Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 27
Glænýr Saab
���������������� ����������������� ������ ����������������������������������������������������������������
* Við trúum þessu ekki heldur.
����������������������������������������������������������������������������������������������������������������
3.160.000*
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2006 27
Milljón loðnur á færibandinu mjak-
ast nær
„Dagurinn sér næturverkin og
hlær,“ segir grískur málsháttur en
Jón Sigurður og Haraldur fundu
fyrir barnslegu stolti þegar loðn-
an kemur úr rennum niður í opna
plastpoka sem konurnar á færi-
böndunum hafa í öskjum á færi-
bandinu. Þeir freistast til að trúa
því að þeir hafi sótt þennan auð úr
Ægishöndum sem allt gengur út á í
Vinnslustöðinni.
Um 50 til 60 manns standa vakt-
ina en unnið er allan sólarhring-
inn á meðan á loðnuvertíð stendur.
Þessar öskjur fara svo á færiband-
inu í sjálfvirkan frysti en hægvirkt
færiband liggur í gegnum hann.
Þegar askjan hefur lullað á því
gegnum frystinn er hún orðin vel
fryst. Sjálfvirkur búnaður stafl-
ar svo öskjunum í kassa, þremur
saman, og á bretti. Því næst er
þeim útskipað.
Þetta er þó aðeins helming-
ur loðnunnar sem er frystur með
þessum hætti en hinn helming-
urinn fer á plast sem er útbreitt á
járnpönnum. Þeim er svo staflað
saman á bretti sem svo eru færð
að frysti þar sem þeim er staflað
inn. „Þetta eru vaskir menn sem
vinna þessi störf,“ segir Sigurgeir
Brynjar framkvæmdastjóri meðan
hann horfir stoltur á ungu mennina
stafla pönnunum. „Menn sem töldu
sig færan í flestan sjó hafa komið
og reynt þessi störf en gefist upp
eftir hálftíma en þessir menn eru
svo vaskir að þeir stafla hraðar en
sjálfvirku tækin.“
Í Vinnslustöðinni vinna alla
jafna um hundrað manns en á
meðan loðnuvertíð stendur verður
að tvöfalda starfsmannafjöldann.
Þessari þörf hefur verið mætt með
þeim hætti að nemendur í Fram-
haldsskólanum í Vestmannaeyjum
fá vinnu svo lengi sem ástundun
þeirra hefur verið nægilega góð.
Er þetta svo eftirsóknarvert fyrir
nemendur að þeir eru allir með
góða ástundun að sögn Sigurgeirs
Brynjars.
Verður að snakki í Japan
Það eru Japanar og Rússar sem
fá svo að gæða sér á þessu sjáv-
argóðgæti. Aðstæður við rúss-
nesku hafnirnar eru frumstæðar
svo pakka verður allri loðnu í
kassa sem þangað fer sem svo
eru handlangaðir áfram. Japanar
hífa þetta og lyfta hins vegar með
tækjum og tólum svo hægt er að
slá loðnuna úr pönnunum eftir
að hún hefur verið fryst og setja
beint á bretti.
Japanar fylgjast vel með
vinnslu og meðferð loðnunnar
og því eru nokkrir eftirlitsmenn
þaðan í Eyjum að fylgjast með í
lestum skipanna og svo í vinnslu-
sölum. Einn þeirra er Kawamo-
rita Mitsutomo frá fyrirtækinu
Maruha sem er einn stæsti við-
skiptavinur okkar Íslendinga þar
í landi.
„Þetta er í tíunda sinn sem ég er
hér á Íslandi og alltaf er jafn gott
að koma og gaman að vera hér,“
segir hann meðan að hann sýpur á
kaffi í einni pásunni. Fiskvinnslu-
konur kunna líka vel við kappann
og geyma skó hans á vísum stað
meðan hann er í burtu en um leið
og hann kemur í Vinnslustöðina
eru þeir lagðir fyrir fætur hans.
„Íslenska loðnan er í miklum
hávegum í Japan,“ heldur hann
áfram. „Við setjum hana í pækil
en þurkum hana svo og því næst
er bara að grilla hana eða djúp-
steikja og þá er þetta mikið lost-
æti. Við borðum þetta með haus
og sporði svona eins og snakk og
það er afar vinsælt að skola þessu
niður með bjór.“
Eflaust hafa margir Íslend-
ingar prófað eitthvað þessu líkt í
sumarleyfisferðum sínum við Mið-
jarðarhafið. Kannski ættu Íslend-
ingar að halda einhverju af loðn-
unni eftir fyrir sig. Þá gætu menn
sagt, „ég ætla bara að hafa það
kósí í kvöld með bjór og loðnu!“
KAWAMORITA Í PÁSU MEÐ FISKVERKAKONUM Þær Særún Eydís Ásgeirsdóttir og Sigurlín
Árnadóttir hafa mikið dálæti á honum Kawamorita sínum og kalla hann dúlluna sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
SIGURGEIR BRYNJAR KRISTGEIRSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI Sigurgeir Brynjar segir mikið
deilt um ágæti flottrolla og hann fylgist vel með þeirri umræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
LOÐNAN SETT Í FRYSTI Þeir eru vaskir piltarnir sem koma loðnunni í frysti og segir framkvæmdastjóri að jafnvel frískir menn hafi gefist upp eftir að hafa reynt þessa erfiðisvinnu í hálftíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI