Fréttablaðið - 05.04.2006, Síða 46
5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Indriði Stefánsson Hjaltason,
Hólabraut 3, Skagaströnd, lést
á Heilbrigðisstofnun Blönduóss
sunnudaginn 2. apríl.
Alex Eiríksson, Reykási 23,
Reykjavík, lést á Vífilsstöðum
sunnudaginn 2. apríl.
Gunnar Jóhannsson lést á
hjúkrunarheimilinu Holtsbúð
laugardaginn 1. apríl.
Júlíana Matthildur Isebarn,
Hringbraut 43, Reykjavík, lést á
elliheimilinu Grund föstudaginn
31. mars.
JARÐARFARIR
13.00 Pétur Benediktsson verður
jarðsunginn frá Digranes-
kirkju.
14.00 Júlíus Veturliðason, Vall-
holti 7, Akranesi, verður jarð-
sunginn frá Akraneskirkju.
15.00 Vilborg Tryggvadóttir,
hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
Reykjavík, áður til heimilis
í Austurbrún 6, verður
jarðsungin frá Áskirkju.
15.00 Geir U. Fenger, Lynghaga 7,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju.
Á þessum degi árið 1614 er talið
að ameríska indíánastúlkan Pocha-
hontas hafi gifst enska landnem-
anum John Rolfe. Pochahontas var
fædd nálægt borginni Jamestown
í Virginíufylki Bandaríkjanna sem
þá var einungis landnemabyggð.
Hún var dóttir Powhatan, höfðingja
Powhatan-ríkisins, og kynntist hvít-
um landnemum um það leyti sem
hún var að verða ellefu ára.
Fyrstu sögur af Pochahontas
segja að hún hafi bjargað lífi
landnemans Johns Smith með því
að henda sér yfir hann og koma
þannig í veg fyrir að hann yrði barinn til bana. Þau
Smith urðu miklir vinir og fór Pochahontas að venja
komur sínar í landnemabyggðirnar og færa hvítu
mönnunum gjafir frá ættflokki sínum.
Samskipti innfæddra og
landnemanna voru góð á þessum
tíma eða þangað til Smith fór aftur
til síns heima. Stuttu seinna var
Pochahontas tekin höndum og átti
að framselja hana í skiptum fyrir
enska fanga og afhendingu vopna
frá ættbálki hennar. Ekki stóðu
landnemarnir við þessi loforð
og var Pochahontas gert að taka
kristna trú og á meðan hún var í
haldi bað John Rolfe um að fá að
giftast henni. Þau giftust þennan
dag og upp frá því var friður milli
landnemanna og ættflokks Pocha-
hontas eða allt þangað til faðir hennar lést.
Pochahontas og Rolfe eignuðust eitt barn en
hún lést úr lungnabólgu einungis tuttugu og eins
árs gömul.
ÞETTA GERÐIST: 5. APRÍL 1614
Pochahontas giftist enskum landnema
MERKISATBURÐIR
1940 Hægri umferð er samþykkt
á Alþingi en lögin voru
ekki framkvæmd vegna
hernáms Breta sem voru
vanir vinstri umferð.
1948 Lög eru sett um vísinda-
lega verndun fiskimiða
landgrunnsins en á þeim
lögum byggðist úfærsla
fiskveiðilögsögunnar.
1968 Aldurstakmörk kosninga-
réttar lækka úr tuttugu og
einu ári í tuttugu.
1971 Söngleikurinn Hárið er
frumsýndur í Glaumbæ.
1986 Flugvél á leið frá Ísafirði til
Reykjavíkur hrapar í Ljósu-
fjöllum á Snæfellsnesi með
þeim afleiðingum að fimm
farast.
1992 Umsátrið um Sarajevo hefst
með morðinu á friðarsinn-
anum Suada Dilberovic.
KURT COBAIN (1967-1994)
LÉST ÞENNAN DAG
„Ég vil frekar vera hataður
fyrir það sem ég er en
elskaður fyrir eitthvað sem
ég er ekki.“
Heimurinn var harmi sleginn þegar
Kurt Cobain, forsprakki hljómsveitar-
innar Nirvana, framdi sjálfsmorð.
Hundrað ár eru í dag liðin frá
fæðingardegi orgelleikarans
fræga, Fernando Germani.
Germani var ítalskur en
tengdist Íslandi mjög sterk-
um böndum. Hann kenndi
tveimur íslenskum orgelleik-
urum, hélt tónleika hér á
landi ásamt því að nótnasafn
hans er í eigu Fernando
Germani-félagsins á Íslandi.
Haukur Guðlaugsson, fyrr-
um söngmálastjóri Íslensku
þjóðkirkjunnar, er formaður
félagsins en hann var nem-
andi Germanis og góður
vinur hans.
„Germani var afskaplega
lítillátur og reiddist ekki
neinu. Hann var mjög tengd-
ur Íslandi og talaði oft um að
við hefðum ekki hugmynd
um hvað við byggjum í góðu
landi,“ segir Haukur. Röð til-
viljana varð þess valdandi að
draumur Hauks rættist – að
komast í nám til Fernando
Germani.
