Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 12
 5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR IÐNAÐUR Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fagnar fregnum um að Norðurál hafi flýtt fyrirhugaðri stækkun álversins á Grundartanga um sem nemur einu ári. „Ég tel að þetta séu góðar frétt- ir. Áætlanir um aðra kosti í upp- byggingu álframleiðslunnar eru óútkljáðir og ekki útséð hvenær þeir kostir skýrast, til dæmis varð- andi orkuöflunina og verð. Við vissum að þetta gæti orðið. Nú liggur það fyrir að þennan nýja áfanga verður hægt að taka í notk- un strax að lokinni þeirri stækkun sem nú er unnið að í stað þess að hlé yrði gert fyrir síðasta áfang- ann. Ég tel að það sé mikikilvægt og gott fyrir efnahagslífið,“ segir Valgerður. Stækkunin á Grundartanga kemur meðal annars til af beiðni Suðurnesjamanna um aukinn flýti vegna atvinnuástands þar svo fara megi fljótt í að reisa álver í Helgu- vík. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, er vongóður um að þar rísi álver. „Flest verkefni sem við erum að vinna til undirbúnings álveri að ganga hraðar, þetta er einn þáttur í því,“ segir hann og nefnir einnig jávæð svör um orku- öflun í samstarfi við Hitaveitu Suðurnesja og samninga um lóðir og hafnaraðstöðu. „Allt gengur þetta samkvæmt áætlun.“ - jh/sdg Framtíðarsjóður Ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga Engin lágmarksinnborgun Verðtryggður Bundinn til 18 ára aldurs Kjör haldast óbreytt þótt innstæða sé ekki tekin út við 18 ára aldur Vildarviðskiptavinur Sparisjóðsins sem gefur fermingarbarni 5.000 króna gjafabréf í Framtíðar- sjóð Sparisjóðsins eða meira fær 2.000 króna viðbót við gjöfina frá Sparisjóðnum. Gefðu gjöf sem stækkar í pakkanum! Gjöfin vex í pakkanum F í t o n / S Í A F I 1 6 7 1 3 5.000 kr. verða 7.000 kr. Kíktu á spar.is og reiknaðu út ávöxtun á sparnaði í Framtíðarsjóði Sparisjóðsins. NISSAN X-TRAIL Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16 Ríkulegur staðalbúnaður 17" álfelgur, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga. E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 5 8 9 Nissan X-Trail Sport 2.990.000 kr. FULLBÚINN Á FRÁBÆRU VERÐI! ÞÝSKALAND, AP Dómstóll í Hamborg hefur dæmt Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslara Þýskalands, í vil í meiðyrðamáli sem hann höfð- aði á hendur Guido Westerwelle, leiðtoga Frjálsra demókrata, stærsta stjórnarandstöðuflokksins á þýska þinginu, vegna ummæla um þátt Schröders í samstarfs- verkefni Þjóðverja og Rússa um lagningu gasleiðslu um Eystrasalt frá Rússlandi til Þýskalands. Samkvæmt dómnum er Westerwelle bannað að endurtaka þá fullyrðingu að Schröder hafi „gefið fyrirtæki starf“ og síðan þegið sjálfur starf hjá fyrirtæk- inu. Að Schröder skyldi hafa betur fyrir rétti að þessu sinni virtist þó ekki til þess fallið að slá neitt á þá vaxandi gagnrýni sem hann sætir heima fyrir vegna starfa sem hann hefur þegið eftir að hann fór úr kanslarastólnum í nóvember. Fáeinum vikum eftir að hann hætti þáði hann stjórnarformennsku í rússnesk-þýska samstarfsfyrir- tækinu um lagningu gasleiðslunn- ar, en að koma því á koppinn hafði verið eitt síðasta embættisverk hans. Í síðustu viku var hann form- lega skipaður í stjórnarfor- mennskustarfið. Upplýst var að hann þæði fyrir það sem svarar rúmlega 21 millj- ón króna í árslaun. Schröder hefur þegið boð um stjórnarsetu og ráð- gjöf við ýmis önnur fyrirtæki. - aa SCHRÖDER Í MOSKVU Fékk dómstól til að banna pólitísk ummæli um þátt sinn í rússnesk-þýska gasleiðslufyrirtækinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Gerhard Schröder dæmt í vil vegna ummæla stjórnarandstæðings: Gagnrýni vex á störf Schröders ÁRNI SIGFÚSSON OG VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ og iðnaðar- ráðherra eru ánægð með að Norðurál ætli að flýta framkvæmdum. Ráðherra og bæjarstjóri fagna fréttum af stækkun álversins á Grundartanga: Aðrir kostir eru óútkljáðir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.