Fréttablaðið - 24.02.2006, Side 57

Fréttablaðið - 24.02.2006, Side 57
KVIKMYNDIR [UMFJÖLLUN] Íslenskur hversdagsleiki hefur ekki verið mikið til umfjöllunar í íslenskum kvikmyndum. Þær hafa frekar beint sjónum sínum að kynlegum kvistum í þjóðlífinu. Í kvikmyndinni Blóðböndum kveður við annan tón því fjöl- skyldan í næsta húsi er umfjöll- unarefnið. Hjónin Pétur og Ásta eru ákaf- lega hamingjusöm. Hann er augn- læknir og hún læknir. Þau eru búin að koma sér vel fyrir í lífinu, eiga glæsilegt hús, jeppa og tíu ára gamlan son, Örn. Nýr fjöl- skyldumeðlimur er á leiðinni og hamingjan svífur yfir vötnunum. Í knattspyrnuleik fellur sonurinn í yfirlið og er fluttur á sjúkrahús. Það sem í fyrstu virðast vera sak- leysisleg blóðsýni reynast síðar hafa alvarlegri afleiðingar. Hul- unni er svipt af tíu ára gömlu leyndarmáli: Örn er ekki sonur Péturs. Við þessi tíðindi hrynur tilvera Péturs. Hann glatar öllu trausti til eiginkonu sinnar og telur sig hafa lifað í lygi síðastliðinn ára- tug. Hann á erfitt með að horfast í augu við staðreyndirnar og flyt- ur á hótel til að átta sig. Hann tekur upp ástarsamband við Önnu, huggulega aðstoðarkonu sína, sem er nánast helmingi yngri, en þegar Ásta kemur til hans með pappíra sem firra Pétur allri ábyrgð verður honum ljóst að Örn er mikilvægari en hans eigið stolt. Þegar hversdagsleikinn er við- fangsefnið þarf gott handrit og nánast óaðfinnanlegan leik. Hið mannlega þarf að vera í for- grunni og áhorfandinn verður að geta samsamað sig söguþræði- num og séð sjálfan sig í þeim aðstæðum sem brugðið er upp á hvíta tjaldinu. Það er því kannski engin tilviljun að rangfeðrun skuli vera umfjöllunarefnið í Blóðböndum enda er það minni sem hefur lifað lengi með okkur Íslendingum. Leikurinn í Blóðböndum er mjög traustur og leikhópurinn vel skipaður. Hilmar Jónsson leikur Pétur en það er hálfgerð synd að þessi mikli gæðaleikari skuli ekki leika meira en raun ber vitni. Margrét Vilhjálmsdóttir fer létt með hlutverk Ástu og Elma Lísa er skemmtileg sem hin ákveðna systir Lilja. Laufey Elíasdóttir leikur ástkonuna Önnu og er samleikur þeirra Hilmars mjög eðlilegur. Þá er Aron Brink öruggur sem hinn tíu ára gamli sonur. Senuþjófurinn er hins vegar Ólafur Darri Ólafsson. Hann er sannfærandi sem mágur Péturs og sýnir sterkan leik sem hinn óöruggi en góðhjartaði Börk- ur. Allt útlit myndarinnar er með besta móti, hljóðið skýrt og klipp- ingar góðar. Kvikmyndataka Tuomo Hutri er flott og þá verður að minnast á tónlist Jóhanns Jóhannssonar sem notuð er á hóg- væran en réttan hátt. Leikstjóranum Árna Ólafi Ásgeirssyni tekst vel upp með frumraun sinni og það verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni. Myndin rúllar áfram nokkuð örugglega en hand- ritið er kannski full flatt og hefði mátt krydda atburðarásina enn frekar. Blóðbönd er hins vegar fersk viðbót við íslenska kvik- myndagerð vegna þess að hún fjallar um venjulega Íslendinga, fólkið í næsta húsi og þá erfið- leika sem það glímir við. Fjöl- skylduna sem við þekkjum öll. Freyr Gígja Gunnarsson BLÓÐBÖND LEIKSTJÓRI: ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON Aðalleikarar: Hilmar Jónsson, Margrét Vil- hjálmsdóttir og Laufey Elíasdóttir Niðurstaða: Blóðbönd er mynd um venjulega Íslendinga, fjölskylduna sem við þekkjum öll. Þrátt fyrir full bragðdauft handrit er kvikmyndin mjög góð frumraun ungs leikstjóra sem spennandi verður að fylgjast með í framtíðinni. Um fjölskylduna sem við þekkjum öll 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.