Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 56
32 5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
2 3 4 5 6 7 8
Miðvikudagur
■ ■ SJÓNVARP
16.00 Skólahreysti á Sýn.
Úrslitakeppnin í Laugardalshöll end-
ursýnd frá síðustu helgi.
18.00 Meistaradeildin með
Guðna Bergs á Sýn.
18.30 Meistaradeildin á Sýn.
Leikur Juventus og Arsenal í beinni.
Leikur Barcelona og Benfica sýndur
beint á Sýn Extra.
20.35 Meistaramörk með Guðna
Bergs á Sýn. Mörk kvöldsins.
20.55 Meistaradeildin á Sýn.
Leikur Barcelona og Benfica.
22.45 US Masters 2005 á Sýn.
Hitað upp fyrir Masters 2006.
VIEIRA SMÍERA!
Þú getur verið með þó að Patrick verði ekki með!
Spilaðu á Lengjunni og þú gætir unnið.
MEISTARADEILDIN 4.- 5. APRÍL
1 X 2
Upphæð
Stuðull
Vinningur
kr.
kr.
1.000
23.49
23.490
Þetta er bara eitt dæmi um hvernig þú gætir
margfaldað peningana þína á Lengjunni.
04.04
04.04
05.04
05.04
MEISTARADEILDIN er á Lengjunni. Fylltu
út se›il á lengjan.is e›a á næsta sölusta› og hleyptu
enn meiri spennu í leikina.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Milan – Lyon 1.60 2.95 3.50
Villarreal – Inter 2.25 2.60 2.40
Juventus – Arsenal 1.60 2.95 3.50
Barcelona – Benfica 1.20 3.85 6.40
FÓTBOLTI Gunnar Þór Gíslason,
stjórnarformaður Stoke City,
greindi frá því í gær að Johan
Boskamp yrði ekki rekinn frá
félaginu og yrði því áfram knatt-
spyrnustjóri enska 1. deildarliðs-
ins. Miklar vangaveltur hafa
verið um framtíð Boskamp.
Hinum hollenska Boskamp
hefur ekki lynt við aðstoðar-
menn sína og hefur þeim John
Rudge, yfirmanni knattspyrnu-
mála, og Jan De Koning aðstoð-
arstjóra liðsins verið vísað frá
tímabundið í tvígang á tímabil-
inu. Flestir töldu að Boskamp
myndi yfirgefa félagið í sumar
en allt lítur út fyrir að svo verði
ekki, sem þýðir líklega að Rudge
og De Koning taka pokann sinn í
sumar.
„Boskamp hefur sagt að hann
vilji vera hér áfram og ég geri
ráð fyrir því að hann stjórni lið-
inu áfram á næstu leiktíð. Þess
vegna mun hann halda til Íslands
í næstu viku þar sem við þurfum
að ræða um hvað við þurfum að
gera í sumar,“ sagði Gunnar Þór
við staðarblaðið Sentinel í Stoke.
Þegar Tony Pulis var rekinn
frá Stoke tók Boskamp við og var
liðið um tíma við topp deildarinn-
ar. Smátt og smátt hefur liðið
sigið niður töfluna og er sem
stendur í þrettánda sætinu og
siglir því lygnan sjó um miðja
deild. - hþh
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke:
Boskamp fer ekki
GUNNAR ÞÓR GÍSLASON Stjórnarformaður Stoke segir að Johan Boskamp verði áfram hjá
félaginu, þrátt fyrir orðróm um annað. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KÖRFUBOLTI „Þetta er að verða
ágætt í bili. Ég er búinn að vera í
körfubolta síðustu 27 ár ævi minn-
ar og ætla að taka mér frí frá bolt-
anum næsta vetur og fer því vænt-
anlega í skóla samhliða vinnu,“
sagði Herbert Arnarson brattur
við Fréttablaðið í gær enda segist
hann sáttur við sína vinnu í Vest-
urbænum. „Ég geng stoltur frá
borði enda höfum við náð ágætum
árangri og svo tel ég mig eiga eitt-
hvað í ungu strákunum sem eru að
koma upp og ég hef verið að vinna
með síðustu fjögur ár.“
Herbert hyggst skella sér í við-
skiptafræðina næsta vetur og seg-
ist því kominn í tímabundið frí frá
boltanum. „Annars er ég ekkert
hættur afskiptum af körfubolta
enda frábær íþrótt og allt í kring-
um sportið hefur gefið mér svo
mikið og það var alltaf gott að
standa upp frá skrifborðinu og
takast á við allt öðruvísi áskoranir
í íþróttasalnum en í vinnunni. Ég
skil í góðu við KR enda hef ég átt
þar góðan tíma og eignast góða
vini,“ sagði Herbert.
Böðvar Guðjónsson, formaður
körfuknattleiksdeildar KR, sagði
að ekki væri búið að ákveða við
hverja félagið ætlaði að ræða en
stjórnarfundur væri í næstu viku
og í kjölfar hans færi af stað vinna
við að finna nýjan þjálfara.
„Það eru margir færir þjálfar-
ar á lausu þarna úti og svo erum
við ekkert lokaðir fyrir því að ráða
útlending,“ sagði Böðvar en hann
á ekki von á miklum breytingum á
leikmannahópi félagsins.
„Allir íslensku leikmennirnir
eru með samning hjá okkur en
útlendingarnir koma ekki aftur.
Við munum reyna að styrkja okkur
eitthvað enda stefnan að komast
lengra en við gerðum í ár,“ sagði
Böðvar en fastlega má búast við
því að KR verði eitt þeirra félaga
sem muni bítast um þjónustu Sig-
urðar Þorvaldssonar, sem er á leið
heim til Íslands frá Hollandi.
henry@frettabladid.is
Ætla að taka mér frí frá körfubolta
Herbert Arnarson hefur stýrt körfuknattleiksliði KR í síðasta skipti en körfuknattleiksdeild KR ákvað að end-
urnýja ekki samninginn við Herbert sem gengur stoltur frá borði þar sem hann ætlar í skóla næsta vetur.
SÍÐASTA MESSAN Herbert Arnarson fer hér yfir málin með sínum mönnum í leik gegn Njarðvík á
mánudag. Hann er stoltur af sinni vinnu hjá KR og yfirgefur félagið í góðu eftir tveggja ára starf
sem þjálfari meistaraflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> Guðmundur hættur
Guðmundur Karlsson hefur látið af
þjálfun kvennaliðs Hauka í handknatt-
leik. Guðmundur stýrði liðinu í tvö ár
og vann þrjá af fimm titlum sem í boði
voru á þessum tíma. Guðmundur sagði
við Fréttablaðið að hann hefði lagt upp
ákveðna hluti eftir fyrsta árið sem ekki
hefðu gengið eftir og þróunin því ekki
verið sem skyldi
að hans mati.
Hann er engu
að síður sáttur
við árangurinn.
Ekki hefur verið
ráðinn maður
í hans stað en
nöfn Einars Jóns-
sonar og Stefáns
Arnarsonar hafa
helst heyrst í því
sambandi.
Bergsveinn kominn heim
Bergsveinn Bergsveinsson, fyrrverandi
aðstoðarlandsliðsþjálfari, er kominn
aftur í Krikann en hann hefur verið ráð-
inn markmannsþjálfari yngri flokka í FH.
Konstantin Shved, þjálfari blakliðs KA í
kvennaflokki, sér mikið eftir afdrifaríkri
ákvörðun sinni í leik KA og Þróttar frá
Neskaupstað á sunnudaginn. Konstantin
gekk þá með lið sitt af velli þar sem
hann var ósáttur við störf Ólafs Sigurðs-
sonar dómara og var í kjölfarið dæmdur
í bann frá þjálfun út árið 2006.
„Ég var mjög ósáttur við dómarann í
þessum leik. Ég tel að hann hafi viljað
hjálpa Þrótti af því hann er frá Neskaup-
stað. Ég gekk of langt en ég var mjög
reiður. Ég sé mjög mikið eftir þessu en
bannið er samt sem áður allt of langt,“
sagði Konstantin við Fréttablaðið í gær.
Stefán Jóhannesson, formaður blak-
deildar KA, segir lítið vera hægt að gera
við banninu. „Úrskurði aganefndar verð-
ur ekki hnekkt nema þá að stjórn BLÍ
taki aðra ákvörðun en ég sé það ekki
gerast í fljótu bragði,“ sagði Stefán.
Blakdeild KA hefur óskað eftir því að
funda með Blaksambandi Íslands um
málið en Konstantin kemur mikið að
báðum samböndum. Hann er þjálf-
ari landsliðs kvenna sem og yngri
landsliða auk þess að þjálfa KA og
marga yngri flokka hjá félaginu.
„Við hörmum mjög þá atburði
sem hafa átt sér stað en við erum
ekki að draga fjöður yfir
þá ákvörðun þjálfarans
að kalla liðið af velli og
hætta leik. Ég held að allir
séu sammála um að þetta
var ekki rétt ákvörðun. Ég hef
þekkt Konstanin í tvö ár og
hann er topp íþróttamaður
og þjálfari,“ sagði Stefán.
„Það er þó hægt að gera athugasemd
við framkvæmd leiksins. Þetta er
veruleikinn í blakhreyfingunni, að lið
þurfa að dæma leikina sjálf þar sem við
getum ekki sent dómara landshorna
á milli til að dæma,“ sagði formað-
urinn, sem telur bannið hafa verið
of langt.
„Þjálfarinn er settur í alltof langt
keppnisbann. Ég hefði viljað
sjá málin sett í samhengi áður
en hann var dæmdur þar
sem hann er í fullu starfi hjá
blakdeild KA. Þetta er eins og
brottvísun úr landi. Við eigum
eftir að skoða þetta betur en
ég sé ekki annað í stöðunni
en að senda hann heim.“
KONSTANTIN SHVED ÞJÁLFARI KA Í BLAKI KVENNA: IÐRAST GJÖRÐA SINNA EFTIR AFDRIFARÍKA ÁKVÖRÐUN
Ég gekk of langt og sé eftir þessu