Fréttablaðið - 05.04.2006, Blaðsíða 62
5. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000
Toyo All Terrain
33x12,5 R15
13.895,- stgr
Toyo Mud Terrain
38x14,5 R16
31.950,- stgr.
Kynningarverð
Sími: 561 4110
Klár í páskatúrinn ?
Toyo jeppadekk, margar stærðir
Kynningarverð
Gerið gæða og
verðsamanburð
33” 38”
Slökkti oft í
sinu
Nei, ég hef aldrei
kveikt í sinu en
hins vegar slökkti
ég oft í sinu. Var
í hópi vaskra
barna sem reyndi
oft að slökkva
sinuelda, sem ég
mæli reyndar ekki
með að börn geri
almennt.
Katrín Júlíusdóttir
alþingismaður.
Aldrei
Ég hef aldrei kveikt
í sinu. Ég leik mér
venjulega ekki að
eldinum.
Sigurður Kári
Kristjánsson
alþingismaður.
Svo vel upp
alinn
Nei, ég held ég hafi
aldrei gert það. Þó
var töluvert um sinu-
bruna í kringum mig
í Breiðholtinu. Ég
tók hins vegar aldrei
þátt í því, ég er svo
vel upp alinn.
Gísli Marteinn
Baldursson vara-
borgarfulltrúi.
ÞRÍR SPURÐIR SINUBRUNIN Á MÝRUM HEFUR VERIÐ Í FRÉTTUM AÐ UNDANFÖRNU
Hefurðu kveikt í sinu?
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 Svenn Dam.
2 Þráhyggju.
3 Ingibjörg Jóna Sigurðardóttir.
Hjálmar Árnason alþingismaður
lagði land undir fót og sá blúsar-
ann B.B. King á tónleikum í
Birmingham á Englandi um síð-
ustu helgi. Hjálmar hefur lengi
verið aðdáandi B.B. og segir þetta
hafa verið sannkallaða pílagríms-
för. „Þetta var frábært. Að sjá
þennan mann kominn á níræðis-
aldur syngja eins og ungling og
halda þrjátíu þúsund manns hug-
föngnum eins og ekkert sé, alveg
hreint magnað.“ Hjálmar var í
föruneyti fimmtíu Íslendinga sem
fóru á tónleikana á vegum Blús-
klúbbs Reykjavíkur en auk B.B.
King tróð gítarleikarinn Gary
Moore upp.
Þetta voru síðustu forvöð fyrir
Hjálmar að sjá blúsgoðið á sviði,
því hann er á kveðjutónleikaferð
um Evrópu. Sem kunnugt er fékk
Hjálmar hjartaáfall fyrir
skemmstu og var útlit fyrir að
hann kæmist ekki á tónleikana.
„Áður en ég fór í aðgerð fyrir um
mánuði spurði ég lækninn hvort
ég kæmist ekki ábyggilega á tón-
leika með B.B. King 1. apríl. Með-
ferðin miðaðist við að ég yrði nógu
hraustur til að komast út þá og ég
held að eftirvæntingin hafi tví-
mælalaust flýtt fyrir batanum.“
Hjálmar hefur lengi verið blús-
áhugamaður, ekki síst eftir að
hann fékk sér trommusett fyrir
tveimur árum og hefur átt ófá
stefnumót við B.B. King í bíl-
skúrnum. „Fátt jafnast á við að
fara út í skúr, setja B.B. á fóninn
og svo spilum við félagarnir
saman. Blúsinn er góð leið til að
slaka á og fá útrás.“ Þótt Hjálmar
hafi séð B.B. King á sviði hefur
hann ekki fengið nóg enda á hann
eftir að sjá aðra hetju sína. „Ég
læt mig dreyma um að sjá Charlie
Watts, trommara The Rolling
Stones. Ég spila oft með Stones
undir enda eru þeir í grunninn
blúsarar.“
Um páskana verður sannkölluð
veisla fyrir blúsaðdáendur en þá
verður hin árlega blúshátíð
Reykjavíkur haldin. Hjálmar
ætlar hins vegar að bregða sér
norður yfir heiðar um páskana og
kemst því ekki, en yljar sér við
minningarnar um tónleikana með
B.B. King. „Ég á eftir að búa að
þeim alla ævi. Þetta var ógleym-
anlegt.“ bergsteinn@frettabladid.is
HJÁLMAR ÁRNASON: FÓR Í PÍLAGRÍMSFÖR TIL BIRMINGHAM
B.B. flýtti fyrir batanum
FRÉTTIR AF FÓLKI
Eftirhermur hafa löngum loðað við íslenskan
skemmtanaiðnað en
hvort fordæmi séu fyrir
því þegar „alvöru“
manneskjan fetar í
fótspor eftirherm-
unnar er óvíst.
