Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 6
6 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR ÚKRAÍNA, AP Orkumálaráðherra Úkraínu sagði í gær að bráða- birgðasamkomulag hefði náðst í deilu við rússneska jarðgas-einok- unarfyrirtækið Gazprom um verð á gasi til Úkraínu. Talsmaður Gaz- prom þvertók hins vegar fyrir að nokkurt slíkt samkomulag hefði verið gert. Fyrirtækið hefur hótað að skrúfa fyrir alla sölu á gasi til Úkraínu um áramótin nema Úkr- aínumenn greiði fullt heimsmark- aðsverð fyrir það. Fram til þessa hafa Úkraínumenn notið svipaðra kjara í viðskiptum við Gazprom og Rússar sjálfir. Gazprom sér Úkraínumönnum fyrir um þriðj- ungi alls gass sem þeir nota. Deilan um gasverðið endur- speglar versnandi samskipti grannríkjanna tveggja frá því Viktor Jústsjenkó komst til valda í Kíev í „appelsínugulu bylting- unni“ fyrir rúmu ári, en hann hefur síðan sett stefnuna á aðild að Evrópusambandinu og Atlants- hafsbandalaginu. Deilan hefur valdið áhyggjum víða um Evrópu þar sem um helm- ingur af öllu jarðgasi sem notað er í aðildarríkjum Evrópusambands- ins kemur frá Gazprom um gas- leiðslur sem liggja um Úkraínu. Úkraínski forsætisráðherrann Júrí Jekhanurov lýsti því yfir í gær að úkraínsk yfirvöld áskildu sér rétt til að taka til eigin þarfa fimmtán prósent af því gasi sem sent er vestur í gegn um landið, sem flutningsgjald. Talsmenn Gazprom halda því fram að verðhækkunin til Úkraínu og annarra fyrrverandi Sovétlýð- velda sé þáttur í að færa rekstur fyrirtækisins til markaðsum- hverfis nútímans. Núverandi ráða- menn í Kíev eru hins vegar ekki í vafa um að hin boðaða hækkun úr 50 dollurum á 1000 rúmmetra í 220-230 dollara sé hugsuð sem refsing fyrir að vilja losna undan pólitísku forræði Moskvu. Annað útspil úkraínskra yfir- valda í deilunni er hótun um að hækka verulega leigugjald það sem rússneski Svartahafsflotinn greiðir fyrir afnot af hafnarað- stöðu í Sevastopol á Krímskaga. Rússneski varnarmálaráðherr- ann Sergei Ívanov varaði Úkraínu- stjórn við slíkri ráðstöfun. Sagði hann hana geta haft „grafalvar- legar afleiðingar“. ■ Gassala Rússa til Úkraínu í uppnámi Fyrirtækið Gazprom í Rússlandi hefur hótað að skrúfa fyrir alla sölu á jarð- gasi til Úkraínu fallist Úkraínumenn ekki á að greiða fullt heimsmarkaðsverð. Ráðamenn í Kíev telja þetta vera pólitískar refsiaðgerðir og hóta mótaðgerðum. VERÐHÆKKUN MÓTMÆLT Kíevbúar mótmæla fyrirhugaðri verðhækkun á gasi frá Rússlandi fyrir utan rússneska sendiráðið í úkraínsku höfuðborginni í gær. Á borðanum stendur: „Gas-kúgun mun ekki virka.“ MYND/AP KJÖRKASSINN Borðaðir þú rjúpur um jólin? Já 18% Nei 82% SPURNING DAGSINS Í DAG Á að taka sérstakt gjald fyrir að aka á nagladekkjum í Reykjavík? Eldur í þvottavél Eldur kom upp í þvottavél í íbúð í Hafnarfirði um miðjan gærdag. Slökkvilið var kallað út en búið var að ráða niðurlögum eldsins þegar það kom á staðinn. Reykræsta þurfti íbúðina. SLÖKKVILIÐ HJÁLPARSTARF Alþjóða Rauði kross- inn hefur gefið út endurskoðaða aðgerðaáætlun til að aðstoða fórn- arlömb flóðanna við Indlandshaf á annan í jólum í fyrra sem urðu að minnsta kosti 227.000 manns að bana. Yfir 2,2 milljónir manna urðu á einhvern hátt fyrir flóðunum, sem orsökuðust af miklum neðan- sjávarskjálfta við Indónesíu. Rauði krossinn hefur gefið út fimm ára áætlun sem gerir ráð fyrir að jafnvirði 100 milljarða íslenskra króna verði sett í hjálpar- starf vegna flóðanna, þar