Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2006, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.03.2006, Qupperneq 2
2 4. mars 2006 LAUGARDAGUR Sjálfskipt og allt allt öðruvísi 1.750.000,- Sjálfskipt, 1.8 l. vél og hlaðin aukabúnaði ���������������� ����������������� Nýr, fallegri og miklu betri Opel. Engin refsing Ungur maður slapp við refsingu vegna þriggja brota fyrir Hæsta- rétti. Játaði hann brot sín greiðlega auk þess sem héraðsdómari, sem áður hafði dæmt manninn til tíu mánaða skilorðs- bundins dóms, gerði sér ekki grein fyrir að umræddur skilorðsdómur hafði verið dæmdur með í öðru máli. Forsjársvipting Móðir sex ára gamals barns var svipt forsjá fyrir Hæstarétti í gær að kröfu Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Var mat dómsins að móð- irin hefði ekki tekið sig á sem skyldi og forsendur forsjár væru því brostnar. DÓMSMÁL Verkalýðsfélög kæra Verkalýðsfélög flugmanna í Danmörku og Noregi ætla að kæra SAS fyrir að hafa brotið á rétti starfsmanna sinna. Flugfélagið breytti samningum við flugmenn í vikunni en þær voru ástæða víðtækra verkfalla flugmanna í janúar. NORÐURLÖND BANDARÍKIN, AP Bandarískur hjúkr- unarfræðingur var á fimmtudag dæmdur í ellefu lífstíðarfangelsi fyrir morð á minnst 29 sjúkling- um. Charles Cullen, einn afkasta- mesti morðingi innan heilbrigð- isgeirans í sögu Bandaríkjanna, slapp við dauða- dóm með því að gefa upp nöfnin á fórnarlömb- um sínum. Hann játaði að hafa drepið allt að 40 manns á 16 ára ferli sínum sem hjúkrunarfræðingur. Á þeim tíma vann hann á 10 elliheim- ilum og sjúkrahúsum, en hætti eða var rekinn frá sjö þeirra eftir að grunsemdir vöknuðu hjá yfir- mönnum hans. Hann fékk þó alltaf aðra vinnu, að hluta til því yfir- menn sjúkrahúsanna sögðu ekki frá grun sínum af ótta við mála- ferli. - smk Hjúkrunarfræðingur dæmdur: Lífstíðardómur fyrir 29 morð Charles Cullen DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri var í gær dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar og skil- orðs til þriggja ára fyrir að hafa í fórum sínum klámfengið mynd- efni af ungum börnum. Manninum var jafnframt gert að greiða allan sakarkostnað, sem nemur um 190 þúsund krónum. Lögreglan í Reykjavík fann við húsleit hjá manninum tæplega fjörutíu þúsund ljósmyndir af börnum í kynferðislegum athöfn- um, auk tæplega tvö hundruð hreyfimynda af klámfengnu efni. Í dómi héraðsdóms segir að stór hluti myndanna sem voru í einka- safni mannsins hafi verið grófur og sýni börn í kynferðislegum og klámfengnum stellingum. Maður- inn hefur að undanförnu markvisst reynt að vinna bug á klámfíkn sinni og lagði við aðalmeðferð málsins fram gögn sem staðfestu það. Héraðsdómur tók einnig til greina að maðurinn væri fjöl- skyldumaður en hann á eiginkonu, níu ára stjúpson og kornabarn, auk þess sem kona hans er ólétt af öðru barni þeirra. Dómurum í málinu þótti þetta nægileg ástæða til að dæma mann- inn í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi en brjóti hann skilorðið gæti hann átt yfir höfði sér níu mánaða fangelsi til viðbótar. - mh Dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að eiga mikið magn barnaklámmynda: Hefur tekið á klámfíkninni MIKIÐ MAGN BARNAKLÁMS Tæplega 40 þúsund barnaklámmyndir voru gerðar upptækar hjá karlmanni á fertugsaldri og var hann dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir vikið. SPURNING DAGSINS Ragnheiður, eru þetta ekki bara fordómar gagnvart útlendingum? „Geta menn ekki bara fallist á það?