Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 2
2 5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ��������������� ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ����� � ANDLÁT Maðurinn sem lést í vinnu- slysi á Kárahnjúkum á sunnudags- kvöld hét Lúðvík Alfreð Halldórs- son, til heimilis að Birkimel 9 í Varmahlíð. Hann var fæddur 19. janúar 1973. Hann lætur eftir sig sambýliskonu, þrjár dætur og þrjú stjúpbörn. Lúðvík Alfreð var gröfustjóri hjá Suðurverki. - jse Nafn hins látna: Lést í slysi á Kárahnjúkum SPURNING DAGSINS? Valgerður, varstu ekki bara að sprengja brandara? ,,Jú, enda algjör brandarakerling.“ Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra bar það af sér á Alþingi í fyrradag að hafa verið að sprengja eitthvað í loft upp með frumvarp- inu um Nýsköpunarmiðstöð. Á Vestfjörðum er gjarnan talað um að sprengja brandara þegar maður slær um sig með gamanmáli. LÖGREGLA Þyrla Landhelgisgæsl- unnar sótti konu á níræðisaldri skammt frá Þóroddsstöðum utan við Laugarvatn í hádeginu í gær. Konan var ásamt eiginmanni sínum á leið í sumarhús. Hugðust þau snúa við og fara heim vegna hálku og erfiðra akstursskilyrða. Konan fór út til að leiðbeina manni sínum, en féll í götuna og rann undir bílinn. Eiginmaður hennar tók ekki eftir henni og ók yfir hana. Mjög hált var á þjóðvegin- um og snjór. Þyrla flutti konuna á slysadeild Landspítalans. Hún er ekki í lífs- hættu en með mikla áverka. - gag Þyrlan sækir slasaða konu: Varð undir bíl eiginmannsins TF-SIF Konan hlaut mikla áverka en er ekki í lífshættu. Þyrlan TF-SIF sótti konuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BAUGSMÁL Gestur Jónsson, verj- andi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir að ákærurnar nýju í Baugs- málinu verði ekki birtar fyrr en allir málsaðilar hafi fengið tæki- færi til þess að kynna sér þær. Krafist verður frávísunar málsins. Jón Ásgeir er ákærður fyrir að stinga í eigin vasa umtalsverðum fjárhæðum þegar hann hlutaðist til um að kaupa verslanir 10-11 án vitundar stjórnar Baugs. Jón Ásgeir vísar þessu á bug og segir að Baugur hafi hagnast á viðskiptunum. Kaupverðið sé það sama og stjórn félagsins hafi samþykkt. Jón Ásgeir telur í yfirlýsingu sinni um málið í gær að settur saksóknari mis- skilji eðli viðskiptanna. Um meintar 400 millj- óna króna ólögmætar lán- veitingar segir Gestur Jóns- son að ef skýringar Héraðsdóms Reykjavíkur á hluta- félagalögum í sýknudómi sínum í síðasta mánuði séu lagðar til grundvallar sé eng- inn vafi á að nýjar ákærur um lán- veitingarnar sópist út af borðinu. Um meint meiriháttar bók- haldsbrot segir Jón Ásgeir að árs- reikningar Baugs hafi verið undir- ritaðir athugasemdalaust frá upphafi, en ákæran felur meðal annars í sér að hann og Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarfor- stjóri Baugs, hafi reynt að fegra stöðu félagsins á hlutabréfamark- aði. Ákært er nú fyrir bókhaldsbrot með því að Jón Ásgeir og Tryggvi hafi látið líta út fyrir að hlutabréf hafi verið seld út úr félaginu án þess að sú hafi verið raunin. Jón Ásgeir segir að skattrannsóknar- stjóri hafi þegar komist að niður- stöðu um það mál. Viðskiptin hafi verið milli stofnenda félagsins og stjórnenda þess. Jóni Ásgeiri er einnig gefið að sök að hafa dregið