Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 44
 24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR32 timamot@frettabladid.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Aðalheiður V. Steingrímsdóttir Hjallahlíð 4, Mosfellsbæ, sem lést á heimili sínu laugardaginn 18. febrúar sl. verður jarðsungin frá Lágafellskirkju laugardaginn 25. febrúar kl. 13.00. Steingrímur Bjarnason Jóhanna H. Guðmundsdóttir Gunnlaugur I Bjarnason Ásta Guðjónsdóttir Eyþór Már Bjarnason Katrín B. Baldvinsdóttir Solveig Rut, Bjarni Marel, Harpa Karen, Ingimundur Bjarni, Aðalheiður Valgerður og Hlynur Bergþór. Elskuleg móðir okkar, Kristbjörg Pétursdóttir fv. Kennari, Holtagerði 84 Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn 21. febrúar. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju föstudaginn 3. mars kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Þórir Hjálmarsson. SVEINBJÖRN EGILSSON (1791-1852) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Til sannrar þekkingar er gott hjartalag nauðsynlegt.“ Sveinbjörn Egilsson var skáld og rektor Lærða skólans í Reykjavík. Á þessum degi árið 1946 var hinn umdeildi fyrrum varaforseti Juan Domingo Peron kosinn forseti Argentínu. Peron hafði verið leiðtogi leynilegs hóps yfirmanna í her- num sem gerði hallarbyltingu árið 1943. Árið 1945 var hann valinn varaforseti og hermálaráðherra. Hann innleiddi félagslegt kerfi, kom til leiðar sjálfstæði háskóla, endurvakningu stjórnmálaflokka og sagði Þýskalandi stríð á hendur sem gerði Argentínu kleift að verða aðili að Sameinuðu þjóð- unum. Peron átti marga andstæðinga sem boluðu honum frá völdum og handtóku hann í október 1945. Fylgismenn Perons efndu þá til verkfalla auk þess sem ástkona hans, Eva Duarte, barðist kröft- uglega fyrir lausn hans. Hann var látinn laus 17. október sem Peron- istar halda enn hátíðlegan í dag. Það kvöld hélt Peron þrumandi ræðu af svölum forsetahallarinnar þar sem hann lofaði sigri í næstu kosningum. Fjórum dögum síðar giftist Peron, sem var ekkill, ást- konu sinni Evu sem betur er þekkt undir gælunafni sínu Evita. Peron var vinsæll framan af en fór í æ meiri mæli að sýna einræðistilburði. Hann fangelsaði pólitíska andstæðinga og takmark- aði tjáningarfrelsi. Evita lést árið 1952. Hún hafði verið hans helsti stuðningsmaður auk þess sem þjóðin elskaði hana. Eftir það fóru vinsældir hans minnkandi. Þremur árum síðar var hann hrakinn frá völdum. Hann sneri aftur til Argentínu árið 1973 eftir átján ár í útlegð. Hann var enn á ný kosinn forseti en lést ári síðar. ÞETTA GERÐIST > 24. FEBRÚAR 1946 Juan Peron kosinn forseti JUAN PERON MERKISATBURÐIR 1630 Skálholtsstaður brennur til kaldra kola. 1821 Mexíkó lýsir yfir sjálfstæði frá Spáni. 1863 Forngripasafn Íslands er stofnað. Því var síðar breytt í Þjóðminjasafn Íslands. 1868 Bandaríski forsetinn Andr- ew Johnson er kærður fyrir embættisbrot. 1924 Líkneskið af Ingólfi Arnar- syni á Arnarhóli í Reykjavik er afhjúpað. 1981 Tilkynnt er um trúlofun Karls Bretaprins og Díönu Spencer. 1993 Flugskýli Flugleiða hf. á Keflavíkurflugvelli er tekið í notkun. Það var þá talið stærsta hús í eigu Íslend- inga. „Þannig háttar nú til að elsti drengurinn minn hringdi í mig rétt fyrir helgina og tilkynnti mér að hann ætlaði að gifta sig á afmælisdaginn minn,“ segir Engilbert Jensen söngvari, sem er 65 ára í dag. „Mér fannst ægilega fínt að hann skyldi drífa sig í þetta,“ segir Engilbert ánægð- ur með þessa afmælisgjöf. Hann hafði sjálfur ekki ætlað að vera með veislu enda ekki tilefni til þess á hálfum tug að hans sögn. Engilbert hefur á lífsleiðinni sungið í hljómsveitum á borð við Hljóma og Ðe lónlí blú bojs. Eftirminnileg er endur- koma Hljóma fyrir nokkru en Engilbert tók þátt í gerð nýrrar plötu en ákvað síðan að leggja tónlistina algerlega á hilluna. „Þetta var orðið gott, hljóm- sveitin orðin slöpp og ég nennti þessu ekki,“ segir Engilbert og býst við að tón- listarferillinn sé nú á enda. „Nema annað komi í ljós,“ bætir hann glettinn við. Engilbert er mikið náttúrubarn og nýtur þess að anda að sér frísku sveita- lofti. Hann hefur brennandi áhuga á veiðiskap og hefur haft lengi. „Ég held ég hafi verið fjögurra eða fimm ára þegar ég fór til mömmu og bað um títu- prjón til að búa til öngul,“ rifjar hann upp en Engilbert ólst upp á Akureyri og veiddi ófáa bleikjuna í Glerá á þennan sama títuprjón. Náttúrubarnið kom líka fljótt upp í hinum unga Engilbert. „Þegar ég var lít- ill var ég skríðandi um alla móa. Þetta þótti mjög sérstakt því flestir finna sér eitthvað annað en að skoða lífríkið,“ segir Engilbert og finnst krakkar í dag hafa verið allt of lengi á