Fréttablaðið - 05.04.2006, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 05.04.2006, Qupperneq 26
MARKAÐURINN 5. APRÍL 2006 MIÐVIKUDAGUR6 Ú T L Ö N D Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Könnun breska menntamálaráðu- neytisins á stöðu háskólanem- enda hefur leitt í ljós að skuldir þeirra hafa tvöfaldast á síðast- liðnum sex árum. Nemendur frá efnaminni fjölskyldum skulda mest þegar námi þeirra lýkur. Þá leiddi könnunin jafnframt í ljós að mikill fjöldi háskólanemenda vinnur fyrir sér meðfram námi. Þá kemur fram í könnuninni að há skólagjöld í breskum háskól- um séu ástæða þess að skuldir nemenda hafa hækkað mikið. Þá er ótalinn annar kostnaður, s.s. húsaleiga, matarkostnaður og útgjöld. Meðalskuldir nemenda nema 7.918 pundum, jafnvirði 977.000 íslenskra króna, að loknu háskólanámi. Efnaminni nemend- ur skulda hins vegar um 370.000 krónum meira en þeir sem koma frá efnameiri heimilum. Þá sögðu sex af hverjum tíu nemendum að fjárhagsáhyggj- ur hefðu haft áhrif á einkunnir þeirra og 10 prósent nemenda sögðu að þau hefðu hugleitt að leggja námið á hilluna vegna fjárhagsörðugleika. 3.700 háskólanemendur og aðstoðarkennarar við 88 háskóla í Bretlandi tóku þátt í könnun- inni. Bill Rammell, sem fer með málefni langskólamenntunar í ríkisstjórn Tonys Blair, segir að breytingar á skólagjöldum, sem feli í sér að hægt er að greiða þau að útskrift lokinni, komi efna- minni nemendum til góða. Þá sagði hann jafnframt að ríkisstjórnin ætlaði að gera efna- minni nemendum kleift að sækja um fleiri styrki á árinu en áður og myndi það jafna stöðu þeirra. Breskir stúdentar í skuldasúpu Skuldir háskólastúdenta í Bretlandi hafa tvöfaldast á síðastliðnum sex árum. BRESKIR HÁSKÓLASTÚDENTAR Nemendur í breskum háskólum mótmæla slæmum kjörum og háum skrásetningargjöldum. Bandaríska RoseArt Industries hefur inn- kallað 3,8 milljónir lítilla barnaleikfanga úr verslunum víðs vegar um Bandaríkin. Leikföngin voru búin til í Kína og seld í búðum á borð við Toys R Us og Wal-Mart. Um er ræða kubba í þremur stærð- um sem börn geta notað til að byggja með. Inni í kubbunum er lítill segull sem heldur þeim saman. Að sögn bandaríska neytendasamtaka virðist sem segull í kubbunum hafi nokkrum sinnum fallið úr þeim og valdið börn- um skaða. Hafi m.a. 20 mánaða drengur kafn- að eftir að hann gleypti segul úr kubbinum. Þá hafi þrjú önnur börn á aldrinum þriggja til átta ára þurft að fara í skurðaðgerð til að fjarlægja segul úr maga þeirra. Þá setti fimm ára drengur tvo segla í nef sitt. Varð að skera hann upp til að fjarlægja seglana úr lungum hans. -jab Varhugaverð barnaleikföng LEIKFANGABÚÐIN TOYS R US Leikföngin varasömu voru seld í verslunum víðs vegar um Bandaríkin. Bandaríska tæknifyrirtækið Tempera Technology vinnur að þróun bjórdósar sem kælir sig sjálf á þremur mínútum og helst köld í allt að 45 mínútur. Í dós- inni er lítið kæli- og þéttikerfi sem er náttúruvænt og ætti því hvorki að spilla bjórnum né nán- asta umhverfi. Búnaðurinn virkar þannig að þegar bjórdós er opnuð dregur kælibúnaðurinn í sig raka frá miðinum og myndar gufu sem kælir bjórinn. Dósin er jafnstór hálfs lítra bjórdós en vegna kælibúnaðarins rúmast ekki nema 0,37 desílítr- ar í henni, sem er litlu meira magn en í lítilli dós. Ekki ligg- ur fyrir hvað bjórinn með kæl ibúnað- inum mun kosta þegar hann kemur á markað í sumar. - jab Sjálfkældur bjór BJÓR Senn verður hægt að kaupa bjór sem kælir sig sjálfur. Stjórn rússneska ríkisgasfyrir- tækisins Gazprom greindi frá því í síðustu viku að Hvít-Rússar yrðu að greiða jafnhátt gjald fyrir jarðgas frá Rússlandi og önnur viðskiptalönd fyrirtækis- ins. Hvít-Rússar hafa fram til þessa greitt jafnvirði 47 dollara fyrir hverja 1.000 kúbikmetra af jarðgasi frá Rússlandi en það er algjört lágmarksgjald. Er góðu vinfengi stjórnvalda í Hvíta-Rússlandi og Rússlandi því að þakka að gjaldið hefur ekki hækkað. Það kom því flatt upp á Oleg Maximov, orkumálaráðherra Hvít-Rússa, þegar Alexei Miller tjáði honum að Rússar hygðust hækka gjöld fyrir jarðgas. Gazprom snarhækkaði verð á jarðgasi til Úkraínu í janúar síðastliðnum. Þykir hækkunin hafa verið gerð til höfuðs Viktor Jústsjenko, forseta landsins, sem hefur gagnrýnt stjórnvöld í Rússlandi. Talið er að verðhækk- un á gasinu hafi orðið til þess að flokkur Jústsjenkos tapaði fylgi í síðustu þingkosningum í landinu í lok mars. -jab Gazprom hækkar verðið GASSTÖÐ Í HVÍTA-RÚSSLANDI Stöðin tekur á móti gasi frá Rússlandi og miðlar því áfram til viðskiptavina. Breska dagblaðið Obersver sagði um helgina að David Higgins, sem hefur yfirumsjón með Ólympíuleikunum í Lundúnum í Bretlandi 2012, óttaðist að leikarnir yrðu kostnaðarsamari en talið var í fyrstu. 2 milljarða punda þyrfti í viðbót við fyrri fjárhagsáætlun til að ýta þeim úr vör. Talsmenn leikanna neita hins vegar öllum stað- hæfingum þessa efnis og segja um helberan skáld- skap blaðsins að ræða. Endanleg kostnaðaráætlun vegna leikanna liggi ekki fyrir fyrr en í sumar, að þeirra sögn. Enn er óvíst hversu mikið Ólympíuleikarnir í Lundúnum munu kosta. Hið opinbera greiðir 1,5 milljarða punda en ýmsir styrktaraðilar greiða það sem upp á vantar. Mestur hluti kostnaðarins felst í byggingu ólympíuþorps í Lower Lea Valley í austurhluta Lundúna. -jab Óttast dýra ólympíuleika BARIST UM ÓLYMPÍULEIKANA Knattspyrnusnillingurinn David Beckham og íþróttakonan Denise Lewis kát eftir að tilkynnt var í júlí í fyrra að ólympíuleikarnir 2012 yrðu í Lundúnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.