„Það var erfitt að komast í
samband við Germani og
endaði með því að ég var
fyrst við nám í Þýskalandi í
fimm ár. Þegar ég kom heim
lifði þessi gamli draumur
alltaf áfram. Eitt sinni kom
svo Karel Paukert að leika á
orgelið í Akraneskirkju og ég
sagði honum að mig hefði
alltaf dreymt um að læra hjá
Germani. Hann reyndist vera
persónulegur vinur German-
is og ég vissi ekki fyrr en ég
var kominn með bréf í hend-
urnar þar sem Germani sagði
að ég gæti komið.“
Fernando Germani hafði
þá verið orgelleikari við Pét-
urskirkjuna í Róm og kennt í
virtum skólum beggja megin
Atlantshafsins ásamt því að
hafa farið í stórar tónleika-
ferðir. „Þegar ég var hjá
honum var hann kennari við
konservatoríið Santa Cecilia
í Róm. Við vorum aðeins fjór-
ir nemendur hjá honum og
hann kenndi okkur þrisvar í
viku, einn píanótíma en hinir
tveir dagarnir voru fyrir org-
elið.“
Eftir að Haukur lauk námi
sínu hélt hann góðu sambandi
við Germani sem varð til
þess að hann gerði sér ferð
til landsins til að leika á
nokkrum tónleikum. „Þegar
hann kom til Íslands lék hann
meðal annars í Kristskirkju
en það sem var sérstakt við
þá tónleika er að orgelið bil-
aði á þeim miðjum. Germani
þurfti að finna út á auga-
bragði hvernig hann gæti
notað hljóðfærið þannig að
bilunin kæmi ekki að sök.
Það gerði hann svo meistara-
lega að enginn tók eftir
neinu,“ segir Haukur sem
lætur fylgja sögunni að eftir
tónleikana hafi meistarinn
verið afar þreyttur.
Þegar Germani var hætt-
ur að spila voru allar nóturn-
ar hans keyptar hingað til
Íslands og eru nú í vörslu
Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Um
aðdraganda þess að nóturnar
komu hingað til lands segist
Haukur hafa hringt einn dag-
inn í Germani sem sagði það
helst í fréttum að hann væri
búinn að selja orgelið sitt.
„Þá datt mér undir eins í hug
að hann hefði ekkert við nót-
urnar að gera. Ég talaði við
hann og hann samþykkti að
selja nóturnar hingað til
lands.“ Kórar af landsbyggð-
inni, organistar, prestar,
kirkjur og meira að segja
fjármálaráðuneytið lögðust á
eitt til að safna peningum
fyrir nótunum. „Í kjölfarið af
því að nóturnar hans komu til
Íslands stofnuðum við Fern-
ando Germani-félagið á
Íslandi. Í stjórninni eru líka
Guðmundur H. Guðjónsson,
annar nemanda Germanis,
og Jón Magni Ólafsson. Á
dagskrá er að vinna úr þess-
um nótum og eins að safna
upptökum af orgelleik hans,“
segir Haukur sem sjálfur
hefur í hjáverkum tileinkað
síðustu tuttugu og fimm
árum lífs síns að gefa út
kennslubækur byggðar á
kennslu og aðferðum Germ-
anis og verður þriðja og síð-
asta bókin gefin út á þessum
hundrað ára tímamótum.
FERNANDO GERMANI: HUNDRAÐ ÁRA FÆÐINGARAFMÆLI
Orgelleikari og Íslandsvinur
HAUKUR GUÐLAUGSSON OG FERNANDO GERMANI Sitja hér í djúpum samræðum á heimili Germanis árið 1989.
Myndin er úr einkasafni Hauks.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
Ágústu Þyrí Andersen
Fjallalind 66, Kópavogi,
Þór Guðmundsson
Willum Þór Þórsson Ása Brynjólfsdóttir
Örn Þórsson Regína Björk Jónsdóttir
Valur Þórsson Helga Margrét Vigfúsdóttir
Willum Þór Willumsson
Brynjólfur Darri Willumsson
Þyrí Ljósbjörg Willumsdóttir
Daníel Helgi Arnarson
Ísar Logi Arnarson
Ernir Þór Valsson
Viktor Orri Valsson
Elskulegi bróðir okkar og mágur,
Einar Ellertsson
frá Meðalfelli í Kjós, Asparfelli 2, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landsspítalans Kópavogi sunnu-
daginn 2. apríl, verður jarðsunginn frá Reynivallakirkju
í Kjós laugardaginn 8. apríl kl. 14.00. Jarðsett verður á
Meðalfelli.
Elín Ellertsdóttir Haukur Magnússon
Sigríður Sæmundsdóttir
Eiríkur Ellertsson Ólafía Lárusdóttir
Gísli Ellertsson Steinunn Þorleifsdóttir
Finnur Ellertsson Sigurbjörg Ólafsdóttir
Jóhannes Ellertsson Sigurbjörg Bjarnadóttir
Okkar ástkæra
Hjördís Óskarsdóttir
frá Hrísey,
sem lést mánudaginn 3. apríl, verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 6. apríl kl 13.30.
Bjarni Sigurgrímsson
Hafsteinn Ómar Ólafsson Lára Jónsdóttir
Margrét Ólafsdóttir Sigurjón Sigmundsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vin-
arhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
Jóns Ólafs Halldórssonar
Birkiholti 4, Bessastaðahreppi.
Innilegt þakklæti til starfsfólks Holtsbúðar Garðabæ.
Guðrún Ragnheiður Júlíusdóttir
Halldór Jónsson Erla K. Magnúsdóttir
Sigurður J. Jónsson Jenný K. Valberg
Jón Ragnar Jónsson Auður B. Bragadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
Sigríður Bjarnadóttir
Lyngmóum 14, Garðabæ,
sem lést 24. mars síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 6. apríl kl. 15.
Bjarni Gunnarsson Dagbjört Gunnarsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir Ólafur Ingi Jóhannsson
Gunnar Vagn Gunnarsson Berglind Hrönn Hallgrímsdóttir
Margrét Gunnarsdóttir Gunnar Ármannsson
Kristín Bjarnadóttir Guðmundur Guðjónsson
Gunnar Þór Bergsson
Aðalheiður Ólafsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir
María Helga Gunnarsdóttir
Róbert Orri Gunnarsson
og barnabarnabörn.