Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 8
8 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR KJARAMÁL „Mér finnst það nokkuð ósanngjarnt að miða við árið 1988 því þá var breytt yfir í staðgreiðslu- kerfi og fyrstu tvö árin eftir það lækkaði frítekjumarkið vegna verð- bólgu,“ segir Pétur Blöndal, þing- maður Sjálfstæðisflokksins. Þar svarar hann ummælum forsvars- manna Landssambands eldri borg- ara sem sögðu hann fara með fleipur þegar hann sagði að skattbyrði hefði hækkað vegna þess að laun hefðu hækkað miðað við verðlag. „Þeir fá heppilega niðurstöðu með þessum samanburði. En það væri því réttara að miða við árið 1991 þegar ríkisstjórn Davíðs Odd- sonar tók við, sem eðlilegra er að ég svari fyrir. Enda er samanburður- inn ekki jafn krassandi þá. Svo ber einnig að geta þess að greiðslur úr lífeyrissjóðum, sem eru um þriðj- ungur af greiðslum til öryrkja og eldri borgara, hækka í samræmi við verðlag en alls ekki í takt við laun sem hafa hækkað langt umfram verðlag síðustu tíu ár. Þetta tel ég að sé viss vandi, sem erfitt sé að eiga við og kemur niður á þessum hópum en sjálfsagt er að leita lausna á,“ segir Pétur. Hann segir enn fremur að frá 1995 hafi laun hækkað um rúm fjörutíu prósent og því hafi skatt- byrðin þyngst en launþegar beri þó meira úr býtum. - jse Pétur Blöndal svarar forsvarsmönnum Landssambands eldri borgara: Ósanngjarn samanburður PÉTUR BLÖNDAL Segir Landssamband eldri borgara seilast langt til að ná í hagstæðan samanburð þegar það miði við árið 1988. VEISTU SVARIÐ 1 Hvaða brasilíski knattspyrnumaður var nýlega keyptur til Real Madrid? 2 Hverjir gefa kost á sér í fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Reykjavík? 3 Hvað heitir forseti Póllands? Svörin eru á blaðsíðu 46. SKATTABREYTINGAR Skattar lækka um áramótin og sumir skattar eru jafnvel felldir niður. Staðgreiðslu- hlutfallið lækkar um rúmlega eitt prósent tekjuárið 2006, eignar- skattur verður felldur niður og persónuafsláttur hækkar. Hátekjuskattur verður lagður á í síðasta skipti á næsta ári vegna tekna árið 2005 til leiðréttingar og lækkar hann úr fjórum pró- sentum í tvö prósentustig vegna tekna 2005. Skattgreiðendur hafa þegar greitt hátekjuskattinn að hluta til fyrir fram svo að næsta sumar kemur leiðrétting til fram- kvæmda vegna skattgreiðslna fyrir tekjur ársins 2005. Staðgreiðsluhlutfall lands- manna fer úr 37,73 prósentum í 36,72 prósent á næsta ári. Inni í því er lækkun útsvarshlutfallsins um 0,01 prósent. Eignarskattur- inn verður lagður á í síðasta skipti á næsta ári vegna ársins 2005. Aðeins fimmtán prósent þeirra tekjuhæstu hafa greitt hátekju- skattinn en hann er greiddur af tekjum einstaklings umfram tæpar 4,2 milljónir á ári og tæp- lega 8,4 milljónir árstekjur hjóna. Persónuafsláttur hækkar um 2,5 prósent. Við staðgreiðslu skatta á árinu 2006 verður per- sónuafslátturinn 348.343 krónur á ári, eða 29.029 á mánuði, en var áður 339.846 krónur yfir árið, eða 28.320 krónur á mánuði. Indriði H. Þorláksson ríkis- skattstjóri segir að gert sé ráð fyrir því að skattbreytingarnar þýði um átján milljarða króna tekjuskerðingu fyrir ríkissjóð en einnig þurfi að taka tillit til launa- breytinga. Ef launahækkanir séu meiri en gert hafi verið ráð fyrir í útreikningi lækki skattarnir minna. Launahækkanir skili sér fljótt í auknum sköttum. Sem dæmi um áhrif skatt- breytinganna má nefna hjón með fimm milljónir í árstekjur. Stað- greiðsluhlutfallið er 37,57 prósent. Þegar persónuafslátturinn hefur verið dreginn frá er skattgreiðsl- an 1.530.157 krónur. Þetta er gróf áætlun og ekki tekið tillit til ann- arra þátta, til dæmis barnabóta. Skattamál fyrirtækja breyt- ast ekkert