Fréttablaðið - 19.03.2006, Side 69
30 19. mars 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Andri Steinn í Grindavík
Andri Steinn Birgisson er genginn í
raðir Grindvíkinga og hyggst reyna að
spila með liðinu í Landsbankadeildinni
í sumar. Hann meiddist á baki þegar
hann lenti í bílslysi á Englandi þar sem
hann var til reynslu hjá Notts County.
Hann eltir þar með Sigurð Jónsson,
þjálfara Grindavíkur, úr Víkingi. Andri
lék níu leiki og skoraði tvö mörk fyrir
Víkinga sem urðu í öðru sæti 1. deild-
arinnar. Hann er
fæddur 1983
og hefur verið
duglegur við
að skipta um
lið undanfarin ár.
Grindavík er sjötta
lið hans á sex árum
en áður en hann var
í herbúðum Víkinga
var hann hjá Fram,
Fylki, Aftureldingu
og Fjölni.
60
SEKÚNDUR
MEÐ SVERRI
BJÖRNSSYNI
Besti sóknarmaður DHL-deildarinnar
er... Tite Kalandadze.
Besta bíómynd allra tíma er... Shaw-
shank Redemption
Neighbours eða Bold and the Beauti-
ful? Neighbours, engin spurning
Fram eða KA... 1x2
Vörn er... skemmtileg
Gummi Gumm er... toppþjálfari
Ertu besti varnarmaður deildarinnar?
Klárlega (hlátur)
Kemstu í landsliðið? Vonandi
Hvað óttastu mest? hunda
Megas eða Mezzoforte? Mezzoforte
iPod eða útvarpið? Útvarpið, er svo
gamall
Stallone eða Schwarzenegger? Stallone
Ronn Moss er... jafnsvalur og Halli
Þorvarðar
9. hver vinnur!
Ferð þú á leikinn?
R SMS LEIKUR SMS LEIKUR SMS LEIKU
R SMS LEI
Meistaradeildin í 100% beinni!
Henry vs. DelPiero
Arsenal vs. Juventus
Léttöl
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
tir
í
Sk
ífu
nn
i S
m
ár
al
in
d/
Kó
pa
vo
gi
. M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rtu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
-
Þú
h
ef
ur
5
m
ín
út
ur
ti
l a
ð
sv
ar
a!
Carlsberg býður þér og vini þínum á Highb
ury að sjá
Arsenal vs Juventus 28.mars!
Sendu SMS skeytið JA MEF á númerið 1900
og þú gætir unnið.
Við sendum þér 2 spurningar. Þú svarar me
ð því að senda
SMS skeytið JA A, B eða C á númerið 1900.
Þú gætir unnið:
• Ferð fyrir 2 á leikinn*
• PS2 tölvu
• PSP tölvu
• Fótbolta tölvuleiki
• Fullt af DVD,
tölvuleikjum og fleira!
*Ferðin á leikinn erdreginn úr ölluminnsendum skeytumþann 24. mars.Vinningshafi verðurbirtur á www.gras.is
Evróp
ukepp
nin
í kna
ttspyr
nu
hefst
á PSP
!
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Walter
Samuel hjá Inter segir að ítalska
félagið eigi ekki að sækjast eftir
því að fá brasilíska sóknarmann-
inn Ronaldo til liðsins. Samuel og
Ronaldo voru liðsfélagar hjá Real
Madrid á Spáni þar til Samuel var
seldur til Inter þar sem hann hefur
endurheimt sæti sitt í argentínska
landsliðinu.
„Ronaldo hefur mikla hæfileika
en það eru margir aðrir leikmenn
sem henta okkur betur. Ég tel
þetta ekki vera rétta tímann til að
sækjast eftir Ronaldo,“ sagði
Samuel. Ronaldo hefur legið undir
harðri gagnrýni fyrir að vera of
þungur og hefur hann ekki átt sjö
dagana sæla að undanförnu.
- egm
Varnarmaðurinn Walter Samuel hefur sterkar skoðanir:
Vill ekki fá Ronaldo í Inter
FUNDIÐ FYRRA FORM Walter Samuel hefur
leikið vel fyrir Inter eftir vonbrigðin hjá Real
Madrid. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Það var rafmögnuð
spenna í íþróttahúsinu í Stykkis-
hólmi í gær þegar KR og Snæfell
mættust öðru sinni í átta liða
úrslitum Iceland Express-deildar-
innar. Snæfell vann fyrsta leikinn
vestur í bæ og gat því tryggt sig
inn í undanúrslitin með sigri á
heimavelli í gær.
Leikur liðanna var æsispenn-
andi frá upphafi til enda og það
var vel við hæfi að úrslitin skyldu
ekki ráðast fyrr en í blálok leiks-
ins. Snæfell var yfir, 62-60, þegar
2,6 sekúndur lifðu leiks en KR
nýtti þessar sekúndur vel því Mel-
vin Scott skoraði úr þriggja stiga
körfu um leið og tíminn rann út og
tryggði KR sigur.
„Þetta var alveg rosalegt,“
sagði kátur þjálfari KR, Herbert
Arnarson, eftir leikinn. „Við
vorum með frumkvæðið að þessu
sinni en annars var þetta jafnt
eins og alltaf hjá þessum liðum.
