Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 21
Seðlabanki Íslands
Boðar að tímabundið
hægi á hagvexti 12-13
Kína
Meira en upp-
runaland fyrir
ódýrar vörur 22
Háskólinn í Reykjavík
Alþjóðlegt
andrúmsloft í
MBA-námi 18
IG fjárfestir | Icelandic Group
hefur keypt allt hlutafé í Saltur A/
S í Danmörku. Áætluð velta sam-
stæðunnar á árinu 2006 er um 3.500
milljónir íslenskra króna.
Smáralind tapar | Smáralind ehf.
tapaði 101 milljón króna á síðasta
ári samanborið við 43 milljóna
króna tap árið áður.
Stýrivextir hækka | Seðlabanki
hækkaði stýrivexti um 75 punkta
í 11,5 prósent. Greiningardeildir
bankanna höfðu gert ráð fyrir 50
punkta hækkun.
Fylgja Seðlabankanum |
Viðskiptabankarnir brugðust
skjótt við stýrivaxtahækkun
Seðlabankans með því að hækka
vaxtakjör sín.
Mógúll kaupir | Breski fast-
eignamógúllinn Róbert Tchenguiz
er kominn með 8,1 prósents hlut
í finnska fjármálafyrirtækinu
Sampo.
Skuldabréfaútgáfa KB | KB
banki hefur gefið út skuldabréf
fyrir um 43,5 milljarða króna til
fjármögnunar á íbúðalánum bank-
ans hér á landi.
Mikill halli | Vöruskipti voru
óhagstæð um 7,2 milljarða króna
í febrúar en á sama tíma í fyrra
voru þau óhagstæð um 4,8 millj-
arða króna.
Skiptast á | Glitnir hefur keypt
16 prósent hlutafjár í Kreditkorti
af KB banka og KB banki kaupir
18,45 prósent í Greiðslumiðlun af
Glitni.
Nýr forstjóri | Dagsbrún hefur
ráðið Svenn Dam í starf forstjóra
og varastjórnarformanns 365
Media Scandinavia A/S.
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 5. apríl 2006 – 13. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Gott til síðasta dropa
Unnið er að lokafrágangi sam-
bankaláns til BNbank í Noregi
undir forystu Danske Bank.
Lánið er tekið á svokölluðum
millibankalánamarkaði, en hann
er einn valkosta banka við fjár-
mögnun, auk skuldabréfaútgáfu
og fleiri leiða. BNbank er í eigu
Glitnis banka, en er sjálfstæður
banki með eigin fjármögnun.
Samkvæmt heimildum
Markaðarins er ekki búið að loka
láninu og því liggja ekki fyrir
kjörin sem bankanum bjóðast,
en stefnt mun að því að skrifa
undir lánið í lok þessa mánaðar
eða byrjun næsta. Að sama skapi
liggur ekki enn fyrir hversu
margir bankar koma á endanum
til með að taka þátt í láninu.
21. mars gaf greiningardeild
Danske Bank frá sér svarta
skýrslu. Umfjöllunarefnið var
bág staða íslensku bankanna og
yfirvofandi efnahagskreppa á
Íslandi.
Greiningardeildir bankanna
hér sögðu skýrsluna illa grundaða
og á misskilningi byggða og sendi-
ráð Íslands í Kaupmannahöfn
brást við með tilkynningu um
styrka stöðu íslensku bankanna.
Greiningardeildir eru hins vegar
sjálfstæðar og ekki hægt að setja
samasemmerki á milli skrifa
þeirra og annarrar starfsemi
banka.
Sambankalánið til BNbank
sem unnið er að er sambærilegt
við lán sem Kaupþing banki fékk
í Evrópu undir miðjan síðasta
mánuð, en þar naut bankinn um
fjórum sinnum hagstæðari kjara
en buðust á skuldabréfamarkaði.
Þar tóku alls 27 bankar þátt í lán-
inu sem var að upphæð 500 millj-
ónir evra, eða um 43 milljarðar
króna. - óká
Danske leiðir lán til BN
Verið er að ganga frá sambankaláni til BN bank í Noregi. Danske Bank
leiðir lánið. BN bank er í eigu Glitnis banka.FL Group hefur aukið við hlut sinn í finnska flugfélaginu Finnair og
á eftir kaupin 10,025 prósenta
hlut í félaginu. Að sögn Alberts
Jónssonar, framkvæmdastjóra
FL Group, hefur fyrirtækið aukið
við hlut sinn í Finnair jafnt og
þétt. „Finnair hefur skilað góðri
afkomu og teljum við fyrirtæk-
ið spennandi fjárfestingakost.
