Fréttablaðið - 28.12.2005, Síða 32
MARKAÐURINN 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR2
Á R I Ð 2 0 0 5
Það var ekki langt liðið á þetta ár þegar ljóst
varð að Íslendingar höfðu eignast fyrsta
fulltrúa sinn í hópi ríkustu manna heims á
lista Forbes. Björgólfur Thor Björgólfsson
er klárlega einn þeirra sem ryðja brautina og
fyrstur til að komast í slíkan hóp. Hann hefur
byggt upp mikið viðskiptaveldi og nýtt vel
þann stofn sem varð til þegar afrakstur erfiðis
Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar í
Pétursborg var innleystur.
Alls nemur markaðsvirði skráðra félaga í
Kauphöll Íslands sem Björgólfur Thor er stór
hluthafi í sexhundruð milljörðum króna. Auk
þess hefur Björgólfur Thor leitt fjárfestingar
í fjarskiptafyrirtækjum víða um Evrópu. Þær
stærstu í Búlgaríu, en auk þess í Grikklandi,
Tékklandi, Póllandi og Finnlandi.
GOTT AÐ VINNA Í NÆÐI
„Mér finnst gaman og vænt um þetta val,“
segir Björgólfur Thor um val dómnefndar
sem skipuð var hópi sérfræðinga sem fylgj-
ast með viðskiptalífinu. „Þetta er búið að
vera mjög gott ár og margir skemmtilegir
hlutir sem hafa komið óvænt.”
Umfang Björgólfs og árangur þeirra fyr-
irtækja sem skráð eru á innanlandsmarkaði
eru flestum ljós, en á árinu hefur Björgólfur
Thor unnið hörðum höndum að því að plægja
og sá til framtíðar í fjárfestingum í fjar-
skiptafélögum. „Mér finnst gott að vinna
þessa vinnu í næði og koma svo með allt til-
búið. Ég er ennþá í mikilli undirbúningsvinnu
í þessum símaviðskiptum. Búinn að vera í eitt
og hálft ár að safna hráefni. Nú er þetta orðið
dálítið safn af hráefni og því hægt að fara að
kokka upp eitthvað verulega spennandi.”
REFSAÐ FYRIR VELGENGNI
Actavis hefur á þessu ári undir stjórnar-
formennsku Björgólfs Thors keypt mörg
fyrirtæki og nú síðast Alpharma, en með
þeim kaupum er félagið komið í hóp stærstu
samheitalyfjafyrirtækja heims. „Það var
óþægilegt fyri Actavis að félagið tók í raun-
inni út hækkun tveggja ára á einu ári. Það er í
raun aldrei gott fyrir fyrirtæki að lenda í því.
Það er engum greiði gerður með því að taka
út svo miklar væntingar í einu og þurfa svo
að sitja uppi með stöðnun. Markaðurinn er
nú bara svona og við getum ekkert kvartað.
Nú er fyrirtækið að aðlagast raunveruleikan-
um.“ Björgólfur segir framundan spennandi
tímabil hjá Actavis við að vinna úr kaupunum
á Alpharma. „Róbert Wessman hefur staðið
sig ótrúlega vel og safnað í kringum sig
góðum hópi stjónenda. Ég er mjög bjartsýnn
á framhaldið og það hefur tekist vel að koma
saman sterkum hópi til að takast á við þetta
spennandi verkefni. Fyrir mig sem fjárfesti
er Actavis þroskaðasta verkefnið. Ég hef
verið í þessu verkefni í sex ár. Það hefur
allt sinn tíma. Rússland tók tíu ár. Actavis
hefur þroskast vel og gaman að sjá það
blómstra. Þetta byggist á því að hafa rósalega
góðan hóp af stjórnendum og veita þeim þann
stuðning sem þeir þurfa.”
Björgólfur hefur skilgreint sig sem fjár-
festi sem horfi á verkefnin í þriggja til
fimm ára tímabilum. „Það hefur alltaf verið
ákveðin fílósófía hjá mér að í upphafi skyldi
endinn skoða. Hugsa um það hvernig maður
ætli að fara út úr verkefnunum, en ekki bara
að kaupa og hanga inni. Ég reyni að halda í að
sjá endapunktinn fyrir.”
ÞURFUM AÐ DREIFA ÁHÆTTU
Björgólfur beindi kröftum sínum talsvert inn-
anlands þegar Samson keypti kjölfestuhlut
í Landsbankanum. Undanfarið hefur hann
beint sjónum sínum og orku meir að erlendum
fjárfestingum. „Ég sé ekki íslenska hagkerfið
og íslenska markaðinn sem endapunkt, held-
ur sem hluta af ferlinu.“ Athafnalífið og efna-
hagsumhverfið hefur tekið miklum breyting-
um frá kaupunum á Landsbankanum. „Það er
ótrúleg breyting sem varð við einkavæðing-
una og það er frábært að sjá árangurinn. Það
er gegnumgangandi bjartsýni og þor sem ein-
kenna fyrirtækin núna. Ég talaði við íslenska
fjárfesta þegar ég var með bjórfyrirtækið
í Rússlandi fyrir mörgum árum. Þá þorðu
þeir köldustu ekki að koma nálægt því. Nú er
kannski ástæða frekar til að hafa áhyggjur af
því að menn verði of kaldir. Það sem ég hef
mestar áhyggjur af er ef menn hanga allir á
sama flekanum. Ef það kemur gat á flekann,
þá er ekki hægt að stökkva á annan fleka. Það
er mjög heppilegt fyrir íslenska fjárfesta ef
þeir tækju í meira mæli upp samstarf við
erlenda fjárfesta og erlendar fjármálastofn-
anir. Það er það sem ég hef verið að reyna
að gera og finnst að fleiri ættu að gera. Það
er gott fyrir alla að dreifa áhættu. Það býður
hættunni heim ef sömu aðilar fjárfesta alltaf
saman og með sömu fjármálastofnanir á bak
við sig. Við megum heldur ekki gleyma því að
Ísland hefur vakið mikla athygli og við erum
undir smásjá erlendra fjölmiðla. Í umfjöll-
uninni gætir mikilla alhæfinga sem ég held
að myndi minnka mikið ef menn næðu að
mynda fleiri tengsl.“ Erlendar bankastofn-
anir hafa komið að fjármögnun stórra verk-
efna íslenskra fjárfesta. „Maður sér ákveð-
in þroska og greinir bæði hættumerki og
batamerki á sama tíma.”