sér fé úr sjóð- um Baugs, meðal annars til að fjármagna eignarhlut og reka skemmtibát á Flórída. Jón Ásgeir segir að Jón Gerald Sullenberger hafi fengið fé að láni hjá Gaumi til að kaupa umræddan skemmtibát. Jón Gerald hafi bæði keypt bátinn og selt hann sem eig- andi og aldrei fengið neitt greitt vegna reksturs á umræddum skemmtibáti. „Saksóknari hefur ekki viljað kynna sér gögn málsins hvað þennan þátt varðar og hefur því brugðist rannsóknarskyldu sinni sem honum ber lagaleg skylda til að sinna,“ segir í yfirlýs- ingu frá Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni. - johannh@frettabladid.is / sjá síðu 18 Verjendur krefjast frávísunar málsins Ákært er fyrir meintar rangfærslur í bókhaldi Baugs sem gáfu jákvæðari mynd af afkomu félagsins en efni var til árin 2000 og 2001. Jón Gerald Sullenberger á nú hlut að því máli með útgáfu kreditreiknings sem velti Baugsmálinu af stað. SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON SETTUR SAKSÓKNARI Kaup Jóns Ásgeirs á Vöru- veltunni, sem rak 10-11 verslanirnar, telur saksóknari saknæm þar sem hann hafi auðgast á þeim á kostnað almennings- hlutafélagsins Baugs. LÖGREGLAN Stúlku á nítjánda ári var rænt í bifreið sinni á Vestur- landsvegi og tilraun gerð til að nauðga henni seint á aðfaranótt mánudags. Hún var á heimleið þegar maður gekk í veg fyrir bílinn svo hún hélt að eitthvað amaði að og nam því staðar og skrúfaði niður rúðuna. „Þá kýldi hann mig í and- litið og ég bara rotaðist,“ sagði stúlkan. Hún vissi næst af sér þegar hún var í aftursætinu og maðurinn gerði tilraun til að nauðga henni en annar maður ók bílnum og voru þau þá á Hafra- vatnsvegi. Stúlkan slóst á móti og öku- maður missti stjórn á bílnum, sem fór út af veginum. Hún barðist um og hugsanlega hefur ökumaður- inn fipast vegna látanna í aftur- sætinu. „Ég hugsaði um það eitt að bjarga mér,“ sagði stúlkan en mennirnir tóku peninga sem voru í bílnum og lögðu á flótta. „Þetta leit út fyrir að vera ósköp eðlilegur maður þegar ég stoppaði fyrir honum en það er greinilega betra að hugsa sig um áður en maður stoppar fyrir einhverjum,“ segir hún. „Annars er ég að reyna að gleyma þessu en það gengur ekkert. Þó þakka ég fyrir að ekki hafi farið verr en það er eins og einhver vaki yfir mér,“ segir hún. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns var mikil leit gerð að mönnunum í framhaldinu. Bílar voru stöðvaðir í grenndinni og farið um með sporhunda en án árangurs og í gærkvöldi hafði enginn verið handtekinn vegna málsins. - jse Tæplega nítján ára stúlku rænt og reynt var að nauðga henni: Þakkar fyrir að ekki fór verr HAFRAVATN Mennirnir óku Hafravatnsveg þar sem þeir óku út af á svipuðum slóðum og myndin er tekin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GESTUR JÓNSSON OG JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON Forstjóri Baugs hefur sent frá sér tvær yfirlýsingar síðan ákveðið var að ákæra aftur í málinu.BAUGS M Á L I Ð VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofn- un hefur sent lögreglunni kæru og óskað eftir því að starfsemi lithá- ísku starfsmannaleigunnar Euro- elite verði rannsökuð þar sem grunur leiki á að hún hafi ekki farið að leikreglum. Þetta er í fyrsta sinn sem erlend starfs- mannaleiga er kærð hér á landi. Í ákærunni kemur meðal ann- ars fram að starfsmannaleigan er grunuð um að hafa flutt inn og endurleigt 30-40 starfsmenn án þess að hafa fengið leyfi til starf- semi hér á landi, hvað þá dvalar- eða atvinnuleyfi fyrir þetta fólk. