Fréttablaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 20
24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR
NÝTT – OPIN FERÐ
Nú er hægt að bóka
NETSMELL til eins
áfangastaðar og heim frá
öðrum. Þetta gildir um alla
áfangastaði Icelandair í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Af því tilefni bjóðum við flug
til Evrópu á sérstöku
tilboðsverði.
FLUG 19.900 KR.
Sölutímabil til 24. febrúar.
TAKMARKAÐ
SÆTAFRAMBOÐ.
OPNA FERÐ verður að bóka
á milli áfangastaða í sömu
heimsálfu.
A
M
ST
ER
D
O
N
T
IL
A
M
ST
ER
D
A
M
–
H
EI
M
F
R
Á
L
O
N
D
O
N
Verjendur sakborninga
lýstu í málflutningi Baugs-
málsins í gær létti en um
leið þungbærum 1.277
dögum sakborninga frá því
húsleit og rannsókn var
gerð í höfuðstöðvum Baugs
í ágústlok 2002. Saksóknari
sagðist telja gögn málsins
benda til sektar allra sak-
borninganna sex.
Sigurður Tómas Magnússon, sett-
ur saksóknari, tók sér liðlega þrjár
klukkustundir til að flytja Baugs-
málið í tvennu lagi. Annars vegar
er Jóhannesi Jónssyni í Bónus og
börnum hans Kristínu og Jóni
Ásgeiri gefið að sök að hafa rang-
fært gögn og skotið sér undan
réttum aðflutningsgjöldum við
innflutning á fjórum bifreiðum
frá Bandaríkjunum. Hins vegar er
Jóni Ásgeiri, Tryggva Jónssyni
fyrrverandi aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Baugs og endur-
skoðendunum Önnu Þórðardóttur
og Stefáni Hilmari Hilmarsyni
gefið að sök að hafa ekki bókfært
eða gert rétta grein fyrir stórum
lánum Baugs til stjórnenda félags-
ins.
Ekkert fordæmi
Sigurður Tómas lýsti því yfir að
lánveitingar til stjórnenda í skiln-
ingi hlutafélagalaga skiptu ekki
máli heldur væri krafist refsingar
vegna brota á hegningarlögum
með vísan til laga um bókhald og
ársskýrslur.
Hann taldi að endurskoðend-
urnir hefðu brugðist skyldu sinni
um að gera sérstaka grein í árs-
skýrslum fyrir lánunum, sér í lagi
til Jóns Ásgeirs, ellegar árita árs-
skýrslur Baugs með fyrirvara.
Hann rökstuddi fyrst og fremst
aðild Jóns Ásgeirs að meintum
brotum og að í lagalegum skiln-
ingi hefði verið um lán að ræða.
Dulin lán hefðu í ársreikningi 1998
verið liðlega 200 milljónir en
nærri tveir milljarðar fjórum
árum síðar, án þess jafnvel að
stjórnarmönnum í Baugi væri
staðan kunnug.
Gestur Jónsson, Jakob Möller
og Þórunn Guðmundsdóttir, verj-
endur sakborninganna fjögurra í
þessum hluta málsins, mótmæltu
þessu harðlega. Þau teldu að
ákæruatriðin snerust ekki um
ólögmæta athöfn heldur athafna-
leysi sakborninga. Fullyrt var að
aldrei hefði fyrr verið ákært, hvað
þá sakfellt, fyrir afbrot af þessum
toga í réttarsögunni. Enginn hefði
orðið fyrir tjóni, ársskýrslur hefðu
gefið glögga mynd af stöðu og
fjárhag Baugs og Jón Ásgeir hefði
fremur átt inni hjá félaginu en
öfugt. Lítilræði sem út af gæti
staðið væri óverulegt í skilningi
laga og góðrar reikningsskila-
venju. Þau véfengdu auk þess
skilning saksóknara á lánveiting-
um og báru fyrir sig sérfræðiálit
frá PricewaterhouseCoopers.
Tortryggilegt reikningshald
Sigurður Tómas Magnússon sak-
sóknari lét þau orð falla í mál-
flutningi um meint tollsvik og
rangfærslu skjala að Ivan Motta,
bílasali frá Flórída og vitni í mál-
inu, hefði komið fyrir sem gegn
bílasali og bókhald bandarískra
bílasala mundi sóma sér vel í bók-
haldi Baugs. Varðandi innfluting
Jóhannesar og barna hans á fjór-
um bifreiðum á árunum 1998 til
2000 taldi Sigurður að vitni hefðu
gefið trúverðugar skýringar og
þrátt fyrir fáeina ágalla í mál-
gögnum og rannsókn benti margt
til sektar. Bílarnir hefðu allir verið
fluttir einn með svipuðum hætti,
reikningar verið sendir á svipuð-
um tíma og greiðslur borist með
líku sniði. Tilvikin væru samhang-
andi og styddu hvert annað.
Verjendur töldu að vitnisburð-
ur Ivans Motta væri málinu óvið-
komandi og skipti engu máli.
Lögreglurannsókn gagnrýnd
Kristín Edwald, verjandi Kristín-
ar Jóhannesdóttur, og Einar Þór
Sverrisson, verjandi Jóhannesar
Jónssonar, gerðu harða hríð að
málflutningi saksóknara. Þau
töldu að sakborningar væru beitt-
ir meiri hörku en gert væri í hlið-
stæðum málum. Reikningar Jóns
Geralds Sullenberger væru ótrú-
verðugir og sú skylda hvíldi á
ákæruvaldinu að sanna sektina
með haldbærum gögnum. Fram-
burður Jóns Geralds væri óstöð-
ugur og ósamkvæmur. Áreiðan-
leiki tölvureikninga hefði ekki
verið kannaður. Dæmi væri um
reikning frá Nordica, fyrirtæki
Jóns Geralds, í fleiri en einni gerð
með sama númerinu og afar ótrú-
verðugt væri að það tíðkaðist í
bandarísku bókhaldi að gefa út
opna málamyndareikninga. Þau
gagnrýndu harðlega að Jón Ger-
ald hefði í lögreglurannsókninni
útvegað gögn frá Bandaríkjunum
og hlutast til um að útvega ákæru-
valdinu vitni.
Bent var á misræmi í vitnis-
burði Motta og Sullenbergers.
Motta hefði borið að Sullenberger
hefði séð gögn frá bílasölu sinni í
fyrsta sinn fyrir fáeinum dögum.
Sullenberger hefði hins vegar
borið fyrir rétti að hann hefði
heimsótt Motta á Flórída og skoð-
að gögnin löngu fyrr.
Verjendur kröfðust sýknu í
bílamálinu. Ekkert benti til þess
að sakborningar hefðu viljað spara
sér aðflutningsgjöld. Ótækt væri
að styðjast við framburð Sullen-
bergers eins, sem hótað hefði Jóni
Ásgeiri lífláti. Ekkert þeirra hefði
gefið fyrirmæli um að falsa reikn-
inga og ásetning vantaði.
Baugsmálið dómtekið
að loknum málflutningi
SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON SAKSÓKN-
ARI OG KRISTÍN EDWALD, EINN VERJENDA
VERJENDUR Í BAUGSMÁLINU Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Í GÆR Verjendur gagnrýndu lögreglurannsókn í Baugsmállinu undanfarin þrjú
og hálft ár og taldist þeim til að á þeim tíma hefði vel á annað ár farið forgörðum án þess að eiginleg rannsókn væri í gangi. Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmir í málinu á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BAUGS M Á L I Ð
FRÉTTASKÝRING
JOHANN HAUKSSON
johannh@frettabladid.is