Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 2
2 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� KJARAMÁL Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra óskaði eftir því við Kjaradóm í gær að hann tæki sem fyrst til endurskoðunar úrskurð sinn frá 19. desember um laun þjóðkjörinna fulltrúa. Beiðni for- sætisráðherra nær ekki til dóm- ara, sem einnig fengu launahækk- un. „Ég tel að það sé ekki við hæfi að framkvæmdavaldið og löggjaf- arvaldið hlutist til um kjör dóm- ara. Við verðum að virða sjálf- stæði dómstólanna,“ sagði Halldór eftir fund með forystumönnum Alþýðusambands Íslands og Sam- taka atvinnulífsins í gær. Erindi forsætisráherra var sent Kjaradómi að höfðu samráði við formenn stjórnmálaflokkanna, formenn þingflokka og forseta Alþingis og segir Halldór að því hafi verið vel tekið. „Í framhaldi af þessu vænti ég þess að Kjara- dómur fallist á erindi okkar og taki úrskurðinn til endurskoðun- ar. Hér er mikið í húfi. Það liggur fyrir að aðilar vinnumarkaðarins telja að þessi úrskurður geti vald- ið miklum óróa á vinnumarkaði. Þar eru undir efnahagsmál þjóð- arinnar.“ Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, sagði eftir fundinn að víst væru þetta skref í rétta átt. „Við teljum að Kjaradómur hefði í mesta lagi átt að seilast í þær breytingar sem eru að finna í launavísitölu Hag- stofunnar.“ Grétar telur að ekki beri að undanskilja dómara við endur- skoðun úrskurðar Kjaradóms og kveðst hafa komið þeim athuga- semdum á framfæri við ráðherr- ana. Ingimundur Sigurpálsson, for- maður Samtaka atvinnulífsins, segir samtökin sátt við viðbrögð ríkisstjórnarinnar. „Það eru skýr skilaboð að stjórnvöld vilja sporna gegn keðjuverkun sem augljós- lega hefur verið að byggjast upp undanfarnar vikur í sambandi við launabreytingar og launahækkan- ir,“ segir Ingimundur. „Þetta var röng ákvörðun á röngum tíma. Hún gengur of langt í þessum hækkunum miðað við það sem er hér á ferðinni í umhverfinu, miðað við niðurstöðu vinnumark- aðarins 15. nóvember, miðað við önnur viðkvæm mál í kjarasamn- ingum og miðað við að samningar koma aftur til endurskoðunar í nóvember á næsta ári,“ sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra, sem einnig sat fundinn með aðilum vinnumarkaðarins í gær. Kjaradómur kemur saman til fundar vegna málsins strax í dag. johannh@frettabladid.is Laun ráðherra og þingmanna lækki Forsætisráðherra biður Kjaradóm um að endurskoða úrskurð sinn um launa- kjör ráðherra, þingmanna og forseta Íslands. Forseti Alþýðusambands Íslands segir þetta skref í rétta átt en vill að endurskoðunin nái einnig til dómara. SPURNING DAGSINS Runólfur, er Árni Þór harður nagli? „Vafalítið, en það er spurning hvort hann sé öryggisnagli?“ Runólfur Ólafsson er framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Búist er við því að sérfræðingar á vegum umhverf- isráðs leggi til að gjald verði lagt á þá sem aka á nagladekkjum. Árni Þór Sigurðsson er formaður umhverfisráðs. PÁFAGARÐUR Páfagarður hefur varað kaþólskar konur við því að giftast múslimum, að því er fram kemur á vefsíðu BBC. Í tveimur skjölum, sem kardín- álinn Stephen Hamao hefur sent frá sér, segir hann frá slæmri upplifun evrópskra kvenna sem giftast múslimum. Vandamálin stigmagnist síðan ef pörin flytji til íslamsks ríkis. Kaþólska kirkjan hefur hing- að til hvatt til aukinna samskipta milli fólks sem aðhyllist ólíka trú og því þykir tónninn í bréfi kard- ínálans óvenju hvass. Á þessu ári hafa tuttugu þúsund ítölsk pör, sem aðhyllast ólík trúarbrögð, verið gefin saman. ■ Viðvörun úr Páfagarði: Giftist ekki múslimum BENEDIKT XVI Páfi og menn hans vara við hjónaböndum kaþólikka og múslima. MYND/AP LÖGREGLA Eigandi byssusafns sem lögreglan lagði hald á við húsleit í Vogum fyrir skömmu hafði ekki leyfi fyrir þremur byssanna. Í byssusafninu voru bæði not- hæfar byssur sem og ónothæfir safngripir. Byssurnar þrjár sem maðurinn hafði ekki tilskilin leyfi fyrir voru allar nothæfar. Að sögn lögreglu er málið enn í rannsókn. Mál byssusafnarans er varðar brot á dýrafriðunarlögum á Húsa- víkursvæðinu er enn í rannsókn. - æþe Byssusafnarinn frá Húsavík: Skorti leyfi fyrir þremur byssum LÖGREGLA Maður á fimmtugsaldri og kona á fertugsaldri fundust látin í bakhúsi við Frakkastíg í Reykjavík um miðjan dag í gær. Talið er að fólkið hafi látist af of stórum skammti eiturlyfja. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir málið í rannsókn en ekkert hafi enn komið fram sem bendi til þess að um glæpsamlegt athæfi hafi verið að ræða. - óká Maður og kona fundust látin: Orsökin talin ofneysla lyfja LÍKIN FJARLÆGÐ Lögregla hafði nokkurn viðbúnað vegna líkfundarins í gær og lokaði af svæði í grennd við húsið þar sem fólkið lést. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJARAMÁL „Ég hef ekkert heyrt meira frá mínu fólki yfir hátíðirn- ar en það ætti að skýrast næstu daga og um áramótin hvort fleiri taka þessa ákvörðun,“ segir Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leik- skólakennara. Allnokkrir leikskólakennarar í Reykjavík hafa tilkynnt um upp- sagnir sínar frá og með næstu ára- mótum vegna óánægju með samn- inga borgaryfirvalda við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar. Þeir samningar þýða í stöku tilfellum að ófaglært starfsfólk á leikskólunum hefur betri kjör en fagmenntað fólk í Félagi leikskóla- kennara. Hafa margir fengið nóg af þeirri lítilsvirðingu sem þeir segja þetta sýna menntun leikskólakenn- ara og ákveðið að halda á ný mið. Björg segir að þó hún hafi ekki heyrt um fleiri sem íhugi uppsagnir geti vel verið að svo sé. „Það verð- ur orðið ljóst um áramótin hversu margir ætla að hætta og þá líka hvar áhrifin verða mest en auðvitað auðveldar þetta ekki yfirvöldum að fá hæft fólk í störf á leikskólum.“ - aöe Kjaramál leikskólakennara skýrast um áramótin: Kennarar hafa sagt upp FLUGELDAR Varamaður í almanna- varnarnefnd höfuðborgarsvæð- isins gagnrýnir yfirvöld fyrir að leyfa sölu á tilteknum teg- undum flugelda. Kristján Svein- björnsson, sem er varamaður í nefndinni fyrir hönd Álftaness, vill banna tilteknar skotkökur, meðal annars eina þá vinsælustu á markaðnum sem nefnist Víti. Kristján hefur meðal annars átt í bréfaskriftum við embætti Ríkislögreglustjóra og krafist aðgerða. Hann segir töluvert hafa borið á því undanfarin ár að unglingar kaupi skotkökur sem hægt sé að búta í sundur. Þannig verði þeir sér úti um 25 sprengihólka í stað einnar köku. Hann segir þessar kökur afar öflugar og er óánægður með að lögregla sýni því engan skilning að taka þær af markaði. „Ég er aðeins að benda á að þessar ákveðnu kökur sem nefnast Víti eru, ásamt tveimur öðrum tegundum, þær verstu,“ segir Kristján. „Þær eru ekki alveg eins og aðrar því þær eru öflugri og springa öðruvísi en margar aðrar tegundir.“ Guðný Guðmundsdóttir, starfsmaður Gullborgar sem flytur inn skotkökuna Víti, segir að allar skotkökur séu svipaðar og hægt sé að rífa allar tegundir þeirra niður standi vilji til þess. „Þetta hefur löngum verið vandamál og fylgt hverjum áramótum. Það eru alltaf ein- hverjir sem standa í slíku fikti og fátt annað að gera en brýna fyrir foreldrum að fylgjast með hvað unglingarnir þeirra eru að gera. Ef koma ætti í veg fyrir slíkt þyrfti að banna sölu á öllum kökum í framtíðinni.“ - aöe Varamaður í almannavarnarnefnd gagnrýnir aðgerðarleysi lögreglu: Vill banna vinsæla skotköku AÐGÁT SKAL HÖFÐ Foreldrar eru hvattir til að brýna fyrir unglingum að fikta ekki með flugelda og skotkökur. RÁÐHERRAR HITTU FORYSTUMENN ASÍ OG SAMTAKA ATVINNULÍFSINS Í GÆR Forsætisráð- herra tekur undir með aðilum vinnumarkaðarins um að úrskurður Kjaradóms valdi óróa á vinnumarkaði. „Þar eru undir efnahagsmál þjóðarinnar.“ PEKING, AP Tian Fengshan, fyrr- verandi ráðherra í kínversku rík- isstjórninni, hefur verið dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir stórfellda spillingu. Hann var sakfelldur fyrir að hafa þegið jafnvirði 34 milljarða króna í mútur á árunum 1995-2003 þegar hann gegndi emb- ættum landsstjóra og ráðherra. Tian slapp við harðari refsingu þar sem hann „játaði glæpina og iðraðist,“ að því er Xinhua-frétta- stofan hermir. Spilling er landlæg í Kína og embættismenn ráða þar lögum og lofum. Talið er að á þessu ári hafi 2.200 milljarðar króna runnið ólöglega ofan í vasa þeirra. ■ Fyrrverandi ráðherra í Kína: Lífstíðardómur fyrir spillingu LEIKSKÓLABARN AÐ LEIK Björg Bjarnadóttir segist ekki vita til þess að fleiri fagmennt- aðir leikskólakennarar hafi ákveðið upp- sagnir frá og með áramótum en það verði ljóst næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.