Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 28.12.2005, Qupperneq 10
10 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR ÚTVEGSMÁL Loðnuleit Árna Friðriks- sonar, skips Hafrannsóknastofnunar- innar, er lokið þetta árið. Skipið kom inn til hafnar á Reyðarfirði um dag- inn úr nokkurra daga leit sem skilaði litlum árangri. Skipið á að liggja þar við bryggju til 2. janúar en þá er fyr- irhugað að hefja leit að nýju. Hjálmar Vilhjálmsson hjá nytja- stofnasviði Hafrannsóknastofnun- arinnar segir að henni hafi borist fregnir um daginn af því að svo- kallaðir leitarbátar, sem eru veiði- bátar sem er úthlutað litlum kvóta sem laun fyrir sína leit, hafi verið að fiska úti af norðausturhorninu og því hafi verið haldið þangað. En þó að rannsóknir á því svæði hafi sýnt einhverja aukningu væri sú aukning alltof lítil til að hægt væri að útdeila kvóta að sögn Hjálmars. Í raun hefur svo lítið komið inn af loðnu að undanförnu að Hjálmar segir framhaldið afar tvísýnt, því eins og staðan er núna getur Haf- rannsóknastofnunin ekki gefið út upphafskvóta. Skýring þess að loðn- an finnst ekki telja menn að sé kald- ari sjór en venjulega og mikill hafís sem er á helstu leitarmiðunum um þessar mundir. Björgólfur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, segir skip frá vinnsl- unni ekkert hafa veitt síðan á síð- ustu vetrarvertíð og að þar ríki mikil óvissa um framhaldið. Það yrði auðvitað gríðarlegt áfall fyrir fyrirtækið ef loðnan finnst seint eða jafnvel alls ekki. „Það er eitthvað sem við leyfum okkur ekki að hugsa um. Við reiknum ekki með öðru en að það verði vetrarvertíð, nema að það hafi eitthvað meiriháttar gerst í hafinu en það var ekkert sem sagði til um að þessi staða gæti komið upp.“ Hjálmar segir að ef fjármagn hefði verið aukið í leitirnar, eins og lagt var til á sínum tíma, væri Hafrannsóknarstofnun miklu betur í stakk búin að meta stærð loðnu- stofnsins. „Við skrifuðum á sínum tíma rannsóknaráætlun um vöktun til fimm ára, sem hefði kostað um 80 til 100 milljónir á ári, en þessi áætlun fór einhvers staðar ofan í skúffu og hefur ekki sést síðan þó að hún hafi verið lögð fram á hverju einasta ári síðan, en það er fyrst núna sem byrjað er að tala um að eitthvað þurfi að gera.“ Hjálmar er þó bjartsýnn á að leitin glæðist á nýja árinu, því hann segir að ástandið geti í það minnsta ekki versnað. - æþe Áhyggjur af loðnuleysi Hafrannsóknastofnunin hefur fundið lítið af loðnu undanfarið. Ekki er hægt að gefa út kvóta. Loðnu- leit á að hefjast að nýju strax eftir áramót. LOÐNA Lítið sem ekkert hefur fundist af loðnu undanfarið en áframhaldandi leit er fyrir- huguð hjá Hafró í byrjun janúar. CANBERRA, AP Steingerð fótspor sem fundist hafa á bökkum stöðu- vatns í Nýja Suður-Wales í Ástral- íu og talin eru tuttugu þúsund ára gömul gefa einstaka innsýn inn í líf íbúa svæðisins á þessum tíma. Fyrstu fótsporin í Mungo-þjóð- garðinum fundust fyrir algera tilviljun árið 2003 og síðan þá hafa vísindamenn grafið upp 457 spor til viðbótar. Í síðustu viku voru svo niðurstöðurnar kynntar fræðimönnum og almenningi. Ein fótsporin eru talin tilheyra 194 sentimetra háum karlmanni sem hljóp á tæplega þrjátíu kíló- metra hraða á klukkustund á eftir óþekktri bráð og sést greinilega hvernig leðjan hefur spýst á milli tánna á honum. Hjá öðrum er jörðin bæld og er álitið að þar hafi kengúrur og emúar verið dregin eftir jörðinni. Af einni sporaþyrpingunni má ráða að nokkrir fullorðnir einstaklingar hafi gengið beint áfram á meðan börn þeirra hlupu stefnulaust í kringum þau. „Ég vil komast að því hvert þessi spor liggja og hvað þetta fólk hafði í hyggju,“ sagði Steve Webb, próf- essor í áströlskum fræðum við háskóla í Gold Coast City, en hann hafði veg og vanda af rann- sóknunum. - shg SPOR Í SÖGUNNI Eigendur sporanna voru uppi fyrir um það bil 19.000-23.000 árum. þegar ísöld stóð sem hæst. Þá voru á þess- um slóðum frjósamar mýrar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fótspor frá ísöld finnast á bökkum ástralsks stöðuvatns: Veita innsýn í líf manna á ísöld DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur sýknað verktakafyrirtækið Ístak af bótakröfu smiðs sem féll milli gólfbita og niður á steinsteypt gólf. