Fréttablaðið - 28.12.2005, Side 50

Fréttablaðið - 28.12.2005, Side 50
MARKAÐURINN 28. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR20 V I Ð Á R A M Ó T Ársins 2005 verður minnst sem árs mikilla andstæðna hjá Alcan í Straumsvík. Rekstur álversins hefur á þessu ári að mörgu leyti gengið vel, en rekstrarumhverfið verið óhag- stætt. Þannig verður framleiðslan á árinu meiri en nokkru sinni fyrr og álverðið það hæsta um árabil. Á hinn bóginn hefur lágt gengi dollarans valdið miklum vandræðum og í mörgum tilfellum jafnað út góðan árangur, því allar tekjur fyrirtækisins eru í dollurum. Þá hefur innlendur kostnaður hækkað mikið af ýmsum ástæðum; kostnaður við flestar framkvæmdir hefur farið fram úr áætlunum og launakostnaður hefur verið í sögulegum hæðum, bæði út af gengi dollars og kjarasamningi sem gerður var snemma á árinu og hefur kostað töluvert meira en áætlað var. En þrátt fyrir allt er vissulega betra að tæknilega gangi verk- smiðjan vel heldur en illa þegar ytri aðstæður eru óhagstæðar. Þannig er ljóst að við værum í miklum vandræðum ef tæknileg- ur rekstur væri slakur, hvort sem það varðaði framleitt magn eða aðra mælikvarða. En það eru ekki aðeins tækni- legir mælikvarðar sem hafa vakið á okkur athygli, því á þessu ári höfum við fengið við- urkenningar sem allir starfsmenn geta verið stoltir af. Þar ber hæst Íslensku gæðaverð- launin 2005 og í haust fengum við afhent Fjöreggið, viðurkenningu frá Matvæla- og næringarfræðafélagi Íslands fyrir góðan árangur á því sviði. Klapp á bakið úr þessari átt er ómetanlegt og gefur skýrar vísbending- ar um að margir líta á okkur sem fyrirmynd annarra. Vinna vegna stækkunar álversins komst á rekspöl á árinu; samið var um hluta þeirrar raforku sem þarf fyrir stækkaða verksmiðju og þreifingar eru í gangi um það sem upp á vantar. Vonir standa til að þessu langa ferli geti lokið á næsta ári, enda er það langt komið. SÍMINN SELDUR FYRIR METFÉ Síðsumars lauk stærsta einkavæðingarverk- efni Íslandssögunnar, þegar gengið var frá sölu Símans. Salan markaði í senn endalok mikils óvissutíma og upphafið að einhverju nýju. Við sem sátum í stjórn fyrirtækisins vorum stolt yfir því mikla trausti sem marg- ir áhugasamir kaupendur sýndu fyrirtækinu og verðinu sem fékkst fyrir það. Salan sýndi svart á hvítu, að markaðurinn kunni að meta þá vinnu sem frábær hópur starfsfólks hafði innt af hendi – oft undir harkalegri, opinberri og stundum ósanngjarnri gagnrýni. Sala fyrirtækisins skapaði Símanum að ýmsu leyti eðlilegra viðskiptaumhverfi en verið hafði um nokkurt skeið. Starfsfólkið hefur aðlagast breyttum aðstæðum fljótt og á næsta ári er viðbúið að eigendur og starfs- menn fái meira næði til að treysta fyrirtækið enn frekar í sessi. Nýir eigendur fyrirtækisins hafa farið mjög vel af stað og ég bind miklar vonir við enn frekari uppgang þessa öfluga fyrirtækis. Gleðileg jól og farsælt komandi ál. Ár andstæðna og einkavæðingar RANNVEIG RIST FORSTJÓR ALCAN Á ÍSLANDI Fyrirtækið væri í miklum vandræðum ef tæknilegur rekstur væri slakur, segir Rannveig. Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi Síðsumars lauk stærsta einkavæð- ingarverk- efni Íslands- sögunnar, Þegar gengið var frá sölu símanns „Það sem stendur helst upp úr á árinu sem er að líða, eru kaupin á danska flugfélag- inu Sterling í byrjun ársins sem leiddi síðan til kaupa á Maersk-air. Við þá sameiningu varð til fjórða stærsta lág- gjaldaflugfélag Evrópu,“ segir Pálmi Haraldsson um kaupin á Sterlning og Mærsk sem dóm- nefnd Markaðarins útnefndi við- skipti ársins. Pálmi var með fleiri járn í eldinum. Einnig hafa kaupin á Iceland-keðjunni verið ævintýri líkust. Við höfum allir lagst á eitt sem stóðum að þessari fjár- festingu og hefur viðsnúningur rekstrarins farið fram úr okkar björtustu vonum. SPENNANDI VERKEFNI FRAMUNDAN „Auðvitað hafa önnur mörg spennandi verkefni verið í gangi þó svo að þessi hafi verið stærst og tímafrekust. Það hefur verið mikið að gera þetta árið og eflaust margt í smíðum fyrir það næsta. Ég hef sett mér það markmið að draga úr vinnu á nýju ári þó að ég standi eflaust ekki við það frekar en um síðustu áramót. Ég á mér þá von að fjölmiðlar hætti persónulegum árasum á fólk og virði einkalíf þeirra sem eru í eldlínunni þó að vissulega sé málefnaleg gagnrýni og aðhald af hinu góða.