Fréttablaðið - 28.12.2005, Side 86

Fréttablaðið - 28.12.2005, Side 86
 28. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR46 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 [ VEISTU SVARIÐ ] 1 Cicinho 2 3 Lech Kaczynski Fyrsta plata tenórsins Garðars Thórs Cortes seldist mest allra platna á Íslandi þetta árið, í rúmum átján þúsund eintökum. Árangur- inn er sérlega merkilegur fyrir þær sakir að platan var gefin út fyrir aðeins sex vikum. Langt er síðan önnur íslensk plata hefur selst í svona mörgum eintökum á svo skömmum tíma. „Þetta er framar okkar björt- ustu vonum og það er mikið þakk- læti yfir því hvað Íslendingar tóku þessu vel,“ segir Einar Bárðar- son hjá Plan B sem gefur plötuna út. Hann segir að bjartsýnisspár fyrirtækisins hafi hljómað upp á tíu þúsund seld eintök og því hafi þessi mikla sala komið mjög á óvart. „Það er samt vandað þannig til verks og þetta gert þannig að platan myndi ná árangri, sem hún síðan gerði. Við lögðum mikla vinnu í útsetningar og flugum um víðan völl til að taka upp til að allt yrði sem best á kosið. Ég held að það hafi allt saman skil- að sér,“ segir Einar. Hann segist ekki gera sér grein fyrir hverjir hafi keypt plötuna umfram aðra. „Þó að þetta sé kannski plata sem flokkast undir klassík og popp er hún samt mjög aðgengileg. Við reyndum að setja ekkert of þung lög inn í þetta og sneiða hjá því að fara yfir strikið í hvora átt.“ Einar segir að vinsældir Garð- ars Thórs byggist fyrst og fremst á frábærum sönghæfileikum hans. „Hann er tenór með fallega og ríka rödd og er líka frábær manneskja. Það segja allir sem hafa hitt hann. Það er sama tilfinningin bæði í röddinni og hjá honum sem karakt- er og það hefur verið frábært að vinna með honum og pabba hans.“ Einar vill ekki viðurkenna að búið sé að ákveða nýja plötu með Garðari Thór. „Við ætlum bara að njóta þess núna að hafa gefið út þessa plötu en það er ekki ólíklegt að hann reki nefið inn í hljóðver aftur,“ segir hann í léttum dúr. Garðar vill heldur ekkert gefa neitt upp um hvort önnur plata sé á leiðinni. „Það er best að hugsa um þessa fyrst en það koma örugglega fleiri plötur. Það er samt ekkert búið að plana neitt.“ Hann segist ekki hafa átt von á svona góðum viðbrögðum. „Ég er voða ánægður og átti ekki von á þessu. Þetta er skemmtileg jólagjöf,“ segir Garðar, sem um þessar mundir er að búa sig undir hlutverk prinsins Don Ramiro í Öskubusku sem verður frumsýnd í Íslensku óperunni 5. febrúar. Hann segist ekki mikið vera stöðvaður úti á götu þrátt fyrir vinsældirnar. „Fólk er voðalega pent. En það eru margir sem koma og óska mér til hamingju og ég er þakklátur fyrir það og segi bara takk.“ Einar Bárðarson fer í seinni hluta janúar á Midem-tónlistar- kaupstefnuna í Frakklandi þar sem hann mun kynna Garðar Thór enn frekar með erlendan markað í huga, rétt eins og hann gerði með stúlknasveitina Nylon á síðustu kaupstefnu með góðum árangri. „Auðvitað hljóta menn að spyrja sig hvort að svona plata eigi ekki erindi annars staðar. Það er aug- ljóst að menn skoði þá fleti alla mjög alvarlega,“ segir hann og ætlar sér greinilega enn stærri hluti með tenórinn unga. freyr@frettabladid.is JÓLAGJÖF GARÐARS THÓRS: ÁTJÁN ÞÚSUND EINTÖK SELD Mokaðist út á sex vikum GARÐAR THÓR CORTES Tenórinn ungi sló í gegn fyrir þessi jól með sína fyrstu plötu, sem heitir einfaldlega Cortes. Yndisleg jól Þau voru bara alveg yndisleg. Jóladagur var sérstaklega dásamlegur því þá vorum við öll á náttfötunum allan daginn og gerðum ekkert. Það er ekki svo oft sem það ger- ist. Við erum búin að eyða tímanum með fjölskyldu og vinum og það er alltaf gott. Margrét Kristín Sigurðardóttir söng- kona. Borðað, sofið og lesið Þau voru bara dásamleg. Það var mikið borð- að, mikið sofið og mikið lesið. Veðrið truflaði jólin mín ekki neitt þar sem veðrið hefur engin áhrif á svefn, lestur né át. Birna Þórar- insdóttir, fram- kvæmdastýra Unifem. Enduðu með trompi Þau voru bara alveg frábær. Við nutum þeirra alveg í botn. Fórum í kirkju, borðuðum góðan mat og eyddum góðum stundum með ættingjum okkar. Svo enduðu jólin með trompi í fyrradag þegar ég söng með Milljóna- mæringunum á jólaballi. Ragnar Bjarnason söngvari. ÞRÍR SPURÐIR Hvernig voru jólin? LÁRÉTT 2 vörumerki 6 sláturfélag 8 mas 9 pota 11 í röð 12 fold 14 óróleg 16 tveir eins 17 efni 18 drulla 20 í röð 21 skjótur. LÓÐRÉTT 1 innsog 3 hljóm 4 töfrar 5 æst 7 súla 10 umfram 13 gagn 15 drasl 16 kóf 19 slá. LAUSN LÁRÉTT: 2 