sem yfir helmingur á að fara í endurupp- byggingu á húsnæði og lífsviður- væri fólks. „Áætlun þessi er unnin eftir ráðleggingum stjórnvalda í viðkomandi löndum, Sameinuðu þjóðanna og síðast en ekki síst þeirra samfélaga sem urðu fyrir barðinu á flóðunum,“ segir á vef Rauða krossins hér. - óká Hamfarirnar í desember í fyrra: Aðgerðaáætlun endurskoðuð ATVINNUMÁL „Ég tel að það sé hluti af eftirlitshlutverki ráðuneytis gagnvart þeim stofnunum sem undir það heyra að það bregðist við rökstuddum kvörtunum eins og þessum,“ segir Ragnar Hall hæsta- réttarlögmaður um erindi sem tvö stéttarfélög hafa sent umhverfis- ráðuneytinu vegna þeirrar stöðu sem uppi hefur verið hjá Landmæl- ingum Íslands. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá voru tveir sálfræðingar fengnir til að gera úttekt á sam- skiptum yfirmanna og undirmanna Landmælinga. Tvö stéttarfélög, Félag íslenskra náttúrufræðinga og Útgarður, stóðu að framkvæmd úttektarinnar í kjölfar þess að sjö manns hættu hjá stofnuninni. Nið- urstöður úttektarinnar voru meðal annars þær að hluti starfsmanna teldi sig hafa orðið að þola einelti að hálfu yfirmanna. Þegar þær lágu fyrir sendu stéttarfélögin erindi til umhverfisráðuneytisins, sem nú hefur svarað. Telur ráðuneytið sig ekki geta hlutast til um málefni þeirra starfsmanna sem hættir séu hjá stofnuninni, til að mynda um öflun meðmæla frá henni þeim til handa. - jss Hæstaréttarlögmaður um stöðuna hjá Landmælingum ríkisins: Ráðuneyti ber að grípa inn í LANDMÆLINGAR Mikill kurr hefur verið meðal starfsfólks Landmælinga Íslands á undanförnum misserum. Meðfylgjandi mynd tengist ekki efni fréttarinnar. BEIRÚT, AP Líbönsk yfirvöld hafa Sýrlending í haldi sem grunaður er um að hafa lagt á ráðin um morðið á Gibran Tueni, þingmanni og rit- stjóra, fyrr í þessum mánuði. Símtöl úr farsíma mannsins fyrir og eftir bílsprengjuárásina renna stoðum undir grun um aðild hans að málinu. Tueni var í hópi líbanskra stjórn- málamanna sem gagnrýnt hafa sýr- lensk stjórnvöld og uppskorið bana- tilræði fyrir vikið. Fjórtán slík tilræði hafa verið framin á árinu, hið alvarlegasta í febrúar þegar Rafik Hariri, fyrrverandi forsætis- ráðherra, var ráðinn af dögum. ■ Morðið á Gibran Tueni: Sýrlendingur handtekinn ELDSVOÐI Eldur kom upp í metan- gasbíl sem var á ferð eftir Miklu- brautinni í Reykjavík gær. Bíllinn er annar metangasbíll- inn sem brennur á nokkrum mán- uðum og eru þeir báðir af gerðinni Citroën Berlingo. Brimborg er umboðsaðili Citro- ën og er Agli Jóhannssyni, fram- kvæmdastjóra Brimborgar, ekki kunnugt um að vandamál hafi komið upp annars staðar vegna þessarar tegundar. Eftir að fyrri bíllinn brann komu þrír sérfræð- ingar á vegum framleiðandans til landsins og rannsökuðu bílinn en niðurstöður hafa ekki enn borist Brimborg. Þó er talið að kviknað hafi í út frá rafkerfi og því telur Egill alls óvíst að brunarnir tveir tengist því á nokkurn hátt að bíl- arnir eru metanbílar. Þessir tveir brunar eru þeir einu sem fyrirtækinu hefur borist fregnir af, en að sögn Egils eru um áttatíu til hundrað bílar af þessari tegund seldir árlega. Um fimmtíu metangasbifreið- ar eru í umferð á Íslandi, þar af um tuttugu af Citroën-gerð. - æþe Eldur kom upp í metangasbíl í annað skipti á stuttum tíma: Annar Citroën-bíllinn sem brennur SLÖKKVILIÐ AÐ STÖRFUM Vel gekk að slökkva eldinn og ekkert hættu- ástand skapaðist. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.