Jón Ársæll verður
með Unni Birnu
Vilhjálmsdóttur
í næsta þætti af
Sjálfstæðu fólki
en fegurðar-
drottningin hefur verið þeysingi um
allan heim að sinna góðgerðarmálum.
Aðdáendur Strákanna á Stöð 2 hafa
þegar séð „sjálfstætt fólk“ með Unni
Birnu en þá tók Pétur Jóhann Sigfússon
ansi ágengt viðtal við alheimsfeg-
urðardrottninguna. Hvort jafn frakkar
spurningar brenni á vörum sjónvarps-
mannsins góðkunna skal ósagt látið en
í fréttatilkynningu frá þættinum kemur
fram að fáir tali jafn fallega íslensku og
fegursta kona heims.B.B. KING Í góðri sveiflu ásamt hljómsveit í Las Vegas á dögunum. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
HJÁLMAR ÁRNASON Hefur átt ófá stefnu-
mót við B.B. í bílskúrnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI
HRÓSIÐ
...fær Hilmir Snær Guðnason sem
fetar í fótspors Morgans Freeman
og föður síns, Guðna Kolbeinsson-
ar, með því að tala inn á frönsku
náttúrulífsmyndina Ferðalag
mörgæsanna.
Sýningin Matur 2006 fór fram í Fíf-
unni um helgina og sýndu öll helstu
matvælafyrirtæki landsins afurðir
sínar. Hægt var að bragða á ýmsu,
til dæmis gröfnu hreindýrakjöti
sem unnið er á Húsavík en það
bragðaðist dásamlega. Valentína
Björnsdóttir, eigandi matvælafyr-
irtækisins Móður náttúru, var með
bás á sýningunni og gaf gestum og
gangandi að smakka grænmetis-
buff, fylltar pönnukökur og nýja
pottrétti sem eru að fara í fram-
leiðslu hjá fyrirtækinu. ,,Mér
fannst sýningin heppnast vel enda
var hún mjög glæsileg,“ segir Val-
entína og bætir við að henni hafi
þótt mjög gaman að kynna sínar
vörur enda hafi viðtökurnar verið
mjög góðar.
Á sýningunni var matartímarit-
ið Gestgjafinn með bás þar sem
hægt var að vinna sér inn helgar-
ferð ef viðkomandi svaraði spurn-
ingum rétt. Enginn fór því leiður né
svangur út af sýningunni. - mmj
Vel heppnuð fyrir matargöt
HOLLT OG GOTT Óskar Harðarson og Valentína Björnsdóttir kynntu það helsta frá fyrirtæk-
inu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÁRÉTT
2 jurt 6 hæð 8 kraftur 9 stykki 11
þegar 12 bik 14 öðruvísi 16 sem 17
sjáðu 18 utan 20 bardagi 21 kropp.
LÓÐRÉTT
1 aflast 3 guð 4 hafna 5 rá 7 ráða
10 frostskemmdir 13 hækkar 15 sog
16 stök 19 númer.
LAUSN Ljóðskáld af yngri kynslóðinni hafa
heldur betur tekið við
sér og hafa verið iðin
við það síðustu daga að
senda hugverk sín
í ljóðakeppnina
Sigurskáldið 2006
sem Edda útgáfa
og Fréttablaðið standa nú fyrir í annað
sinn. Dómnefndin, sem er skipuð þeim
Kristjáni B. Jónassyni, Ragnheiði
Eiríksdóttur og Þórarni Þórarinssyni,
er þegar byrjuð að plægja sig í gegnum
bunkann en frestur til að skila inn
ljóðum rennur út á miðnætti. Dóm-
nefndin velur átta ljóð sem halda áfram
í undanúrslit sem eru með nokkurs
konar Idol-fyrirkomulagi en tvö og tvö
ljóð mætast daglega á síðum Frétta-
blaðsins í Viku bókarinnar og þá kemur
í hlut lesenda að kjósa á milli ljóðanna
í símakosningu. Þessu getur
vitaskuld ekki lokið á
nema einn veg og í lok
Viku bókarinnar mun
einn sigurvegari standa
uppi en sá hinn sami
verður kynntur þegar
á lokadegi Viku
bókarinnar.
Tekið er við
ljóðum á
netfangið
ljod@edda.is.
LÁRÉTT: 2 gras, 6 ás, 8 afl, 9 stk, 11 þá,
12 tjara, 14 ólíkt, 16 er, 17 sko, 18 inn,
20 at, 21 nart.
LÓÐRÉTT: 1 fást, 3 ra, 4 afþakka, 5 slá,
7 stjórna, 10 kal, 13 rís, 15 tott, 16 ein,
19 nr.