Fréttablaðið - 24.02.2006, Page 52
24. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR40
tonlist@frettabladid.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Stórsveit Nix Noltes mun
hita upp fyrir bandarísku
hljómsveitina Animal Coll-
ective á tónleikaferð hennar
um Bandaríkin í næsta
mánuði. Freyr Bjarnason
ræddi við Hildi Guðnadótt-
ur, sellóleikara Stórsveitar-
innar.
Stórsveit Nix Noltes mun hita upp á
fimm tónleikum, þeim fyrstu í Atl-
anta hinn 18. mars en þeim síðustu í
New York 23. mars. Hljómsveitirn-
ar tvær hafa áður spilað saman því
í nóvember í fyrra fóru þær í tón-
leikaferð um Evrópu sem heppnað-
ist mjög vel. Einnig hafa þær spilað
á nokkrum tónleikum í New York.
Fyrst mun Stórsveit Nix Noltes
þó spila ásamt Animal Collective og
þeim Gunnari og Örvari úr múm á
tónlistarhátíðinni South by South-
west í Austin í Texas þann 17. mars.
Einnig spila á hátíðinni meðal ann-
arra Þórir, Jakobínarína, Sign og
Dr. Spock.
Hildur Guðnadóttir, sellóleikari
Stórsveitarinnar, er spennt fyrir
tónleikaferðinni um Bandaríkin.
„Þetta er mjög spennandi og
skemmtilegt. Platan er að koma út í
Bandaríkjunum um svipað leyti hjá
Bubblecore Records og þessi ferð
er farin til að leggja grunninn og
fylgja henni eftir,“ segir Hildur.
„Við höfum aldrei túrað um Banda-
ríkin og það verður því spennandi
að sjá hvernig þetta leggst í Banda-
ríkjamenn. Það hefur yfirleitt verið
jákvæð stemning í Evrópu og okkur
var vel tekið í New York.“
Hildur skemmti sér vel í tón-
leikaferðinni um Evrópu í fyrra.
„Það gekk ótrúlega vel og var æðis-
lega skemmtilegt. Þetta eru svo
ótrúlegir strákar og skemmtileg
tónlist sem þeir spila. Það náðu allir
voða vel saman,“ segir hún um
Animal Collective.
Samstarf sveitanna er þannig til
komið að Animal Collective hafði
nokkrum sinnum hitað upp fyrir
múm en báðar sveitirnar eru á mála
hjá Fat Cat-útgáfunni. Samstarf
múm og Stórsveitar Nix Noltes
hefur verið mikið í gegnum tíðina
og þegar sveitirnar heyrðu tónlist
hvorrar annarrar ákváðu þær að
fara í tónleikaferð saman.
Animal Collective, sem var
stofnuð í New York árið 2000, er að
fylgja eftir sinni þriðju plötu, Feels,
sem kom út í fyrra. Árið áður hafði
hún gefið út plötuna Sung Tongs
sem hlaut mjög góða dóma gagn-
rýnenda víða um heim. Tónlist sveit-
arinnar er ansi tilraunakennd þar
sem mörgum straumum og stefnum
er blandað saman á skemmtilegan
hátt í einn hrærigraut.
Fyrsta plata Stórsveitar Nix
Noltes, Orkideur Hawaii, kom út á
síðasta ári við góðar undirtektir.
Tónlist sveitarinnar er með austur-
evrópskum þjóðlagaáhrifum og er
bæði fjölbreytt og um leið sérstök.
Meðlimir sveitarinnar eru allt frá
þremur upp í fimmtán á tónleikum
en oftast eru þeir um tíu talsins.
Sveitin byrjaði fyrst að spila í Lista-
háskólanum fyrir þremur til fjórum
árum en fyrir tveimur árum varð
hún til í núverandi mynd.
