Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 39
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006
„Við getum núna sagt nemendum
með góðri samvisku að við séum
að kenna þeim eins vel og ef þeir
færu í bestu skóla erlendis vegna
þess að við erum með kennara frá
þessum skólum,“ segir Jón Ormur
en bætir við að ef Íslendingur
er valinn í kennarahópinn þá er
það ekki vegna þess að er ekki
fáist útlendur kennari heldur út
af því að hann er meðal þeirra
fremstu á sínu sviði. Finnur bend-
ir á að um helmingur kennara í
MBA-náminu séu útlendingar og
stór hluti Íslendingar sem búa
erlendis. Þeim til viðbótar kenna
í náminu sérfræðingar frá HR
auk leiðbeinenda úr atvinnulíf-
inu, sem sérstaklega eru fengnir
til kennslu vegna reynslu og sér-
fræðiþekkingar. Nefnir Finnur
Jónas Fr. Jónasson, forstjóra
Fjármálaeftirlitsins, sem kennir
viðskiptalögfræði í náminu.
Sjálfur býr Jón Ormur í Berlín
í Þýskalandi en hann kemur
reglulega hingað til lands gagn-
gert til að kenna alþjóðaviðskipti
við skólann.
ÓDÝR KOSTUR
Tveggja ára MBA-nám við HR
kostar 2,5 milljónir króna. Finnur
bendir á að námið sé ekki dýrt,
miðað við þann kost að fara í sam-
bærilega skóla í öðrum löndum.
Nemendur sem fara utan verða
án tekna í eitt til tvö ár. Auk
skólagjalda, sem séu mishá, þurfi
viðkomandi svo að framfleyta sér
og fjölskyldu sinni. Í HR geti
sá hinn sami verið í vinnu með
námi og því sé kostnaðaraukinn
langt í frá jafnhár og ef hann
yrði færi nemandinn utan. Þá er
MBA-námið lánshæft og lánar
Lánasjóður íslenskra námsmanna
fyrir skólagjöldum nemenda við
HR.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI