aino Freyja Järvelä, sem leikur nú í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu, Kjart- an Guðjónsson, Margrét Vilhjálms- dóttir, María Pálsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Þórunn Lárusdótt- ir. „Kjartan leikur alla karlana, hann er því með flesta karakter- ana, er svolítið á hlaupum og við leikum aðeins okkur með það. Stelpurnar skipta síðan hinum hlutverkunum nokkuð jafnt á milli sín, eru allar með stóran karaker og svo líka röð af minni karakter- um.“ Björn Thorarensen kemur nú til starfa við Þjóðleikhúsið í fyrsta sinn sem höfundur tónlistar. Lýs- ingu hannar Hörður Ágústsson, búninga gerir Katrín Þorvalds- dóttir, höfundur leikmyndar er Stígur Steinþórsson og leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. ■ Hryllingssögur úr hversdagslífinu ALLT SVO ÓSKAPLEGA VENJULEGT Úr sýningu Þjóðleikhússins, Eldhús eftir máli - hversdags- legar hryllingssögur. SVAVA JAKOBSDÓTTIR Hljómsveitin Benni Hemm Hemm treður upp á skemmtistaðnum Sirkus í kvöld klukkan 21.30. Eftir tónleikana mun Benedikt Her- mann Hermannsson, forsprakki sveitarinnar, þeyta skífum. Verð- ur hann í rokkgírnum og fær Elvis Presley væntanlega að hljóma töluvert. Páll Banine, sem var áður í hljómsveitinni Bubbleflies, mun einnig koma fram sem plötusnúð- ur. Aðgangseyrir á Sirkus er eng- inn. Benni Hemm Hemm á Sirkus STÓR HUMAR aðeins 3900 kr/kg. GLÆNÝ ÝSUFLÖK LÚÐUSNEIÐAR, LÚÐUFLÖK TÚNFISKUR OG LAX. opið alla laugardaga 10-14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.