„Við spilum mikið tónlist frá
Balkanskaganum og þó að það sé
grunnurinn erum við svolítið að
gera hana að okkar eigin með
útsetningunum okkar. Það voru
margir í Evróputúrnum sem komu
til okkar og föttuðu ekki að þetta
var búlgörsk tónlist,“ segir Hildur.
„Það er ekki alltaf sem fólk fattar
það og það er til marks um að við
erum óhrædd við að breyta þessari
tónlist.“
Hildur er sjálf að leggja loka-
hönd á fyrstu sólóplötu sína sem
kemur út í vor. Hún gefur hana út
undir nafninu Lost In Hildurness og
heitir platan Mount A. „Þetta er
mjög ólíkt Stórsveit Nix Noltes,“
segir hún og hlær. „Þetta er rosa-
mikill sellógrautur, fljótandi og
notalegt en samt svolítið dramat-
ískt. Þetta er minn óður til sellós-
ins.“
Stórsveit Nix Noltes heldur tón-
leika á Kaffi kúltúr í Alþjóðahúsinu
í kvöld til að hita upp fyrir tónleika-
ferðina. ■
Á leið í tónleikaferðalag
með Animal Collective
HILDUR GUÐNADÓTTIR Sellóleikari Stór-
sveitar Nix Noltes er að leggja lokahönd á
sínu fyrstu sólóplötu.
1. SHINEDOWNSAVE ME
2. SYSTEM OF A DOWNLONELY DAY
3. DIKTABREAKING THE WAVES
4. NINE INCH NAILSEVERY DAY IS EXACTLY THE SAME
5. DEAD SEA APPLEBEARER OF BAD NEWS
6. MATISHYAHUKING WITHOUT A CROWN
7. RICHARD ASHCROFTBREAK THE NIGHT WITH COLOUR
8. FRÆFREÐINN FÁVITI
9. DR. MISTER & MR. HANDSOMEKOKALOCA
10. PENDULUMSLAM
X-LISTINN
TOPP TÍU LISTI X-INS 977
SHINEDOWN Hljómsveitin Shinedown
er komin í efsta sæti X-listans með lagið
Save Me.
Michael Stipe, söngvari R.E.M.,
ætlar að syngja gegn stríðinu í
Írak á tónleikum í New York hinn
20. mars.
Auk hans koma meðal annars
fram Chuck D úr Public Enemy,
Bright Eyes, Peaches, Fischer-
spooner, Rufus Wainwright og
Devendra Banhart. Yfirskrift tón-
leikanna er Sendið þá heim núna!
„Við erum búin að vera í stríði í
þrjú ár. Maður hefur virkilega
þörf fyrir að heyra einhvern segja
sannleikann, hvort sem hann er
sagður á ljóðrænan hátt eða byggð-
ur á staðreyndum málsins,“ sagði
Casey Spooner úr Fischerspooner.
Allur ágóði tónleikanna mun renna
til samtaka sem berjast gegn stríð-
inu í Írak.
Sungið gegn
Íraksstríði
MICHAEL STIPE Söngvari R.E.M. er andsnú-
inn stríðinu í Írak sem hefur staðið yfir í
þrjú ár. DV-MYND/REUTERS
> Plata vikunnar
Mary J. Blige: The Breakthrough
„Sjöunda breið-
skífa Mary J. Blige
er í fyrsta gæða-
flokki þegar kemur
að útvarpsvænni
R&B tónlist. Ef
henni hefur ekki
enn verið úthlutað hásæti senunnar
er kominn tími til þess að krýna
drottninguna.“
STÓRSVEIT NIX NOLTES Sveitin er á leiðinni í tónleikaferð um Bandaríkin ásamt Animal
Collective.
> í spilaranum hjá ritstjórninni
Belle and Sebastian: The Life Pursuit.
Delays: You See Colours.
Marit Hætta Överli: Jienat.
The White Stripes: Elephant.
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
The Knife: Silent Shout
„Sænski systkinadúettinn kýs að yfirgefa
poppið á þriðju breiðskífu sinni og færa sig nær
tormeltari og sveimkenndari tónlist. Samt nægi-
lega sterk plata til að halda athygli aðdáenda.“
BÖS
Cat Power: The Greatest
„Á sjöundu breiðskífu sinni er Cat Power studd
af undirleikssveit Als Green. Sem fyrr gefur
söngkonan hlustandanum örlítinn hluta af sálu
sinni og skilar af sér afbragðs plötu.“
BÖS
Siggi Ármann: Music for the
Addicted
„Þessi önnur plata Sigga Ármanns er bæði
lágstemmd og tilfinningarík og í raun fyrirtaks
plástur á brothætt sálarlíf. Munið bara: innri
fegurðin skiptir mestu máli.“
FB
Stórsveit Nix Noltes:
Orkideur Hawaii
„Stórsveit Nix Noltes á mikla athygli og
ennþá meiri tónleikaaðsókn skilda fyrir þessa
hressandi tónlist sem hefur þann þó neikvæða
fylgikvilla að henta ótrúlega illa til hlustunar í
heyrnartólum.“
BG
Richard Ashcroft: Keys to the
World
„Þriðja plata Richards Aschroft hljómar eins og
hinar tvær. Frekar flöt og óspennandi. Hljómar
eins og plata frá listamanni í tilvistarkreppu.“
BÖS
The Decemberists:
Picaresque
„Það er ótrúlega upplífgandi að heyra að það
séu enn til menn í heiminum sem eru virkilega
að reyna að ýta laga- og textasmíðum á æðra
plan. Í þeim efnum fáið þið varla betra framlag
en þriðju plötu The Decemberists.“
BÖS
Animal Collective: Feels
„Á þriðju breiðskífu sinni hljómar Animal
Collective meira dáleiðandi en áður. Tilrauna-
mennskan er enn aðalsmerki og sveitin er
síbreytilegri en kameljón.“
BÖS
Birgir Örn Steinarsson, Freyr Bjarnason, Borg-
hildur Gunnarsdóttir.
Hljómsveitin Red Hot Chili Peppers
ætlar í tónleikaferð um Bandaríkin með
rapparanum Kanye West síðar á árinu
til að fylgja eftir tvöföldu plötunni sinni
Stadium Arcadium sem kemur út 8. maí.
„Hann er frábær listamaður og við
reynum alltaf að spila með eins hæfu
fólki og mögulegt er á tónleikaferðum
okkar,“ sagði bassaleikarinn Flea.
Hann segist ekki hafa verið jafn-
spenntur fyrir nýrri plötu Red Hot Chili
Peppers síðan sveitin var stofnuð 1983.
„Þetta er besta plata sem við höfum
nokkru sinni gert. Mér fannst hver og
einn hafa verið upp á sitt allra besta við
upptökur á plötunni. Þessi plata er okkar
stærsta yfirlýsing. Ef þú hefur ekki gaman
af þessari plötu þá fílarðu ekki Red Hot
Chili Peppers, punktur,“ sagði hann.
25 lög verða á plötunni, þar
á meðal Charlie, Discretion Smile
og Hard to Concentrate. Síðasta plata
sveitarinnar, By the Way, kom út
sumarið 2002 en vinsælasta
plata sveitarinnar til þessa,
Blood Sugar Sex Magik, kom
út 1991. Hafði hún að geyma
slagara á borð við Under the
Bridge og Give It Away.
Red Hot Chili Pepp-
ers ætlar í tónleikaferð
um Evrópu í sumar
til að fylgja plötunni
eftir áður en Banda-
ríkjatúrinn verður að
veruleika.
Besta platan til þessa
> popptextinn
„Greedy little people
in a sea of distress
Keep your more to
receive your less
Unimpressed by
material excess
Love is free love me say hell yes“
Anthony Kiedis kýs ást í stað efnishyggju í
Give It Away af plötunni Blood Sugar Sex
Magik.