malbikinu og kunna ekki að meta sveitina. „Þau halda að kjúklingur sé stimplaður út úr mask- ínu í Nóatúnum,“ segir hann glettinn. Veiðiskapurinn er Engilbert ekki aðeins áhugamál. Nýlega kom í sölu veiðistöng sem hann er höfundur að. „Þetta er gömul hugmynd sem ég var búinn að ganga lengi með,“ segir Engil- bert, sem tók íslenskt veður og vinda með í reikninginn við hönnun veiði- stangarinnar. Hann er með aðra hug- mynd í farvatninu en segir ferlið langt auk þess sem finna þurfi peningamenn í verkefnið. Inntur eftir eftirminnilegri veiði- sögu er hann fljótur til svars. „Ég fór eitt sinn til Flórída og keyrði niður skag- ann að eyjunum. Þar fann ég mér leið- sögumann og skipper. Við sigldum tuttugu mílur inn á Mexíkóflóa og fórum á Tarpoon-veiðar. Þar fann ég einn á yfirborðinu að gúlpa súrefni, ég kastaði á hann og hann tók. Það var klukkutíma- viðureign og hann var 54 kíló, jafn þung- ur og yngsta dóttir mín,“ segir Engil- bert og brosir að minningunni. Fiskurinn hlaut hins vegar frelsi á ný eftir að augnablikið hafði verið fest á filmu. Engilbert stundar ekki einungis veiði heldur tínir hann sveppi og ber. Berin tínir hann mest upp í sig en sveppina þurrkar hann og notar yfir veturinn. Hann saknar þess ekki að vera í tónlist- inni enda er það honum næg lífsfylling að lifa og hrærast í náttúrunni. ■ ENGILBERT JENSEN SÖNGVARI OG NÁTTÚRUBARN: ER 65 ÁRA Fer í brúðkaup sonarins VEIÐIMAÐUR AF LÍFI OG SÁL Engilbert elskar að eyða deginum úti í náttúrunni og ekki er verra ef veiðistöng er með í för. Hann er hættur að syngja og leiðist það ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI AFMÆLI Felix Valsson læknir er 51 árs. Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri er 59 ára. Gunnar Eyjólfsson leikari er áttræður. ANDLÁT Olgeir Sigurgeirsson fyrrverandi útgerðarmaður, Skálabrekku 5, Húsavík, lést mánudaginn 20. febrúar. Óli Viktorsson (Ole Willesen) garðyrkjumaður, Æsufelli 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landa- kots mánudaginn 20. febrúar. Björn M. Loftsson, Drápuhlíð 42, Reykjavík, lést þriðjudaginn 21. febrúar. Jón Kristinn Stefánsson bóndi, Munkaþverá, Eyjafjarðarsveit, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri þriðjudaginn 21. febrúar. Ómar Steindórsson, Ægissíðu 15, Grenivík, lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri þriðjudaginn 21. febrúar. Arngrímur Vilhjálmsson frá Dala- tanga, Blikabraut 11, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 22. febrúar. JARÐARFARIR 11.00 Hansína Þóra Gísladóttir, Hringbraut 94, Keflavík, verður jarðsungin frá Kefla- víkurkirkju. 13.00 J. Guðrún Sveinsdóttir (Bína), Réttarholtsvegi 87, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju. 13.00 Sigríður G. Johnson verður jarðsungin frá Dómkirkj- unni. 14.00 Sigríður Fanney Björns- dóttir, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. 15.00 Garðar Sigjónsson, Hrafn- istu í Hafnarfirði, áður til heimilis á Höfn í Hornafirði, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju. Listaverkið Áfangastaður eftir Finn Arnar var afhjúp- að við hátíðlega athöfn í and- dyri nýja Samskipahússins í vikunni. Verkið var unnið sérstaklega fyrir félagið og hafði listamaðurinn stað- setningu verksins í huga. Verkið er nýstárlegt, ljós- gjafi undir blárri glerplötu sem á birtist „áfangastaður“ í hvert sinn sem skip á vegum Samskipa nær höfn, hvort sem það er hér heima eða erlendis. Hugmyndin með verkinu er að gera bæði starfsfólk og gesti Samskipa meðvitaðri um umfang félagsins. Tæknilega getur lista- verkið átt marga svokallaða skugga þrátt fyrir að kjarni þess sé í anddyri Samskipa- hússins. Þegar hefur verið komið fyrir skugga í matsal starfsfólks í Samskipahús- inu og stefnt er að því að allar skrifstofur Samskipa verði tengdar verkinu þegar fram í sækir. Ásbjörn Gíslason, for- stjóri Samskipa, sagði við afhjúpunina að verkið myndi fylgja fyrirtækinu langt inn í framtíðina enda væri það góð tilfinning að sjá að sjómenn Samskipa og farmur væru komnir heilir í höfn. ■ Á áfangastað í Samskipum SKIP KEMUR Í HÖFN Finnur Arnar listamaður og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, við listaverkið Áfangastað. Í hvert sinn sem skip Samskipa koma heil í höfn lýsist orðið áfangastaður upp á listaverkinu. FÆDDUST ÞENNAN DAG GEF MÉR MEIRA Gestur í Shanghai- dýragarðinum í Kína gefur gullapa kex. Apategundin fyrirfinnst ein- ungis í Kína og er talin í útrýmingar- hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 1619 Charles Le Brun listamaður. 1786 Wilhelm Grimm ævintýrasafnari. 1836 Winslow Homer listamaður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.