um áramótin nema að niðurfelling eignarskatts gildir líka um þau. ghs@frettabladid.is STYTTIST Í FRAMTALSSKIL Mikið er að gera hjá á skrifstofu skattstjóra þegar fólk er að skila skattframtali. Skattar lækka og falla niður um áramótin Staðgreiðsluhlutfall skatta lækkar um áramót og eigna- og hátekjuskattur verða felldir niður. Persónuafslátturinn verður hækkaður. Skattbreytingarnar þýða tekjuskerðingu fyrir ríkissjóð en launahækkanir geta vegið þar upp á móti. Dagskrá fundarins er · Nýjar samþykktir sjóðsins · Önnur mál Sjóðfélagafundur Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn. Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda Sjóðfélagafundur Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda ver›ur haldinn a› Skúlagötu 17, Reykjavík á 2. hæ›, 28. desember 2005 og hefst kl. 16.00 h u n an g Reykjavík 21. nóvember 2005 Á eigin vegum um hátíðarnar ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 3 05 89 12 /2 00 5 Ekkert jafnast á við að aka um frjáls í bíl frá Hertz. Ef þú átt ekki bílinn sem hentar hverju sinni þá getum við hjá Hertz bætt úr því fyrir lægra verð en þig grunar. Það er óþarfi að eiga jeppa til að komast allt sem þú vilt fara. Engar áhyggjur, bara gleðilega hátíð. 50 50 600 • www.hertz.is Sölustaðir: Keflavíkurflugvöllur, Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri, Höfn, Egilsstaðir Hátíðartilboð Toyota Corolla frá 3.571 kr. á dag Toyota Rav4 frá 4.471 kr. á dag Toyota Land Cruiser frá 5.071 kr. á dag Innifalið: 100 km á dag og CDW (kaskótrygging). Verð miðast við 7 daga leigu. Tilboð gildir til 15.01.2006 Sjá nánar á hertz.is PÓLLAND, AP Pólska ríkisstjórn- in hefur farið fram á að forseti landsins, Lech Kaczynski, sam- þykki tilskipun um að pólska herliðið sem þjónað hefur í Írak verði þar í eitt ár til viðbótar en fjöldi hermanna fari úr 1.500 í 900. Frá þessu greindu talsmenn Póllandsstjórnar í gær. Með þessu er snúið við ákvörð- un sem fyrri ríkisstjórn var búin að taka um að kalla herliðið heim í ársbyrjun 2006. „Ríkisstjórnin hefur beðið forsetann að fram- lengja verkefni okkar í Írak,“ tjáði forsætisráðherrann Kazim- ierz Marcinkiewicz fréttamönn- um eftir ríkisráðsfund í Varsjá í gær. Marcinkiewicz sagði þetta mjög erfiða ákvörðun, en vera pólsku hermannanna í Írak er mjög óvinsæl heima fyrir. Sautj- án pólskir hermenn hafa látið lífið við skyldustörf í Írak. Framlenging dvalar pólska herliðsins í Írak væri George W. Bush Bandaríkjaforseta gleði- efni, en á síðustu misserum hefur mjög kvarnast úr þeim hópi þjóða sem tekið hafa þátt í hernámi Íraks við hlið banda- ríska herliðsins. - aa Ríkisstjórn Póllands um þátttökuna í hernámsliðinu: Pólskir hermenn verði áfram í Írak ÁKVÖRÐUN ENDURSKOÐUÐ Pólski forsætisráðherrann Kazimierz Marcinkiewicz, til vinstri, tilkynnir ákvörðunina í gær með hershöfðingjann Slawomir Koziej sér við hlið. Fyrri ríkis- stjórn hafði áformað að kalla hermennina heim í janúarlok. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SÁDI-ARABÍA, AP Um sextíu pró- sent Sádi-Araba vilja leyfa konum að aka bílum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun þar í landi. Þetta er þvert á vilja þarlendra stjórn- valda en í síðustu viku sagði Bin Abdul-Aziz krónprins að ekki væri á stefnuskránni að leyfa konum að aka sjálfar. Ekki er við því að búast að niðurstöður könnunarinnar breyti afstöðu ráðamanna. Frelsi kvenna í Sádi-Arabíu er mjög takmarkað en þær mega hvorki kjósa né bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningum. Þá er þeim bannað að ræða við karl- menn sem þær þekkja ekki. ■ Sádi-Arabar: Vilja leyfa konum að aka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.