Við erum búin að mætast sex sinn-
um í vetur en það munar samt
aðeins sjö stigum á liðunum sem
segir sína sögu. Leikirnir ráðast
líka oftast á lokaskotinu og ég hef
sagt það í gríni að við þurfum bara
að skora úr lokaskotinu, þá vinn-
um við.“
- hbg
Snæfell og KR þurfa að mætast þriðja sinni:
Scott tryggði KR odda-
leik gegn Snæfelli
Iceland Express-deild karla:
FJÖLNIR-KEFLAVÍK 84-87
Stig Fjölnis: Nemanja Sovic 25, Grady Reynolds
20, Marvin Valdimarsson 10, Hörður Axel Vil-
hjálmsson 10, Hjalti Þór Vilhjálmsson 8, Alexander
Ivanovic 5.
Stig Keflavíkur: AJ Moye 37, Vlad Boer 13, Arnar
Freyr Jónsson 11, Magnús Þór Gunnarsson 10, Jón
Norðdal Hafsteinsson 10, Gunnar Einarsson 2.
Keflavík vann einvígið, 2-0.
SNÆFELL-KR 62-63
Eins ótrúlega og það hljómar þá gleymdu starfs-
menn Snæfells að taka tölfræði í fyrri hálfleik
í gær og því vart hægt að styðjast við þær tölur
sem gefnar voru upp í gærkvöldi. Hreint ótrúleg
uppákoma sem á sér enga hliðstæðu og það sem
gerir þessa uppákomu enn ótrúlegri en ella er að
þetta skuli eiga sér stað í sjálfri úrslitakeppninni.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Bjarni aftur í „fjarkann“
Bjarni Guðjónsson mun leika í treyju
númer 4 hjá ÍA eins og hann gerði forð-
um. Gunnlaugur Jónsson hefur borið
það númer síðustu ár. Bróðir Bjarna,
Þórður, verður í treyju númer 10 en
Arnar Gunnlaugsson mun bera númerið
13 á bakinu.
KÖRFUBOLTI „Fjölnismenn léku
alveg hörkuvel enda að berjast
fyrir lífi sínu. Þeir lögðu sig mun
meira fram en í fyrri leiknum og
létu okkur vinna fyrir hlutunum.
Ég er bara feginn að sleppa héðan
með sigur og þannig séð spilaði
smá heppni inn í þetta,“ sagði Sig-
urður Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkur, eftir að hans menn
náðu að tryggja sér inn í aðra
umferð úrslitakeppninnar með
naumum 87-84 sigri á Fjölni í
Grafarvoginum í gær. „Það er
mjög þægilegt að hafa náð að klára
þetta í tveimur leikjum, það veitir
manni ekki beint neitt forskot en
góðan aukafrídag,“ sagði Sigurð-
ur.
Það var hart barist í Grafar-
voginum í gær og mikið jafnræði
með liðunum allan leikinn. Kefl-
víkingar voru þó oftast aðeins á
undan, höfðu tveggja marka for-
skot eftir fyrsta leikhlutann og
einnig þegar gengið var til bún-
ingsherbergja í hálfleik 45-43.
Eftir þriðja leikhlutann var for-
ysta gestana fimm stig en í þeim
fjórða og síðasta var allt í járnum
og mikil spenna á lokamínútun-
um.
Staðan var 84-84 þegar hálf
mínúta var eftir af leiknum og
Keflvíkingar fóru í sókn og þar
var það Gunnar Einarsson sem
skoraði. Fjölnismenn voru of ákaf-
ir, misstu boltann og brutu síðan
af sér. Arnar Freyr Jónsson skor-
aði úr öðru vítakastinu og Kefla-
vík með þriggja stiga forskot. Á
lokasekúndunum tók Magnús
Pálsson þriggja stiga skot fyrir
Fjölni og freistaði þess að jafna en
það tókst ekki og úrslitin 84-87.
„Við gerðum allt sem við gátum
til að klára þetta Keflavíkurlið en
það var bara ekki nóg. Það eru
blendnar tilfinningar, ég er ánægð-
ur með hvernig við spiluðum leik-
inn en það var hrikalega svekkj-
andi að tapa. Við vorum að tapa of
mörgum óþarfa boltum en þetta
var mun skárri leikur en sá í
Keflavík. Maður er í þessu til að
vinna, við erum alveg ánægðir en
við stefnum hærra og ætlum að
komast á sama stað og Keflavík er
á,“ sagði Benedikt Guðmundsson,
þjálfari Fjölnismanna.
A.J Moye var besti leikmaður
Keflavíkur og skoraði 37 stig en
eins og oft áður var það Nemanja
Sovic sem var lykilmaður Fjölnis
með 25 stig. Á eftir honum kom
Grady Reynolds með tuttugu stig
en hann gat ekki tekið þátt í loka-
sprettinum í leiknum í gær þar
sem hann fékk sína fimmtu villu í
fjórða leikhluta. - egm
Fjölnismenn létu Keflavík
hafa fyrir hlutunum í gær
Keflvíkingar eru komnir áfram í úrslitakeppni Iceland Express-deildarinnar.
Þrátt fyrir góða baráttu Fjölnis náði liðið ekki að leggja Íslandsmeistarana.
STAL SENUNNI AJ Moye virðist ætla að draga Kefavíkurhraðlestina alla leið í úrslit en hann
var enn eina ferðina yfirburðamaður á vellinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM