Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 52
 5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR28 VI N N IN G A R VE RÐ A A FH EN D IR H JÁ B T SM Á RA LI N D . K Ó PA VO G I. M EÐ Þ VÍ A Ð T A KA Þ ÁT T ER TU K O M IN N Í SM S KL Ú BB . 9 9 KR /S KE Y TI Ð . Íslandsmót iðnnema sem bar yfir- skriftina Gerðu betur var haldið í Kringlunni á föstudaginn en þá var einmitt Dagur iðn- og starfsmennt- unar. Um alla Kringluna mátti sjá nema við iðju sína hvort sem það var að klippa hár, leggja dúka, leggja raflagnir, mála veggi, smíða, farða dömur eða leggja flísar. Í lok dagsins voru verkefnin svo dæmd og sigurvegurum afhend verðlaun. Fyrirtækin Iðnmennt og Mennt stóðu fyrir mótinu en með því að halda það í Kringlunni gafst almenningi færi á að fylgjast með verkum nemanna verða til. Iðnnemar gerðu betur í Kringlunni SNYRTIFRÆÐI Harpa Rut Hallgrímsdóttir úr Snyrtiskólanum í Kópavogi farðar módel sitt, Sylvíu Smáradóttur. TRÉSMÍÐI Þorgerður Stefánsdóttir frá Verk- menntaskólanum á Akureyri. LEIRKERASMÍÐI Frosti Örn Gnarr Gunnars- son við leirkerasmíði. HÁRGREIÐSLA Theódóra Mjöll Skúladóttir úr Iðnskólanum í Reykjavík. RAFVIRKJUN Jón Ágúst Sigurðsson frá Verkmenntaskólanum á Akureyri leggur raflagnir. DÚKALAGNINGAR Örn Ingi Ágústsson frá Iðnskólanum í Reykjavík. MÁLUN Edward Morthens frá Iðnskólanum í Reykjavík. Í möndlulínunni frá L´occitane er að finna tvær nýjungar sem gera kraftaverk. Annars vegar er gel sem er sérhannað fyrir brjóstin. Það er borið á til að gera þau stinn- ari og fallegri. Gelið inniheldur möndluprótein, sem er ekki ólíkt efninu kollagen sem hjálpar slappri húð. Gott er að bera gelið á barm- inn og upp að hálsinum og á svæðið þar í kring. Hin nýjungin í möndlu- línunni er líkamsolía sem gerir húðina dúnmjúka og stinna. Hún er góð fyrir konur sem eru í líkam- ræktarátaki og vilja grenna sig en húðin á það til að slakna þegar kíló- in hverfa. Möndluolían er líka sérlega fín fyrir óléttar konur og þá er gott að bera nóg af henni á bumbuna og allan líkamann. Olían gerir það sama og brjóstagelið, hún stinnir húðina og svo lyktar hún dásam- lega. Bæði gelið og olían fást í versluninni L´Occitane á Lauga- vegi. Stinnari brjóst Til mikils er að vinna fyrir þá Íslendinga sem reyna fyrir sér í inntökuprufum sjónvarpsþáttar- ins Rock Star en þær fara fram á Gauki á Stöng í dag. Sextán kepp- endur hvaðanæva að úr heiminum munu búa í villu í Los Angeles og reyna að heilla hljómsveitarmeð- limi ofurgrúppunnar Supernova en hún er skipuð ólátabelginum Tommy Lee úr Mötley Crüe, Jason Newsted sem var í Metallicu og Gilby Clarke, fyrrum gítarleikara Guns n‘ Roses. Plötuútgáfa og tón- leikaferðalag um heiminn eru meðal þess sem verður á dagskrá næstu rokkstjörnunnar og því ljóst að draumurinn um frægð og frama er rétt handan við hornið. Þurfum alvöru rokkara Vegna þessara prufa eru þau Lisa Tercheria og Dean Houser stödd hér á landi en þau hafa ferðast um allan heim fyrir hönd þáttarins. „Síðasta stjarnan kom frá Toronto og við leggjum áherslu á að leita ekki eingöngu í Bandaríkjunum,“ segir Dean. Markmið þáttarins er að sýna hvað þurfi til að lifa af í heimi rokksins, bætir hann við og hefur augljóslega orð fyrir þeim báðum. Í fyrra vann Kanadabúinn JD Fortune sér réttinn til að leiða áströlsku poppsveitina INXS en hann hafði verið á götunni í nokkurn tíma áður en að þættin- um kom. Hann er núna með þrjár manneskjur sem halda utan um dagskrána hjá sér, leikur í mynd- böndum með ofurfyrirsætum og ferðast um allan heiminn, segir Dean. Að þessu sinni er hins vegar leitað að mun yngri manneskju sem getur sungið alvöru rokk. Supernova var stofnuð sérstak- lega fyrir þáttinn og er því enn að þróa sinn hljóm, segir Dean. Því skiptir í raun litlu máli hvort söngvarinn er stelpa eða strákur, bætir hann við. „Við erum ekki með nein aldurstakmörk upp á við og því verður úrvalið mjög fjöl- breytt; allt frá krökkum sem eru að stíga sín fyrstu skref til reynslubolta sem hafa verið að í langan tíma,“ útskýrir hann. Fremstu söngvarar landsins mæta Leitarliðið hefur komið við á Nýja-Sjálandi, Kanada og í Asíu en síðasti viðkomustaðurinn er Ísland. Lisa segir að þeim Dean hafi verið boðið hingað en jafn- framt hafi framleiðendurnir heyrt af fjölskrúðugu tónlistarlífi land- ans. „Okkur hefur meðal annars verið tjáð að margir af fremstu söngvurum landsins ætli að mæta í dag,“ segir Dean en hópurinn heldur til Los Angeles þegar pruf- unum er lokið þar sem lagst verð- ur yfir þær upptökur sem til eru. Fimmtíu heppnir fá að koma til Los Angeles og reyna sig fyrir framan hljómsveitina en síðan eru sextán valdir í lokahópinn, bætir Lisa við en miklar kröfur eru gerðar til þeirra sem vilja komast að. Ekki er aðeins leitað að fólki sem kann að syngja held- ur þarf það einnig að geta staðið fyrir framan sjónvarpsvélarnar. Tónlistarþættir hafa notið tölu- verðra vinsælda um allan heim og munar þar mest um Idol-fyrirbær- ið. Dean segir Rock Star-þáttinn vera af allt öðrum meiði. „Þeir sem taka þátt eru mun eldri og hafa því sterkari sjálfsmynd auk þess sem við forðumst að gera grín að þátt- takendum,“ segir Dean. ■ DEAN HOUSER OG LISA TERCHERI Eru hér á vegum Rock Star-leitarinnar en áheyrnarprufur fara fram á Gauki á Stöng í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA GERUM EKKI GRÍN AÐ ÖÐRUM Lisa Tercheria og Dean Houser eru stödd hér á landi vegna áheyrnarprufa í sjónvarpsþáttinn Rock Star sem kemur úr smiðju Marks Burnett, höfundar Survivor. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þau um hvað næsta rokkstjarna þyrfti að hafa til brunns að bera. ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� �
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.