Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 25
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 28. desember
362. dagur ársins 2005.
Ég fer á brennu
um áramótin og
brenni allt gamla
dótið mitt svo
það sé pláss í
herberginu fyrir
jólagjafirnar!
KRÍLIN
Reykjavík 11.22 13.29 15.37
Akureyri 11.36 13.14 14.52
Þorgeir Axel Örlygsson, yfirstýrimaður
á Goðafossi, lítur á gamlársdag sem
hvern annan vinnudag. Hann býst við
að vera að ferma og afferma í Færeyjum
þann 31. desember en gerir ekki ráð fyr-
ir að fara í land. Til þess sé enginn tími.
„Ég hef oft verið úti yfir áramótin áður.
Núorðið skiptist þetta á milli ára. Ég var
heima í fyrra og fer því í túr núna. Þetta var
erfiðara þegar maður átti ung börn. Það er
nú samt alltaf skemmtilegra að vera heima,
sérstaklega eftir að barnabörnin fæddust.
Ég hringi alltaf heim ef ég er á sjó á gaml-
ársdag,“ segir Þorgeir. Hann hefur verið
á sjó síðan 1967 þegar hann byrjaði sem
messagutti á Esjunni.
Goðafoss leggur úr höfn 28. desember og
er 14 daga úti. Á gamlárskvöld er boðið upp
á veislukost um borð. „Menn mæta spari-
búnir í matinn. Við erum tólf um borð og
eftir mat er stundum komið saman í setu-
stofunni. Þar spilum við eða horfum á góða
mynd. Ef við erum í höfn fáum við stund-
um leyfi til að skjóta upp flugeldum sem
eru komnir úr notkun. Svo er siður í flest-
um höfnum heims að öll skip þeyti flautur
sínar á miðnætti. Þannig er árið flautað
inn,“ segir Þorgeir að lokum.
einareli@frettabladid.is
Hringir alltaf heim
á gamlárskvöld
Þorgeir Axel segir það hafa verið erfiðara að vera að heiman á áramótunum þegar hann átti ung börn. Nú togi barnabörnin í og hann hringir alltaf heim á gamlárskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Brasilíska fyrirtækið Obvio
er komið með bíl á markað
sem er knúinn þrenns konar
orku. Bíllinn er þriggja sæta og
gengur fyrir etanóli, bensíni og
rafmagni. Hann vegur aðeins
750-800 kíló þar sem hann
er byggður úr heilli burðar-
grind klæddri koltrefjaplötum.
Bíllinn er þó sterkur og sagð-
ur verja þá sem í honum eru
á við öruggustu fimm stjörnu
bíla.
Blysför verður farin í Öskju-
hlíð í dag. Ferðin er á vegum
Ferðafélags Íslands og Útivistar
en lagt verður af stað frá Skóg-
ræktinni í Fossvogsdal klukkan
18.30. Gengið verður með blys
í skógi Öskjuhlíðar þar sem
stansað verður og jólalög sung-
in. Enn fremur heimsækja jóla-
sveinar og álfar göngumenn en
áfangastaðurinn er Perlan þar
sem fylgst verður með flugeld-
asýningu Landsbjargar.
Iceland Express býður börn-
um undir 13 ára að fljúga fyrir
eina krónu að frátöldum skött-
um og gjöldum. Tilboðið gild-
ir til 8. janúar 2006 og verða
börnin að vera í fylgd með full-
orðnum. Það kostar því 2.751
krónu með sköttum fyrir barn
að fljúga frá Keflavík, 3.141
krónu frá London, 3.351 krónu
frá Kaupmannahöfn og 1.701
krónu frá Frankfurt Hahn.
LIGGUR Í LOFTINU
[BÍLAR FERÐIR ÁRAMÓT]
SNJÓBÍLL
Fyrir harðfenni
og púðursnjó
BLS. 2
ÁRAMÓTAGLEÐI
Réttir í veisluna
BLS. 4