Fyrirtækið er fjárhagslega sterkt
og með spennandi vaxtastefnu til
lengri tíma litið,“ sagði hann.
Í ársskýrslu FL Group kemur
fram að fyrirtækið átti 9,5 pró-
senta hlut í Finnair fyrir kaupin.
Markaðsvirði hlutarins nemur
um 10 milljörðum króna. - jab
FL kaupir í
Finnair
EIN VÉLA FINNAIR Hlutur FL Group í
Finnair nemur um 10 milljörðum króna að
markaðsvirði.
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Hlutabréf í erlendum fyrirtækjum, sem eru að
stórum hluta í eigu Íslendinga, hafa fallið í verði
af ótta við að íslensku eigendurnir hafi ekki burði
til að taka þau yfir og verði að selja bréfin til að
laga sínar lausafjárstöur. Þetta kemur í kjölfar nei-
kvæðra frétta um horfur á lánshæfismati íslensku
fjármálafyrirtækanna. Hvergi hefur þetta komið
betur fram en í bresku Kauphöllinni þar sem
easyJet og Woolworths hafa lækkað að undanförnu.
Hræðsla um að FL Group verði að selja hlut í
easyJet, sem er um þrjátíu milljarðar að mark-
aðsverði, hefur gert fjárfesta óörugga og lækkaði
markaðsverðmæti easyJet um þrettán milljarða
á fáeinum dögum. French Connection, sem er að
fjórtán prósentum hluta í eigu Baugs, hefur lækkað
verulega að undanförnu.
Jónas Gauti Friðþjófsson, sérfræðingur hjá
Greiningu Glitnis, telur að þessi umfjöllun kunni
að hafa smitast yfir á íslenska markaðinn sem
hefur gefið mjög eftir í byrjun vikunnar. „Það er
eðlilegt að á þroskuðum og skilvirkum mörkuðum
leiði óvissa til verðbreytinga og við sjáum það
glöggt að fjárfestar eru næmir á að bregðast hratt
við nýjum fréttum, sérstaklega neikvæðu umtali.“
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans fyrir helgi hafi
ekki síður haft áhrif á íslenska markaðinn. Jónas
bendir á að ávöxtun undanfarinna mánaða hafi
verið mjög góð.
Morten nokkur Kongshaug, sérfræðingur hjá
Danske Bank, er þess fullviss að að íslensk fyrir-
tæki á borð við Baug, FL Group og KB banka muni
selja hlutabréf í breskum félögum í hrönnum. Í
samtali við Times segir hann að þegar einn byrji,
þá fylgi hinir í humátt á eftir.
Svipuð umræða hefur verið uppi hjá dönsk-
um fjölmiðlum þótt fjárfestingar íslenskra aðila
á dönskum hlutabréfamarkaði séu í minni mæli.
Fjárfestar eru ekki vissir um að FL Group geti
tekið Bang & Olufsen og Royal Unibrew yfir og
jafnvel hefur heyrst að íslenska félagið verði að
losa bréf sín.
En það er ekki allt á fallanda fæti í útrásinni.
Sænski Carnegie-fjárestingabankinn hækkað mikið
í verði að undanförnu meðal annars vegna vænt-
inga um að Landsbankinn – stærsti hluthafinn
– kunni taka hann yfir. Hluturinn í Carnegie hefur
þannig meira en tvöfaldast á einu ári.
Virði erlendra
hlutabréfa lækkar
Erlend hlutabréf í eigu íslenskra stórfyrirtækja lækka í virði.
Umræðan hefur mikil áhrif á íslenska markaðinn.
Matsfyrirtækið Moody’s segir
að ekki steðji hætta að greiðslu-
hæfi og lausafjárstöðu Íslands.
Í skýrsku sem fyrirtækið birti
í gær er komist að þeirri nið-
urstöðu að landið standi ekki
frammi fyrir óhóflegum greiðslu-
hæfis- eða lausafjárvandræðum
vegna óstöðugleika sem gætt
hefur í viðskipta- og fjármála-
umhverfinu. Lánshæfiseinkunn
ríkissjóðs er Aaa.
„Þótt við höfum varað við
hættum sem fylgja aukinni
skuldsetningu hagkerfisins, þá
hefur Ísland hæstu lánshæfis-
einkunn okkar og horfurnar eru
stöðugar. Við teljum að áhyggjur
sem nýverið hafa fram komið
séu orðum auknar,“ segir Joan
Feldbaum-Vidra, höfundur
skýrslunnar hjá Moody’s. - óká
Moody’s segir
stöðuna góða