DAVOS OPNAR VÍDD
Á einu og sama árinu komst Björgólfur Thor
á lista Forbes, var valinn í hóp ungra leiðtoga
í heiminum sem þingaði í Davos í Sviss, stóð í
miklum fjárfestingum, þróun og sameiningu
Burðarás við Straum og mikil fyrirtækjakaup
Actavis sem einnig skilaði sínu besta upp-
gjöri á þriðja ársfjórðungi. Björgólfur segir
erfitt að taka eitt út úr þegar horft sé yfir
viðskipti hans og starf á árinu. „Árið byrjaði
með hvelli. Það var heiður og skemmtileg
tilfinning að komast á lista Forbes. Ég neita
því ekki að ég hafði gaman af því. Ég segi
nú ekki að maður hafi stefnt að því. Eins var
með leiðtogaþingið í Davos. Það opnaði svolít-
ið nýja vídd. Hér heima stendur kannski upp
úr vinnan við að koma að Eimskipafélaginu
sem stjórnarformaður. Við breyttum nafninu
í Burðarás og höfum náð að gera það sem við
ætluðum okkur á tiltölulega skömmum tíma.
Við höfum selt sjávarútveginn og skipafé-
lagið kemur nú til fjölda hluthafa í gegnum
skráningu Avion þegar gengið hefur verið
frá arðgreiðslu Straums-Burðaráss til hlut-
hafanna og fjárfestingarstarfsemin er komin
í öflugt félag.”
NÝJAR HUGMYNDIR Í FRAMKVÆMD
Burðarás sameinaðist að hluta til
Björgólfur Thor viðskiptamaður ársins
Senn rennur sitt skeið ár mikilla landvinninga í íslensku viðskiptalífi. Þar hafa
margir náð markverðum árangri. Niðurstaða í vali Markaðarins er að þetta árið
hafi Björgólfur Thor Björgólfsson verið fremstur meðal íslenskra athafnamanna.
Hafliði Helgason fór yfir þetta viðburðaríka ár með Björgólfi Thor.
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON
Árið var Björgólfi Thor gjöfult í viðskiptum
jafnt sem einkalífi. Hann er viðskiptamaður
ársins hjá Markaðinum
Framhald á síðu 4
U M S V I F O G A Ð K O M A
B J Ö R G Ó L F S T H O R S :
Fjármálafyrirtæki:
Ísland: Straumur-Burðarás
Fjárfestingabanki – stjórnar-
formaður
Ísland: Samson eignarhaldsfélag
– stjórnarformaður
Svíþjóð: Carnegie, norrænn fjárfest-
ingarbanki – stjórnarmaður
Búlgaría: EI Bank – félag Björgólfs
Thors, Novator, keypti á árinu
34% hlut í þessum áttunda
stærsta banka í Búlgaríu.
Lyfjafyrirtæki:
Ísland: Actavis, alþjóðlegur lyfjarisi
– stjórnarformaður
Fjarskiptafyrirtæki:
Finnland: Elisa – Novator, félag undir
forystu Björgólfs Thors, er
langstærsti einstaki hluthafinn
með nærri 11% eignarhlut.
Póland: Netia – Novator hefur þegar
eignast yfir 10% hlut í þessu
fastlínusímafélagi og hefur
auk þess gert tilboð í önnur
13% í félaginu.
Póland: P4 – Novator ásamt pólska
símafélaginu Netia undirbúa
rekstur þessa farsímafélags
sem þegar hefur hlotið leyfi
fyrir þriðju kynslóð farsíma.
Tékkland: CRa – Björgólfur Thor er
stærsti einstaki eigandi þessa
fastlínusímafélags sem á
einnig 40% i farsímafélaginu
T-Mobile Czecka.
Búlgaría: BTC – Novator hefur eignast
75% hlut í búlgarska lands-
símanum.
Grikkland: Forthnet – Novator hefur
eignast 29% í þessu vaxandi
gríska fjarskiptafyrirtæki.
Ég er ennþá í
mikilli undir-
búningsvinnu í
þessum síma-
viðskiptum.
Búinn að vera
í eitt og hálft
ár að safna
hráefni. Nú
er þetta orðið
dálítið safn af
hráefni og því
hægt að fara að
kokka upp eitt-
hvað verulega
spennandi."