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins setti forsvarsmaður Euroelite sig í samband við Vinnu- málastofnun fyrir nokkru síðan og lýsti áhuga sínum á að fara að íslenskum reglum. Ekki hefur þokast nægilega í því máli og er stofnunin ekki sátt við framkomin gögn frá fyrirtækinu. Saksóknari hjá lögreglunni í Reykjavík er að skoða málið og mun rannsókn lögreglunnar fara fram í samráði við hann. Búast má við að óskað verði eftir upplýsing- um frá Euroelite og að forsvars- menn fyrirtækisins verði kallaðir til yfirheyrslu. Euroelite er með höfuðstöðvar í Litháen. Fjallað var nýlega um heimsókn ASÍ á vinnustað þar sem starfsmenn á vegum Euroelite voru starfandi. - ghs ÚR HEIMSÓKN TIL EUROELITE Litháísk starfsmannaleiga hefur verið kærð til lög- reglu vegna gruns um að hafa flutt inn og endurleigt 30-40 erlenda starfsmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Vinnumálastofnun kærir litháísku starfsmannaleiguna Euroelite: Talin hafa 30-40 starfsmenn SINUBRUNAR Starfsmenn gróður- kortagerðar Náttúrufræðistofn- unar Íslands hafa undanfarna daga kannað gróðurskemmdir á Mýrum eftir sinubrunana miklu sem þar geisuðu. Ljóst er að skemmdir á gróðri eru miklar en þó mismunandi eftir svæðum. Sumar tegundir munu verða nokk- ur ár að jafna sig. Guðmundur Guðjónsson, land- fræðingur hjá stofnuninni, segir að fjalldrapi hafi farið verst og lyngtegundir hafi einnig farið illa. Birkið nyrst á Mýrunum virðist hafa sloppið betur vegna þess að vatnsstaða var há þar sem það vex. - shá Sinueldarnir í Borgarfirði: Gróður á Mýr- um illa farinn ÍRAK, AP Íraskir saksóknarar lögðu fram ákærur í gær á hendur Sadd- am Hussein og sex öðrum fyrrum háttsettum mönnum fyrir þjóðar- morð og mannréttindabrot í her- ferð þeirra gegn Kúrdum á níunda áratugnum. Ákærurnar heimila önnur rétt- arhöld yfir einræðisherranum fyrrverandi, en verið er að rétta í máli gegn honum fyrir dráp á yfir 140 sjíamúslimum í bænum Dujail árið 1982. Nýju réttarhöldin geta hafist eftir 45 daga, að sögn dóms- yfirvalda. Herferðin gegn Kúrdum var þrískipt og fólst meðal annars í gasárás á bæ Kúrda, þar sem 5.000 manns, konur og börn meðtalin, týndu lífi. - smk Saddam Hussein: Ákærður fyrir þjóðarmorð SADDAM HUSSEIN Einræðisherrann fyrrver- andi hefur verið ákærður fyrir þjóðarmorð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Árekstur við Hvalfjarðargöng Umferðaróhapp varð við Hval- fjarðargöng síðdegis í gær þegar vörubíll og fólksbíll rákust sam- an. Fólksbíllinn var gamall og var hann talinn ónýtur eftir árekstur- inn. Lítil meiðsl urðu á fólki. Tekinn á 120 km hraða Lögregl- an í Borgarnesi stöðvaði nokkra ökumenn í gær fyrir of hraðan akstur. Einn var á 120 km hraða en mátti aðeins vera á 80 km hraða. LÖGREGLAN Dani féll Þriðji danski hermaðurinn sem fallið hefur í átökunum í Írak var jarðaður í heimabæ sínum, Gimsing. Jesper Nielsen fórst þegar sprengja sprakk í Basra í Suður-Írak hinn 23. mars. Hann var tvítugur að aldri. DANMÖRK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.