“ Mosfellingar mótmæla hugmyndum skipu- lagsráð Reykjavíkurborgar um að veita þýsku verslunarkeðjunni Bauhaus lóð undir stór- verslun við Úlfarsfell. Ragnheiður Ríkharðs- dóttir er bæjarstjóri Mosfellsbæjar. HEILBRIGÐISMÁL „Við erum í kapp- hlaupi við tímann,“ segir Eggert Gunnarsson, dýralæknir á Keld- um, sem nýkominn er að utan þar sem hann kynnti sér aðstöðu til rannsókna á dýrasjúkdómum, bæði í Svíþjóð og Noregi. Keldna- menn leggja áherslu á að uppbygg- ingu krufningaraðstöðu þar verði hraðað eftir föngum vegna yfir- vofandi fuglaflensu. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gærmorgun að beita sér fyrir því að veitt yrði 20 milljónir króna til að koma upp krufninga- raðstöðu á Keldum. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum á sú upp- hæð að duga fyrir framkvæmdum. „Við verðum að koma okkur upp rannsóknarstofu þar sem við getum krufið við öruggar aðstæð- ur, þannig að starfsmönnum stafi ekki hætta af,“ segir hann. „Það er algjör nauðsyn. Fuglaflensan kall- ar á krufningaraðstöðu núna, en almennt séð þurfum við bæði slíka aðstöðu og rannsóknarstofu þar sem við getum tekist á við hættu- lega smitsjúkdóma. Við erum búin að biðja um það í mörg ár. Það geta alltaf komið upp hættulegir sjúk- dómar sem þarf að fást við eins og dæmin sanna núna. Fuglaflensan er yfirvofandi og hún kemur.“ Eggert segir enn fremur að talsvert sé gert úr því að mönnum stafi ekki stór hætta af villtum fuglum sem drepist úr fuglaf- lensu. Það sé sjálfsagt rétt, þegar um staka fugla sé að ræða. „En þegar búið er af safna þeim saman á einn stað til þess að kryfja þá og taka sýni, þá er farið að magna upp smitefnið. Það er ekki forsvaranlegt gagnvart þeim sem starfa við það. Þetta á ekki einung- is við um starfsfólkið, sem kannski getur varið sig með ákveðnum hlífðarbúnaði, heldur umhverfið líka. Það þarf því að sía allt and- rúmsloft frá rannsóknarstofunni í gegnum ákveðnar síur, þannig að það sleppi ekki út í umhverfið.“ Eggert segir það hafa komið til tals að flytja inn gáma til að setja upp bráðabirgðaaðstöðu fyrir krufningar á Keldum. Það gæti tekið nokkrar vikur að koma slíkri aðstöðu upp. Mikið liggi við, því um leið og fuglaflensan komi upp í Bretlandi reikni menn með að hún sé einnig komin hingað til lands. jss@frettabladid.is RANNSÓKNARSTOFA Á KELDUM Forsvarsmenn á Keldum leggja mikla áherslu á að byggingu krufningaraðstöðu verði hraðað eftir föngum. Brýnt að koma upp stöð til krufningar Starfsmenn á Keldum eru í kapphlaupi við tímann við að koma upp krufning- araðstöðu. Ríkisstjórnin ákvað að veita 20 milljónir króna til verksins. Mikil- vægt er að koma upp aðstöðu þar sem hvorki starfsfólk né umhverfi er í hættu. LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhald yfir Litháa, sem situr inni vegna rann- sóknar á smygli fljótandi amfet- amíns hefur verið framlengt af Héraðsdómi Reykjavíkur til 17. mars. Maðurinn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Annar Lithái sem reyndi að smygla efninu til landsins, en var tekinn í Leifsstöð, á að sitja