Fréttablaðið - 05.04.2006, Qupperneq 22
MARKAÐURINN
Síminn sendi fyrirspurn til
stjórnar Kögunar þar sem óskað
var eftir upplýsingum um sölu á
eigin hlutabréfum Kögunar þann
14. mars síðastliðinn, degi fyrir
örlagaríkan aðalfund félagsins,
en Síminn og Exista urðu undir
í stjórnarkjöri. Í fyrirspurn
Símans var annars vegar óskað
eftir upplýsingum um kaupanda
bréfanna og hins vegar um hvaða
aðilar hefðu borið ábyrgð á söl-
unni fyrir hönd Kögunar.
Örn Karlsson, stjórnarformað-
ur Kögunar, segir að borist hafi
tilboð í eigin bréf Kögunar frá
aðila utan úr bæ fyrir milligöngu
miðlara. „Staðan var sú að þessi
bréf voru seld á markaðsverði.
Fjármálastjóri og forstjóri önn-
uðust söluna fyrir hönd félagsins
með heimild stjórnar.“
Örn segist ekki geta greint frá
því hver hefði keypt en sagði þó
að hann tengdist félaginu á engan
hátt. Myndi hann skýra frá því
við aðra stjórnarmenn Kögunar,
þar á meðal fulltrúa frá Símanum
og Exista, hver sá hefði verið.
Eigin bréf Kögunar námu 1,6
prósentum af hlutafé bankans
áður en salan fór fram. Fengust
um 206 milljónir króna fyrir
bréfin. - eþa
G E N G I S Þ R Ó U N
5. APRÍL 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Vika Frá áramótum
Actavis -2% 18%
Alfesca -1% -3%
Atorka Group -3% -9%
Bakkavör -3% -1%
Dagsbrún -3% 12%
FL Group -6% 6%
Flaga -6% -36%
Glitnir -2% 0%
KB banki -3% 7%
Kögun 0% 22%
Landsbankinn -6% -5%
Marel 3% 14%
Mosaic Fashions 0% -5%
Straumur -2% 6%
Össur 0% 1%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Stoðtækjafyrirtækið Össur hefur innkallað fjór-
ar tegundir af Total Knee-gervihné fyrirtækisins
vegna galla sem í þeim er að finna.
„Þetta er framleiðslugalli í pinna sem keypt-
ur er af utanaðkomandi aðila,“ segir Sigurborg
Arnarsdóttir, upplýsingafulltrúi og tengiliður fjár-
festa hjá Össuri, en alls þarf að innkalla um 3.000
gervihné sem farið hafa í dreifingu um heim allan.
Pinninn sem um ræðir er í einum af sjö liðum
hnésins, en í reglubundnu eftirliti varð vart við
sprungur í honum. „Við erum ánægð með hversu
hratt hefur tekist að vinna þetta og fljótt og
vel gengið að ná til allra hlutaðeigandi,“ segir
Sigurborg, en fyrirtækið hefur ekki áður lent í jafn-
viðamikilli innköllun. „Svo hafa ekki heldur komið
upp nein slys eða annað slíkt vegna gallans þannig
að við höfum náð að fyrirbyggja það.“
Á vef Össurar, www.ossur.com, er haft eftir Jóni
Sigurðssyni, forstjóra fyrirtækisins, að þar á bæ
séu öryggismál tekin mjög alvarlega. „Við fórum
af stað með innköllunina jafnskjótt og við urðum
vör við gölluðu pinnana. Enda er velferð sjúkling-
anna okkur efst í huga. Við grípum svo að auki til
aðgerða sem tryggja eiga gæði og öryggi hnjánna
sem koma í staðinn.“
Total Knee-gervihnén eru af tegund 1100, 1900,
2000 og 2100, en á vef Össurar er að finna yfirlit
yfir raðnúmer hnjánna sem um ræðir, en hné sem
afgreidd voru fyrir 7. júní í fyrra eru ekki plöguð
af gallanum.
Fjallað er um Össur í nýrri fyrirtækjagreiningu
greiningardeildar Landsbankans og segist deildin
telja að mjög spennandi tímar séu framundan hjá
fyrirtækinu. „Félagið hefur stækkað mikið á síð-
astliðnu ári og er áætlað að velta ársins í ár verði
tæplega tvöföld velta „gamla“ Össurar 2005,“ segir
bankinn og bendir á að frá því að verðmat hans
á Össuri kom út fyrir helgi hafi úrvalsvísitalan
lækkað meðan hlutabréfaverð Össurar hafi nánast
staðið í stað.
JÓN SIGURÐSSON Jón, sem er forstjóri Össurar, segir fyrirtækið
leggja höfuðáherslu á öryggismál og velferð sjúklinga sem nota
gervilimi fyrirtækisins.
Össur innkallar þrjú
þúsund gervihné
Framleiðslugalli í pinna kom í ljós við skoðun. Forstjórinn
segir velferð sjúklinga hafða í fyrirrúmi.
Við fórum af stað með innköllunina jafnskjótt og við urðum vör við gölluðu
pinnana. Enda er velferð sjúklinganna okkur efst í huga. Við grípum svo að
auki til aðgerða sem tryggja eiga gæði og öryggi hnjánna sem koma í staðinn.
Síminn spyr um sölu bréfa Kögunar
Kaupandinn tengdist ekki félaginu að sögn stjórnarformanns Kögunar.
FRÁ AÐALFUNDI KÖGUNAR
Kaup Roberts Tchenguiz á yfir
átta prósenta hlut í finnska fjár-
málafyrirtækinu Sampo, fyrir 60
milljarða króna, hafa komið veru-
lega á óvart í finnskum fjármála-
heimi, enda Tchenguiz algjörlega
óþekkt nafn þarlendis. Hollenska
eignarhaldsfélagið Exafin, sem
er í eigu Tchenguiz, er þar með
orðið þriðji stærsti hluthafinn í
Sampo á eftir finnska ríkinu og
Varma lífeyrissjóði.
Mikill samgangur hefur
verið með hinum íransk-ættaða
Tchenguiz og KB banka undan-
farin misseri og er talið að kaupin
séu gerð með vitund stjórnenda
KB banka og jafnvel talið lík-
legt að hugmyndin að kaupunum
sé þaðan komin. Í viðskiptaút-
gáfu Helsingin Sanomat eru get-
gátur um að KB banki hafi selt
Tchenguiz hlutabréf sín í Sampo
en 54 prósent hlutafjár eru í eigu
erlendra aðila. Stjórn KB banka
hefur heimild til að auka hluta-
fé bankans um 100 milljarða að
markaðsverði og gæti þannig
skipt á eigin bréfum fyrir bréf í
Sampo ef bankinn hefði hug á að
eignast bréf á ný.
Sérfræðingar segja að Sampo,
sem er sjöundi stærsti banki
Norðurlandanna, hafi verið leið-
andi í því að taka yfir og samein-
ast öðrum fjármálafyrirtækjum.
Forstjórinn Björn Wahlroos þykir
slyngur í viðskiptum og iðinn við
að koma á óvart. „Sampo er áhuga-
vert félag af því að það starfar
bæði á banka- og tryggingamark-
aði,“ segir Bengt Dahlström, sér-
fræðingur hjá EQ banking.
Kemur
Finnum í
opna skjöldu
Talið að Tchenguiz
hafi keypt hlutabréf í
Sampo af KB banka.
Magnús Kristinsson, útgerðar-
maður og einn stærsti hluthafinn
í Straumi-Burðarási, náði ekki
endurkjöri í stjórn Sparisjóðs
Vestmannaeyja á aðalfundi
sparisjóðsins á dögunum. Gísli
G. Guðlaugsson, Skæringur
Georgsson og Þór Í. Vilhjálmsson
voru hins vegar kosnir.
Magnús, sem komst inn í stjórn
sparisjóðsins fyrir ári síðan með
því að fella Skæring með eins
atkvæðis mun, fékk 29 atkvæði
af 68 sem dugði ekki til. Fimm
stjórnarmenn sitja í stjórn spari-
sjóðsins: þrír kjörnir á stofnfjár-
eigendafundi en tveir tilnefndir
af bæjaryfirvöldum.
Stofnfjáreigendur eru 70 tals-
ins og skiptist stofnfé, að upp-
hæð tvær milljónir króna, í jafna
hluti. Magnús hefur, samkvæmt
heimildum, lýst sig fylgjandi því
að opnað verði fyrir viðskipti
með stofnfé sparisjóðsins. Í ljósi
mikilla viðskipta með stofnfé í
stærstu sparisjóðunum er talið
fullvíst að stofnfjáreigendur í
Vestmannaeyjum fengju mun
meira í sínar hendur en þeir
lögðu inn ef þeir myndu selja sitt
stofnfé.
Þær breytingar sem urðu á
stjórn sparisjóðsins á aðalfundi
munu þó ekki tengjast hugmynd-
um Magnúsar um stofnfjárvið-
skipti. - eþa
MAGNÚS
KRISTINSSON
Náði ekki end-
urkjöri í stjórn
Sparisjóðs
Vestmannaeyja.
Felldur úr
stjórn spari-
sjóðsins
Lysing_Klæðskerasnið_5x100mm
Klæðskerasniðnar lausnir
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
H
in
ri
k
Pé
tu
rs
so
n
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
“fia› er metna›ur okkar a› veita ávallt
klæ›skerasni›na rá›gjöf í bland vi›
persónulega fljónustu sem byggir á
sérflekkingu okkar í fjármögnun
atvinnutækja. Vi› sní›um fjármögnun í
takt vi› flarfir hvers og eins, enda vitum
vi› a› hver vi›skiptavinur okkar er
einstakur.“
Arnar Snær Kárason
Rá›gjafi, Fjármögnun atvinnutækja
Höfundar neikvæðra skýrslna
Danske Bank um íslenskt efna-
hagslíf munu standa fyrir máli
sínu hérlendis í næstu viku.
Félag viðskipta- og hagfræð-
inga heldur hádegisverðarfund á
miðvikudaginn eftir viku þar sem
Carsten Volgreen, aðalhagfræð-
ingur greiningardeildar Danske
Bank, og Lars Christensen sér-
fræðingur munu halda erindi og
svara spurningum.
Fundurinn ber yfirskriftina
„Horfur í efnahagsmálum“ og er
ekki að efa að umræður geta
orðið fjörugar. - hh
Greinendur
Danske mæta