Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 10
10 5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR
�������������������
��������������������
�������������� �������������
������������������������ ������������
����������������������������������������
��� ����������� ���������������������
����������������������������
��������������
��������������������������������������� ��������������������������������������������� ������������������������
������������������������������� �� ������������
��������������������������������������������������������������������������������������� ���������������������
���������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
��������������������������������������������������������������������������� ����������������������������� ����������������
SÍERRA LEÓNE, AP Charles Taylor,
fyrrum forseti Líberíu, lýsti yfir
sakleysi sínu við upphaf réttar-
halda yfir honum fyrir stríðs-
glæpadómstól-
um í Síerra
Leóne á mánu-
dag. Taylor er
sakaður um
stríðsglæpi svo
sem kynlífs-
þrælkun, lim-
lestingar og að
hafa sent börn í
bardaga.
Verjendur
hans segja stríðsglæpadómstólinn
ekki hafa vald til að dæma Líberíu
eða fyrrum forseta hennar.
Saksóknarar hafa farið fram á
að réttarhöldin verði flutt til Hol-
lands, en núverandi forseti Líber-
íu, Ellen Johnson Sirleaf, hefur
sagt að hún óttist að stuðnings-
menn Taylors noti réttarhöldin í
nágrannaríkinu Síerra Leóne sem
afsökun fyrir uppreisn. - smk
Réttað yfir Charles Taylor:
Segist saklaus
CHARLES TAYLOR
DANMÖRK „Þessir Íslendingar
hafa margsinnis gert það sem
þeir hafa sagst ætla að gera og
því væri það heimskulegt að taka
þá ekki alvarlega“. Þetta sagði
ritstjóri stærsta fríblaðs Dan-
merkur, MetroXpressen, í viðtali
við Berlingske Tidende í gær.
Ritstjórinn sagði þó ólíklegt
að MetroXpressen myndi bregð-
ast við samkeppninni með því að
dreifa blaðinu inn á heimili líkt
og Dagsbrún hyggst gera. For-
svarsmaður útgáfufyrirtækis
Urban, hins fríblaðsins á danska
markaðnum, sagði hins vegar að
fyrirtækið myndi fylgjast vel
með þróun mála hjá nýja fríblað-
inu og taka ákvarðanir í kjölfar-
ið.
Haft er eftir Gunnari Smára
Egilssyni, framkvæmdastjóra
Dagsbrúnar, í frétt Berlingske
Tidende að hugsanleg kaup fyrir-
tækisins á Orkla Media breyti
engu um fyrirætlanirnar um frí-
blaðið. Dagblaðið Urban er í eigu
Orkla Media.
Svenn Dam, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri 365 Media Scand-
inavia, dótturfyrirtækis Dags-
brúnar, segir að fyrirtækið muni
sjálft sjá um dreifingu blaðsins
enda séu þau dreifingarfyrirtæki
sem fyrir eru á markaðnum ekki
fýsilegir samstarfsaðilar. - ks
Berlingske Tidende fjallar um fríblað Dagsbrúnar í Danmörku:
Nýtt fríblað tekið alvarlega
GUNNAR SMÁRI OG SVENN DAM Forstjóri
Dagsbrúnar segir að hugsanleg kaup á
Orkla Media, sem á fríblaðið Urban, breyti
engu um fyrirætlanir um nýtt fríblað.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sjálfstæðisfé-
lag Sandgerðisbæjar hefur kynnt
framboðslista sinn til sveitar-
stjórnarkosninganna sem fara
fram í vor.
Efsta sæti listans skipar Sigurð-
ur Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri.
Í næstu sætum eru Hólmfríður
Skarphéðinsdóttir, starfsmaður í
grunnskóla Sandgerðis, Reynir Þór
Ragnarsson verkefnisstjóri og
Gróa Axelsdóttir grunnskólakenn-
ari.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
setið í meirihlutasamstarfi með K-
lista á þessu kjörtímabili. - sdg
Bæjarmál í Sandgerði:
D-listi kynnir
framboð sitt
SÉRSVEIT STOFNUÐ Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, og innanríkisráðherrann
Charles Clarke skoða sportbíl sem gerður
hefur verið upptækur í baráttunni gegn
skipulagðri glæpastarfsemi. Stofnuð hefur
verið ný sérsveit í Bretlandi, SOCA, til að
heyja þessa baráttu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VARNARMÁL Það er í raun fyrst nú,
hálfum öðrum áratug eftir enda-
lok kalda stríðsins, að Íslendingar
eru að taka varnarmál íslenska
lýðveldisins í eigin hendur, nauð-
beygðir vegna uppnámsins sem
varnarsamstarfið við Bandaríkin
er komið í. Þetta er meðal þess
sem fram kom á málfundi í Háskól-
anum á Akureyri í gær, þar sem
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, flutti
fyrirlestur um stefnumótun í utan-
ríkismálum.