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt fyrirtækið til að greiða smiðnum tæpar 2,3 milljón- ir króna. Hæstiréttur viðurkenndi að aðstæður á vinnustað mannsins hefðu verið hættulegar og betur hefði mátt standa að málum, en maðurinn þurfti að stikla á milli gólfbitanna til að komast að vegg sem hann var að einangra. Um leið vísaði dómurinn til þess að maðurinn væri húsasmíða- meistari með allnokkra reynslu af smíðastörfum. Honum átti að vera hættan ljós, segir Hæstiréttur og óþarfi af Ístaki að gefa honum sérstök fyrirmæli eða leiðbein- ingar vegna hennar. - óká Ístak sýknað í Hæstarétti: Smiður átti að gæta sín betur STYRKIR Flugbjörgunarsveit Reykja- víkur hefur hlotnast styrkur frá Icelandair í formi ávísana á flug- miða hjá félaginu. Flugbjörgunarsveit Reykja- víkur er ein stærsta og öflugasta björgunarsveit landsins og hefur árlega sent nokkra félaga á nám- skeið til útlanda. „Þessi höfðing- lega gjöf Icelandair er því mikil lyftistöng fyrir sveitina,“ segir í fréttatilkynningu flugbjörgunar- sveitarinnar. Styrkurinn kemur í stað jóla- korta sem Icelandair hefur sent viðskiptavinum sínum undanfar- in ár. - sh Icelandair veitir styrk: Björgunarsveit fær frítt flug PRINSESSUR Á KANARÍ Letizia krónprins- essa af Spáni heldur á nýlega fæddri dóttur sinni og Filippusar krónprins, Leonor, í jólafríi fjölskyldunnar á Lanzarote í Kanaríeyjaklasanum í gær. MYND/AP CHILE Hæstiréttur Chile hefur úrskurðað að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra, sé nógu frískur til þess að mæta fyrir rétt vegna pólitískra morða á áttunda áratugnum. Talið er að um þrjú þúsund andstæðingar herforingja- stjórnarinnar hafi verið myrtir á meðan á valdatíma hennar stóð á árunum 1973-1990. Pinochet er einnig ákærður fyrir skattsvik en talið er að hann hafi átt um 130 leynilega bankareikninga í Bandaríkjunum þar sem tugmillj- ónir króna er að finna. Ef Pinochet verður fundinn sekur mun hann eflaust eyða síðustu dögum ævi sinnar á bak við lás og slá. ■ Augusto Pinochet: Nógu frískur fyrir réttarhöld FARLAMA Áfrýjunarkröfu hins níræða fyrr- verandi einræðisherra var hafnað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BYGGÐARMÁL Sturla Böðvarsson samgönguráðherra fellst ekki á ósk þriggja þingmanna í Norð- vesturkjördæmi um fund með forsvarsmönnum Íslandspósts, heimamönnum við Ísafjarðardjúp og þingmönnum kjördæmisins. Óskin er tilkomin vegna vænt- anlegra breytinga á póstþjónustu við Ísafjarðardjúp, sem heima- menn hafa mótmælt kröftuglega og sagt að með þessum breyting- um verði skorið á samgönguæð- ina við Ísafjörð. Í svari Sturlu segir að ekki þurfi afskipti þingmannanna við þar sem sveitarstjórnarmenn í Súðavíkurhreppi og forsvars- menn Íslandspósts séu að vinna að farsælli lausn á þessu máli. Þingmennirnir sem báru óskina fram eru þeir Jóhann Ársælsson, Jón Bjarnason og Sigurjón Þórð- arson. Forsaga málsins er sú að Gunnar Pétursson póstur, sem sinnt hefur íbúum við Ísafjarð- ardjúp með alls konar viðvikum í ferðum sínum frá Ísafirði og um bæina við Ísafjarðardjúp, fer á eftirlaun um áramótin og verða þá engar slíkar póstferðir farnar frá Ísafirði. Þess í stað fer póstur- inn beint að sunnan í gám sem er við Rauðamýri. Ómar Már Jónsson, sveitar- stjóri Súðavíkurhrepps, segir að nú sé verið að kanna þjónustuþörf íbúa við Djúpið og að því loknu verði leitast við að verða við þeirri þörf í samvinnu við Íslandspóst eða samgönguráðuneytið. - jse Þingmenn deila á póstflutninga við Ísafjarðardjúp: Ráðherra segir óþarft að ræða um póstinn SKIPT_um væntingar Tegund Ver› Patrol Luxury beinskiptur 4.090.000,- Patrol Luxury sjálfskiptur 4.190.000,- Patrol Elegance beinskiptur 4.390.000,- Patrol Elegance sjálfskiptur 4.490.000,- F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00 ENDIST ENDALAUST PATROL NISSAN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.