í gæsluvarðhaldi til 7. apríl. Báðir þessir menn sitja inni vegna sama málsins, það er þegar reynt var að smygla tveimur áfengisflöskum með fljótandi amfetamíni til landsins í síðasta mánuði. - jss Amfetamínsmygl: Gæsluvarðhald framlengt KJARAMÁL „Við náðum ekki öllu okkar fram en erum nokkuð sáttar og komum í veg fyrir að allt fari í bál og brand á spítölunum,“ sagði Unnur Friðriksdóttir, varaformað- ur Ljósmæðrafélags Íslands. Samningar tókust milli ljós- mæðra og samninganefndar heil- brigðisráðuneytisins síðdegis í gær, flestum að óvörum enda höfðu fyrri fundir verið með öllu árangurslausir. Stefndi í ófremd- arástand á sængurkvennadeildum Landspítalans þar sem nýbakaðar mæður gátu ekki farið til síns heima fljótlega eftir fæðingu eins og meirihluti þeirra kýs öllu jöfnu. Voru sængurkvennadeildir orðnar fullar strax í gær og aðeins tíma- spursmál hvenær í verulegt óefni yrði komið. Fimmtán milljónum króna munaði á því tilboði samninga- nefndarinnar sem lagt var fyrir ljósmæður og því sem þær fóru fram á fyrr í vikunni. Unnur segir að markmið hafi ekki öll náðst en samningurinn hafi verið lending sem báðir aðilar sættu sig við. „Þess utan var mikil pressa á okkur þar sem afar lítið þurfti til að það skapaðist neyðarástand á kvennadeild spítalans en við erum nógu sáttar til að hafa skrifað undir.“ Starfsfólk kvennadeildar Land- spítala vann að því hörðum hönd- um áður en fregnir af samningn- um bárust að sameina á stofum og senda feður heim enda ekkert pláss lengur fyrir þá eða aðra aðstandendur. Þess utan var megn óánægja hjá allnokkrum mæðrum með að komast ekki heim en þær geta nú andað léttar. - aöe STEFNDI Í ÓEFNI Uppábúin rúm á gangi kvennadeildar Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öngþveiti var afstýrt á síðustu stundu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR Samkomulag náðist á síðustu stundu við ljósmæður vegna heimaþjónustu: Nógu sáttar til að skrifa undir DÓMSMÁL Fyrrverandi fram- kvæmdastjóri og prókúruhafi Arn- artaks hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hann skilaði ekki vörslusköttum að upphæð tæplega 4,5 milljónir króna á árunum 1998 til 2002. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða 8,5 milljónir í skaðabætur. Greiði hann ekki sektina innan fjög- urra vikna sætir hann fimm mán- aða fangelsi. Maðurinn sem er á sjötugsaldri hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og því þarf hann ekki að sitja inni greiði hann sektina og haldi skilorð í tvö ár. Fyrirtækið var úrskurðað gjald- þrota í fyrstu viku desembermán- aðar. - gag Greiddi ekki 4,5 milljónir: Fékk skilorðs- bundinn dóm SVEITARSTJÓRNARMÁL Kynnt var formlega í gær hverjir það eru sem skipa fjögur efstu sæti lista framsóknarmanna í Reykjavík. Björn Ingi Hrafnsson skipar fyrsta sætið, í öðru er Óskar Bergsson, í þriðja er Marsibil Sæmundsdóttir og Ásrún Kristj- ánsdóttir í því fjórða. Björn Ingi Hrafnsson segir góða samstöðu vera meðal fram- sóknarmanna um skipan listans. Kjördæmissambönd framsókn- armanna í Reykjavík munu taka tillögu uppstillingarnefndar til afgreiðslu á miðvikudag. - mh Tillaga uppstillingarnefndar: Fjögur efstu sætin kynnt FJÖGUR EFSTU Framsóknarmenn eru klárir í slaginn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.