Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 5. apríl 2006
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
31
83
5
0
3/
20
06
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Hvers vegna
gerist alltaf allt,
allt í einu?
Líf- og sjúkdómatrygging TM
Dæmi um hvað tryggingarnar bæta:
// Sjúkdómatrygging greiðir bætur þegar hinn tryggði
greinist með tiltekinn sjúkdóm eða þarf að gangast
undir aðgerð. Bætur eru greiddar út í formi eingreiðslu.
Dæmi um sjúkdóma sem falla undir trygginguna:
Hjartaáfall – kransæðaskurðaðgerð – krabbamein
hjartalokuaðgerð - skurðaðgerð á meginslagæð/ósæð
heilaáfall - góðkynja heilaæxli – MS - MND - meiriháttar
líffæraflutningar – nýrnabilun – alzheimersjúkdómur –
parkinsonssjúkdómur - alvarleg brunasár – útlimamissir
– blinda.
// Líftrygging greiðir rétthöfum bætur við fráfall þess sem
tryggður er, hvort sem það er af völdum sjúkdóma eða
slysa. Hinn vátryggði ákveður sjálfur hverjir eru rétthafar
bóta og eru þeir tilgreindir á vátryggingarskírteini.
Bætur eru greiddar út í formi eingreiðslu og eru skatt-
frjálsar. Líftrygging gildir til 70 ára aldurs hins vátryggða.
Við sumum spurningum fást bara engin svör.
Það er ekki nema einn stafur sem skilur að gæfu og ógæfu. Þannig er það líka oft í lífinu.
Þú getur minnkað áfallið með því að tryggja þig hjá tryggingafélagi sem gefur þér skýr
svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála.
Það er því miður ekki hægt að sjá fyrir óorðna hluti. Það hvetur alla sem hafa fyrir öðrum
að sjá og hafa tekist á hendur fjárhagslegar skuldbindingar, að gera ráðstafanir gagnvart
hinu óvænta og tryggja fjárhagslegt öryggi sitt og sinna.
Líf- og sjúkdómatrygging TM er jafnt fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Tryggingaráðgjafar
TM hjálpa þér að meta tryggingaþörfina og velja saman þá þætti sem reynslan sýnir að
gagnast best í hverju tilfelli fyrir sig.
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.
ÍRLAND, AP Bretar hófu að taka
niður fimm síðustu varðturna sína
á landamærum Írlands og Norður-
Írlands á mánudag. Niðurrif turn-
anna er hluti af ákvörðun sem
tekin var í framhaldi loforðs Írska
lýðveldishersins, IRA, í fyrra um
að afvopnast, og hafa Írar lengi
beðið þess að breski herinn rífi
þessa turna.
Turnarnir stóðu á þremur
hæðum í Suður-Armagh, þar sem
IRA hefur löngum haft bækistöðv-
ar sínar. Turnarnir, auk átta ann-
arra, voru byggðir um miðjan
níunda áratuginn, svo breski her-
inn gæti betur fylgst með athöfn-
um IRA-manna. - smk
Niðurrif í kjölfar loforðs um afvopnun IRA:
Varðturnar rifnir
TURNAR RIFNIR Breski herinn hefur hafist
handa við að rífa niður fimm síðustu varð-
turnana á landamærum Norður-Írlands og
Írlands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TYRKLAND, AP Fimmtán manns
höfðu í gær látist í óeirðum í
kúrdahéröðunum í suðausturhluta
Tyrklands undanfarna viku. Ekk-
ert lát virðist vera á átökunum.
Óeirðirnar hafa brotist út í
tengslum við mótmælaaðgerðir
Kúrda, sem haldnar hafa verið í
framhaldi af jarðarförum fjórtán
skæruliða frá samtökum sem kalla
sig Verkalýðsflokk Kúrdistans, eða
PKK. Skæruliðarnir féllu í aðgerð-
um tyrkneskra öryggissveita fyrir
hálfri annarri viku.
Tyrknesk stjórnvöld, Bandarík-
in og Evrópusambandið líta á þessi
samtök sem hryðjuverkasamtök.
Með mótmælafundum sínum vilja
Kúrdar hins vegar sýna ótvírætt
fram á stuðning sinn við samtökin,
sem hafa áratugum saman barist
fyrir réttindum Kúrda, lengst af
með það markmið að stofna sjálf-
stætt ríki Kúrda í suðausturhluta
Tyrklands.
Tyrknesk stjórnvöld viður-
kenna ekki Kúrda sem sérstakan
þjóðernishóp og veita þeim því
ekki nein sérstök minnihlutarétt-
indi. Recep Tayyip Erdogan, for-
sætisráðherra Tyrklands, sagði að
engra breytinga væri að vænta á
þessu.
Hann sagði átökin vera eftir-
hreytur af deyjandi málstað og
stjórnvöld myndu taka á „Kúrda-
vandamálinu“ með því að efla lýð-
ræði og velferð fólks.
„Ekkert lýðræðisríki í heimin-
um getur sýnt ofbeldi neitt umburð-
arlyndi,“ sagði Erdogan. „Leyfum
þeim sem vilja tala að gera það, en
aldrei verður hægt að viðurkenna
réttmæti hryðjuverka.“
Á hinn bóginn sagði hann líka:
„Enginn skyldi dirfast þess að láta
reyna á mátt ríkisins eða þjóðar-
innar.“
Osman Baydemir, borgarstjóri í
Dijarbakir þar sem átökin hafa
verið alvarlegust, hvetur nú til
þess að menn haldi ró sinni, en
hann er sjálfur Kúrdi. Hann sagði
þrjú börn vera meðal hinna látnu
og hvatti stjórnvöld til þess að
kanna hvort ástæða hafi verið til
að láta herinn beita skotvopnum
gegn mótmælendahópnum.
„Eftir því sem ég best veit
myndi það gerast í ríkjum þar sem
mannréttindi og lýðræði eru í
hávegum höfð, að aðrir yrðu rekn-
ir eða látnir sæta rannsókn þegar
þrjú börn væru drepin af völdum
skotvopna,“ sagði hann.
gudsteinn@frettabladid.is
Mótmælin
halda áfram
Átökin í Kúrdahéröðum Tyrklands hafa kostað
fimmtán manns lífið. Tyknesk stjórnvöld hvetja
Kúrda til að tjá sig eftir lýðræðislegum leiðum.
KÚRDAR MÓTMÆLA Einn mótmælendanna í bænum Birecik heldur þarna á dagblaði með
mynd af kúrdaleiðtoganum Abdullah Öcalan, fyrrverandi leiðtoga PKK. Öcalan varð 57 ára í
gær en hefur setið í tyrknesku fangelsi árum saman. FRÉTTABLAÐIÐ/AP