Í fyrirlestrinum vék Jón að
stöðunni sem upp er komin í varn-
armálunum. Sagði hann að nú
kæmi mjög skýrt í ljós gallinn við
það að íslensk stjórnvöld hefðu
aldrei komið sér upp eigin sér-
þekkingu á hermálum, á hinni
tæknilegu hlið varnar-
mála, sem nýst gæti í
samningaviðræðum eins
og þeim sem nú eru hafn-
ar við Bandaríkjamenn.
Slík þekking væri for-
senda fyrir því að Íslending-
ar gætu á eigin forsendum
metið til dæmis hvers konar
varnarviðbúnaður þyrfti að vera
til staðar á landinu til að varnar-
þörfum landsins væri fullnægt.
„Þetta tvíhliða varnarsamstarf
við Bandaríkin hefur auðvitað
dregið dám af því,“ sagði Jón.
Ákvarðanir um þennan viðbúnað
hafi Bandaríkjamenn tekið „því
sem næst einhliða“, og það „þrátt
fyrir að það væri grundvallarat-
riði þessa samnings að hann skyldi
tryggja varnir Íslands og reyndar
svæðisins í kring.“
Jón rakti að frá og með valda-
töku George W. Bush
vestra árið 2000 „og nánar tiltek-
ið með inngöngu Donalds Rums-
felds í Pentagon“ hefðu Banda-
ríkjamenn tekið endanlega
ákvörðun um að draga herlið sitt
frá Íslandi. Röksemdirnar væru
einfaldar: að Íslandi steðjaði
engin hernaðarleg ógn frá neinu
þjóðríki og í öðru lagi hefði Rums-
feld frá fyrsta degi í embætti
verið að framkvæma kenningar
um algera endurskipulagningu
bandaríska heraflans. Hann ætti
að vera hægt að senda fyrirvara-
laust til átakasvæða hvar sem
væri í heiminum og allsherjar-
endurskoðun herstöðvanets
Bandaríkjanna væri liður í þessu.
„Það er verið að færa hann til
hinna nýju átakasvæða í hinu
nýja kalda stríði, sem er löngu
hafið og snýst um forræði og yfir-
ráð yfir olíu og orku og öðrum
hráefnum,“ sagði Jón.
Að varnarliðið færi hefði því
ekki átt að koma íslenskum ráða-
mönnum á óvart. „Íslendingum
hefur verið talin trú um að þetta
yrði ekki af því að Davíð Oddsson
væri persónulega svo vel kynntur
í Washington, að hann væri svo
góður vinur George W. Bush.
Þegar menn fengu efasemdir um
að þetta væri alls kostar rétt, þá
töldu menn að þetta væri allt í lagi
vegna þess að Geir Haarde hefði
stundað nám hjá Johns Hopkins,
sem er með útibú við Massa-
chusetts Avenue, sem er ekki langt
frá Hvíta húsinu, og hann hefði
haft sama kennara og Condoleezza
Rice og væri þess vegna ákaflega
vel kynntur.
Það bendir ýmislegt til þess að
það versta hafi hent, nefnilega
ekki að þeir sögðu þetta heldur að
þeir hafi trúað þessu sjálfir, og
kom þess vegna gersamlega í opna
skjöldu að hvorugt dugði þegar á
reyndi. Á þessu höfum við tapað
svolitlum tíma,“ sagði Jón en bætti
við að Íslendingar ynnu oft best í
tímahraki þannig að ekki væri
útséð um að þetta færi allt vel að
lokum. audunn@frettabladid.is
Ríkisstjórnin í tímahraki
Jón Baldvin Hannibalsson segir Íslendinga lenta í tímahraki með að vinna úr því hvað við taki við brott-
hvarf bandaríska varnarliðsins, en Íslendingar hafi oft sýnt að þeir vinni best þegar þannig standi á.
DAVÍÐ ODDSSON OG GEORGE W. BUSH Jón Baldvin segir að Íslendingum hafi
verið talin trú um að Varnarliðið færi ekki vegna persónulegra kynna Davíðs
og Bush. NORDICPHOTOS/AFP
Í HÁSKÓLANUM Á AKUREYRI Jón Baldvin
fjallaði um varnarmálin á málfundi á Akur-
eyri í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
DANMÖRK Jafnréttisráðherra Dan-
merkur hyggst ekki verða við
kvörtunum kvenréttindasamtaka
vegna höfuðklúts sem þáttastjórn-
andi í danska ríkissjónvarpinu
ber. Höfuðklæðnaður hinnar 24
ára sjónvarpskonu Asmaa Abdol-
Hamid hefur vakið töluverða
athygli í Danmörku og óánægju
fjölda kvenréttindasamtaka.
Hafa talsmenn samtakanna
sagt klútinn dæmi um kúgun
kvenna og því vísað málinu til
ráðherra jafnréttismála. Ráð-
herrann segir það hins vegar í
verkahring forsvarsmanna
danska ríkisstjórnvarpsins að
taka á málinu. - ks
Sjónvarpskona í Danmörku:
Fær að bera
höfuðklút