Fréttablaðið - 04.03.2006, Side 51

Fréttablaðið - 04.03.2006, Side 51
8 Vori› er komi› hjá okkur 500-1000-1500-2000 Langur laugardagur opi› 10-17 P.S. Útsöluhorn - 4 ver› Mikið úrval af brjóstagjafabrjóstahöldurum og brjóstagjafabolum NÝTT-NÝTT-NÝTT Hárspangir frá kr. 290 Síðar hálsfestar frá kr.990 Síðir bolir kr. 1990 Nýja vorlínan frá Pilgrim komin Ný breið belti og margt fleira Enn og aftur er Madonna endurfædd með nýjan stíl og nýtt útlit á sama tíma. Að þessu sinni stekkur hún á sviðið sem dansdrottning og með plötu sinni Confessions on The Dance Floor dansar hún sig beint í sviðsljósið með framtíðardiskó- takti. Hún nálgast fimmtugsaldrinn óðfluga en lætur það ekki stöðva sig og kemur fram fáklædd og ögrandi á sviðinu eins og svo oft áður. Hún hefur ætíð lagt mikið upp úr því að hafa stæltan og fallegan líkama og hefur gaman af því að sýna hann. Mörgum gæti þótt hún of gömul og að hún ætti að haga sér betur, en Madonna fer ætíð ótroðnar slóðir, brýtur reglur og lætur aðra fylgja sér. Hún er þekkt sem kameljón í tískuheiminum og hefur haft gríðar- leg áhrif á tískuna allt frá því að hún öðlast frægð á níunda áratugnum. Einkennandi fyrir stíl hennar er síbreytilegur stíll, og þá helst að stíll hennar fylgir vissu hlutverki. Hún klæðist eftir því hvað við á. Hún er ögrandi og sexí þegar hún kemur fram sem söngkonan Madonna, smekkleg og til baka þegar hún kemur fram með eiginmanni sínum og siðprúð þegar hún er með börn- um sínum. Allt virðist fara henni og getur hún breytt um hárlit og útlit eins og hendi sé veifað, enda kölluð kamelljónið. Smekkur hennar virðist vera óaðfinnanlegur og tekst henni alltaf að vera skrefi á undan tískunni. Hún gefur aldrinum langt nef og sýnir heiminum að miðaldra móðir getur verið sexí poppdíva og á eflaust eftir að leika sama leikinn þegar hún verður amma einn daginn. Tískudrottningin Madonna Madonna hefur stokkið fram á sjónvarsviði með nýtt út- lit, enn eina ferðina. Að þessu sinni er hún diskódrotting og gerir það að sjálfsögðu með stæl. Ljóshærð í svartri kápu í ágúst 2000. Við tökur á myndbandi í september 1998.Ljóshærð í hvítum silkikjól árið 1995. Berbrjósta með Jean Paul Gaultier árið 1995. Svarthærð í japönskum silkikjól árið 1999. Plötualbúm fyrstu plötu Madonnu sem hét Madonna the first album og kom út árið 1983. Í íburðarmiklum gulum kjól árið 1998. Dansdrottningin Madonna 2006. Madonna árið 1978. ■■■■ { vor & sumar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.