Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 77

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 77
MIÐVIKUDAGUR 28. desember 2005 37 Fyrir fólk sem fær ekki nægju sína af stórum og loðnum öpum í bíó þessa dagana (og er búið að gefast upp á skemmtanalífinu) er alltaf hægt að bregða sér út á leigu og finna fleiri myndir um apann geðstirða, King Kong. Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna hina upprunalegu King Kong- kvikmynd frá 1933, sem var tímamótaverk í tæknibrellum og segja margir að betri tækni- brellumynd hafi ekki komið út fyrr en með Star Wars rúmum fjörutíu árum seinna. Fram- hald var gert sama ár og nefnd- ist myndin Son of Kong. Þar er aftur snúið til Höfuðkúpueyju og finna menn þar son Kong. Hver mamman er skal ósagt látið en þar sem sonurinn er albínói er aldrei að vita nema það sé sjálf leikkonan Ann Darrow. Minna var fjallað um ástarmál Kong í hinni japönsku King Kong vs. Godzilla og hann þess í stað lát- inn gera það sem hann gerir best, berja risaeðlur í spað. Menn sem ekki hafa eigin ástarmál til að huga að deila enn þann dag í dag um hvor þeirra sé sterkari. Undarlegasta King Kong- myndin er vafalaust King Kong Escapes frá árinu 1967. Myndin er amerísk-japönsk framleiðsla og í þetta sinn er Kong dáleiddur og gerður að námuverkamanni, en sleppur laus og þarf að berj- ast við vélmennaeftirmynd af sjálfum sér ofan á turni í Tókíó. Einnig reynir skrímslið Goro- saurus að éta kærustu Kong (aðra litla ljósku), sem reynist afar óhollur skyndibiti. Gorosaurus er kjálkabrotinn af apanum en birt- ist aftur ári síðar ásamt Godzilla í myndinni Destroy All Monsters. Kong kom ekki aftur til Holly- wood fyrr en árið 1976, þegar upprunalega myndin var endur- gerð. Breytingarnar voru þó talsverðar, hér er hann ofsóttur af illum olíufyrirtækjum í stað kvikmyndamanna og endar feril sinn ofan á World Trade Center. Sérstaklega er fróðlegt að sjá loftárás á tvíburaturnana í ljósi liðinna atburða og olíufyrirtækin halda víst áfram að misnota hör- undsdökka þriðjaheimsbúa enn þann dag í dag. Jessica Lange er hér í sínu fyrsta hlutverki ásamt stórleikurum eins og Jeff Bridges og Charles Grodin. Verr heppnað var framhaldið, Kong Lives, frá 1986. Hér kemur í ljós að Kong lifði af fallið og hefur verið í dái í tíu ár. Skipt er um hjarta í honum og þegar kvenkynsapi finnst sprettur hann upp á ný, knúinn áfram af gangráðinum og greddunni. Terminator-mamman Linda Hamilton leikur hér konuna sem keppir um ástir Kong, en fellur í skuggann af kvenapanum. Sami höfundur og skrifaði hið upprunalega handrit að King Kong, Merian C. Cooper, sneri aftur á kunnulegar slóðir árið 1949 þegar hann gerði aðra mynd um risaapa, Mighty Joe Young. Myndin var endurgerð árið 1998 með þeim Bill Paxton og Charlize Theron, en Jói er hálfgerður kettlingur við hliðina á Kong konungi. valurg@frettabladid.is Apaspil: Kvikmyndasaga King Kong KING KONG Apinn úrilli hefur margoft birst á breiðtjaldinu. FRÉTTIR AF FÓLKI Söngvarinn Michael Jackson hefur samþykkt að taka þátt í gerð raunveruleikaþáttar sem fjalla á um fjöl- skyldu hans. Mun hann taka stóran þátt í gerð fyrsta þáttarins og koma lítillega við sögu í næstu þáttum. Þættirnir fjalla hins vegar að mestu leyti um bróður Jacksons, Tito og syni hans þrjá og tilraunir þeirra til þess að kom- ast inn í tónlistariðn- aðinn. Latoya Jackson og Jermaine Jackson, systkini Michaels, munu einnig koma fram í þáttunum sem verða sýndir vestan- hafs í vor. Knattspyrnumennirnir eru ekki á flæðiskeri staddir fjárhagslega og Wayne Rooney er svo sannarlega einn af þeim launahærri í bransanum. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum götublaðsins The Sun mun hann hafa keypt hest handa kærustu sinni Coleen Mcloughlin, að upphæð um 70.000 punda. Jafngildir það um 8 milljónum íslenskra króna. Vinir fótboltahetjunnar segja ástæður fyrir gjöfinni hina miklu ást Roon- eys á unnustu sinni. ,,Hann er rómant- íker og vill bara að henni finn- ist hún vera sérstök.“ Loksins, loksins, gætu einhverjir hugsað en í kvöld hefst hjá Ríkis- sjónvarpinu þáttaröðin Extras sem er úr smiðju Ricky Gervais og Stephen Merchant, þeirra sömu og eiga heiðurinn af The Office. Þættirnir hafa slegið í gegn á Bret- landi en þeir segja frá aukaleikar- anum Andy, sem hefur ekki fengið eitt einasta hlutverk í kvikmynd síðan hann hætti hjá bankanum fyrir fimm árum vegna þess að hann ætlaði að „meika“ það í kvik- myndum. Hann hefur nú atvinnu af því að vera bakgrunnsleikari og kemst í kynni við stórstjörnur með grátbroslegum afleiðingum. Fjöldi þekktra leikara kemur við sögu í þáttunum og nægir þar að nefna Samuel L. Jackson og Ben Stiller. ■ Extras hefur göngu sína RICKY GERVAIS Í kvöld hefjast sýningar á nýjustu þáttaröð hans, Extras, sem hefur slegið í gegn á Bretlandi. Gamanleikarinn Mike Myers og eiginkona hans Robin Ruzan eru að skilja eftir tólf ára hjónaband. Að sögn fjölmiðlafulltrúa þeirra verða þau áfram nánir og góðir vinir. Myers og Ruzan, sem er rithöf- undur og leikkona, giftu sig í maí árið 1993. Þau eru barnlaus. Myers er þekktur fyrir kvikmyndir á borð við Austin Powers, Wayne’s World og Dr. Seuss’ The Cat in the Hat. Auk þess hefur ljáð tröllinu Shrek rödd sína í tveimur myndum. ■ Mike Myers skilinn MIKE MYERS Leikarinn Mike Myers er skilinn eftir tólf ára hjónaband.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.