lógó, 6 ss, 8 mal, 9 ota, 11 lm, 12 grund, 14 ókyrr, 16 kk, 17 tau, 18 aur, 20 rs, 21 frár. LÓÐRÉTT: 1 ísog, 3 óm, 4 galdrar, 5 ólm, 7 strókur, 10 auk, 13 nyt, 15 rusl, 16 kaf, 19 rá �������������� ������� ���������� ���� ������������ ���������� ��� � HRÓSIÐ ...fær hópur tónlistarmanna sem hyggst heiðra minningu tónlist- armannsins Elliotts Smith á tónleikum á Gauki á Stöng hinn 29. desember. Quentin Tarantino kemur til landsins í dag og heldur blaða- mannafund á Hótel Nordica. Þar ætlar kappinn að kynna bíópartíið sem hann heldur í Háskólabíó 30. desember en sýndar verða þrjár kung fu-kvikmyndir sem hafa haft mikil áhrif á hann. Stutt er síðan Tarantino var hér síðast en hann var viðstaddur heimsforsýningu kvikmyndar- innar Hostel sem leikstýrt var af góðvini hans Eli Roth. Tarantino kemur við sögu í sjónvarpi lands- manna en í upphafi næsta árs verður tveggja þátta syrpa í saka- málaþáttaröðinni CSI sýnd á Skjá einum en Tarantino bæði skrifar og leikstýrir þeim. Upphaflega gerðu framleiðendurnir bara ráð fyrir einum þætti en Tarantino hefur sjálfur sagt að hann geti ekki hætt þegar hann sé kominn af stað. Hjá Skjá einum fengust þær upplýsingar að einhverjar tilraun- ir hefðu verið gerðar til að fá Tar- antino til þess að kynna þættina. Ísleifur B. Þórhallsson hjá IFF, sem hefur veg og vanda af komu leikstjórans hingað til lands, taldi á hinn bóginn ólíklegt að það tæk- ist. „Okkur hefur borist fjöldi fyrirspurna um hitt og þetta. Allur tíminn gæti farið í eitthvað svona,“ útskýrði hann en þættirn- ir verða sýndir 2. og 9. janúar. Tarantino fer af landi brott 2. janúar og flýgur beint til New York en kvöldið eftir kemur hann fram í spjallþætti Conan O‘Brien, sem er einn sá vinsælasti vestan hafs. Þar mun hann væntanlega látin gaminn geisa og segja frá hinni sprengjuóðu þjóð í norðri. - fgg Skjár einn fær ekki Tarantino TARANTINO Leikstýrir tveimur CSI-þáttum sem sýndir verða á Skjá einum í byrjun næsta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI FRÉTTIR AF FÓLKI Ensk þýðing nýjustu skáldsögu franska rithöfundarins og vandræðagemlingsins Michel Houellebecq, The Possibility of an Island, kom í bókaversl- anir á Íslandi fyrir jól. Houellebecq hefur vakið mikla athygli fyrir bersöglar kynlífslýsingar í verkum sínum og er ekki alls staðar jafn vel lið- inn enda telja sumir verk hans löðrandi í mannfyrirlitningu almennt auk þess sem hann hefur gert múslimum í Frakk- landi lífið leitt með skrifum sínum. Tvær bækur Houellebecqs hafa komið út í íslenskri þýðingu Friðrks Rafnssonar og vakið verðskuldaða athygli. Nýja bókin ætti ekki síður að höfða til Íslendinga, ekki síst fyrir þær sakir að Björk okkar Guðmundsdóttir kemur þar við sögu. Aðalpersóna bókarinnar, vinsæll trúður og uppistandari, hittir söngkonuna í veislu hjá tímaritaútgefanda þar sem auk þessu eru mætt Tom Cruise og fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld. Björk kemur sögumanni fyrir sjónir sem eðlileg kona sem er fjarri því að vera jafn skrítin og hún vill vera láta. Þá lýsir sögupersóna Houellebecqs því hvernig Björk starir á forundran á Lagerfeld, sem ryður veitingum í sig eins og villimað- ur. Annars er Houellebecq við sama heygarðshornið og persónur hans úttala sig með klámkjafti og kvenfyrirlitningu. Óskar Bergsson hefur gefið kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í Reykja- vík. Það þykir hins vegar sérkennilegt upplegg hjá honum í byrjun prófkjörs- baráttu að beina spjótum sínum að flokksforystunni eins og hann gerði í Fréttablaðinu í gær. Óskar er þó enginn byrjandi þegar kemur að prófkjörum og ætti að kunna til verka þó hann hafi að vísu ekki riðið feitum hestum úr prófkjörsslag innan flokksins hingað til. Sagan bendir því til þess að Anna Kristinsdóttir standi betur að vígi en Óskar en fátt þykir geta komið í veg fyrir að Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmað- ur forsætisráðherra, beri sigur úr býum í opnu prófkjörinu sem fer fram í janúar. Þar fyrir utan eru ekki öll kurl komin til grafar og heyrst hefur að fleiri sem geti styrkt listann íhugi að gefa kost á sér. - ÞÞ STÓR HUMAR HÖRPUSKEL RISARÆKJUR STÓR HU AR HÖRPUSKEL RISAR KJUR M Æ STÓR HUMAR HÖRPUSKEL RISARÆKJUR STÓ HUMAR HÖRPUSKEL RISARÆKJUR ST R RP S EL RIS R J R I J STÓR HU AR HÖRPUSKEL RISAR KJURSTÓR HUMA HÖRPUSKEL RISARÆKJUR I J Björn Ingi Hrafnsson, Anna Kristinsdóttir og Óskar Bergsson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.