“ Útrásin er fjarri því hætt. „Það eru mörg spennandi verkefni í farvatninu og þá sérstak- lega í Bretlandi. Ég á von á því að íslenskir fjárfestar eigi eftir að halda áfram að hasla sér völl í Bretlandi og það verði framhald á velgengni íslenskra fjárfesta þar,“ segir Pálmi Haraldsson. Sterling stendur upp úr PÁLMI HARALDSSON FJÁRFESTIR Pálmi segir að viðsnún- ingur í rekstri Iceland hafi farið fram úr björtustu vonum. Á árinu 2005 fagnar Eyrir fjárfestingarfélag 5 ára afmæli og geri ég því ósjálfrátt upp síðustu 5 ár sem og árið í heild við þessi áramót. Efnahagskerfi heimsins varð fyrir nokkru áfalli á árunum 2000-2001 eftir mikinn uppgang í áratug þar á undan. Í ljós kom að verðlagning verðbréfa um heim allan innibyggðu væntingar sem ekki fengju staðist og fjármálamarkaðir hrundu. Í stað þess að leggjast í kör ákváðu forystumenn íslenskra fyrirtækja að sækja fram. Krafturinn í atvinnulífinu hefur verið með ólíkindum og ráðist hefur verið í mörg stór og ögrandi verkefni síðustu ár sem nú eru farin að skila sér í breiðari og traustari tekjumyndun hjá fyrirtækjum landins sem er til hagsbóta fyrir hluthafa, starfsmenn, viðskiptavina þessara fyrirtækja svo og samfélagið allt sem fær auknar skattgreiðslur þegar vel árar. Mörg hinna stærri fyrirtækja landsins ákváðu að treysta fjárhagsstöðu sína og afla sér fjár til frekari vaxtar. Grunnurinn af hinum sterka fjármálamarkaði hér á landi er annars vegar ungt vel menntað fólk og hins vegar styrkar stoðir lífeyrissjóðakerfis okkar sem á sér ekki samjöfnuð. FJÁRHAGUR TREYSTUR Við hjá Eyri fjárfestingarfélagi breyttum nafninu í Eyri Invest á árinu til að undirstrika nokkuð breyttar áherslur. Hlutabréf í Marel og Össuri eru nú skilgreindar sem langtímaeignir og aukin áhersla er lögð á erlenda hlutabréfamarkaði. Með breyttum áherslum jókst enn þörf á að auka við þekkingu hjá Eyri og fjölgaði starfsmönnum félagsins. Á árinu treystum við jafnframt fjárhag félagsins með tvennum hlutafjárútboðum, skuldabréfaútgáfu og góðri arðsemi félagins og má því segja að árið hafi verið gjöfult. Helstu verkefni framundan hjá Eyri eru að styðja Össur og Marel til enn frekari vaxtar á komandi árum. Bæði Marel og Össur eru mjög vel undir það búin að ráðast í frekari ytri vöxt. Það er ekki síður mikilvægt að þau hafa í sínum hluthafahópi öfluga bakhjarla sem eru tilbúnir til að styðja þann vöxt. Fyrir mig persónulega var ánægjulegt að taka við stjórnarformennsku í Marel og hlakka ég mikið til verkefna þar framundan. Okkar sýn í Eyri er að einungis þau fyrirtæki sem komast í markaðsleiðandi stöðu á heimsvísu geti til langframa skapað verulegan hagsauka fyrir hluthafa, viðskiptavini og starfsmenn. BLIKUR Á LOFTI Ýmissa merkja um fjármálalegan óstöðugleika er þó farið að gæta hér á landi og því ber að fara varlega á næstu misserum og treysta þann ávinning sem náðst hefur, fremur en að sækja fram með stöðugt meiri hraða. Glannaleg einkaneysla sem fjármögnuð er af ríkistryggðu lánaapparati er ekki góð búvísindi. Til að slá á þá þenslu hefur Seðlabankinn kosið að hækka vexti sem hefur snarreist gengi krónunnar sem þrengir að útflutningsgreinum okkar en hvetur til aukinnar neyslu á innfluttum neysluvarningi. Samtímis þessu hafa sveitarfélög stóraukið skattheimtu sína á hendur fyrirtækjum. Þannig hafa rekstrarskilyrði fyrirtækja versnað nokkuð hér á landi í samanburði við hin nýju ríki í Mið-Evrópu. Á heildina litið er bjart framundan í íslensku atvinnu- og þjóðlífi og munum við enn færast fram á veginn. Þegar upp er staðið eru málefni fjölskyldunnar mikilverðust og fyrir mig var stærsta stund ársins að sjálfsögðu fæðing dóttur minnar sem ég hlakka til að sjá þroskast og eflast á næstu árum. Árið 2005 er mikið uppskeruár ÞÓRÐUR MAGNÚSSON OG ÁRNI ODDUR ÞÓRÐARSON AÐALEIGENDUR EYRIR INVEST Árni segir að ýmis merki séu um fjármálalegan óstöðugleika og mönnum beri að fara varlega til að treysta þann ávinning sem náðst hefur. Pálmi Haraldsson Einnig hafa kaupin á Iceland-keðj- unni verið ævintýri lík- ust. Við höfum allir lagst á eitt sem stóðum að þessari fjárfest- ingu og hefur viðsnúningur rekstrarins farið fram úr okkar björtustu vonum Árni Oddur Þórðarson forstjóri Eyris Einungis þau fyrirtæki sem komast í markaðsleið- andi stöðu á heimsvísu geti til langframa skapað verulegan hagsauka fyrir hluthafa, viðskiptavini og starfsmenn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.