Fréttablaðið - 05.04.2006, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
www.toyota.is
Nýr Yaris. Hann er risaSMÁR
Verð frá 1.429.000 kr.
risaSMÁR
Það er gott að vera lítill. Það er gott að vera stór.
En risaSMÁR er snilld.
risaSMÁR er nýtt orð í orðabókinni. Það lýsir því sem er í raun lítið en hefur
eiginleika þess sem er stórt, sérstaklega í tilfinningu, byggingu, eiginleikum
eða útliti. Eða öllu þessu.
Yaris er ekki stór. Samt hefur hann í mörg ár verið vinsælasti bíll á Íslandi
vegna þeirra eiginleika sinna að sameina í einum bíl kosti smábíls og
fjölskyldubíls hvað varðar hönnun, búnað og öryggi. Yaris er risaSMÁR.
Það er gott að vera lítill. Það er gott að vera stór.
En risaSMÁR er snilld.
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421-4888
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
32
11
1
0
4/
20
06
����������
�����������������
Fyrir nokkru uppgötvaði ég dás-amlegan þátt á norska ríkis-
sjónvarpinu, Bokprogrammet.
Efnistökin voru bæði óvenjuleg og
skemmtileg og, rétt eins og nafn
þáttarins, var hann laus við alla til-
gerð. Þættinum stýrði vingjarnleg-
ur ungur maður með skegghýjung
sem kunni þá list að leyfa viðmæl-
endum að njóta sín. Á meðal þess
sem hann bryddaði upp á var að
biðja listamann að teikna söguper-
sónu og fá síðan viðbrögð höfund-
arins við útkomunni. Hann spurði
vegfarendur hvað þeir væru að
lesa, lagði það á sig að sigla út í litla
eyju til að spjalla við höfund um
nýútkomna bók og eitt sinn arkaði
hann á gönguskíðum til snæviþak-
ins smábæjar við landamæri Sví-
þjóðar. Þar ræddi hann við höfund
sem hafði skrifað bók um ferð sína
til Kenía að hitta föður sinn í fyrsta
sinn. Jafnframt því að stunda rit-
störf vinnur hann í kaupfélaginu og
þar fór viðtalið fram. Reyndar gekk
það brösuglega því bæjarbúar voru
alltaf að trufla viðtalið til að segja:
„Nei, sko, þú ert bara í viðtali!“
AÐ undanförnu hafa menn rætt
um þörf á menningarþætti í
íslensku sjónvarpi og söknuðar
hefur gætt eftir þeim sem horfið
hafa af skjánum. Þótt ég ætti að
vera í markhópnum hef ég aldrei
horft á þá. Ein ástæðanna er eflaust
sú að þótt ég lesi bækur og fari á
stöku leikrit og listsýningar nenni
ég ekki að sitja undir viðtali um
arkitektúr eða tónlist. Kannski er
íslenskt samfélag heldur ekki nógu
fjölbreytt. Hér vinnur enginn höf-
undur í Kaupfélaginu á Hofsósi á
milli þess sem hann endasendist til
Afríku að heimsækja ættingja sína.
Alltaf virðist þessi skortur á fjöl-
breytileika síðan leiða til þess að
inni á milli viðtala við Rúrí og
Kristbjörgu Kjeld birtist einhver
sem föndrar sniðugar vindlaöskjur
úr kóktöppum.
SAMT efast ég ekki um að hug-
myndaríku fólki væri vel treystandi
til að halda úti góðum bókmennta-
þætti. Íslenskir höfundar hafa auð-
vitað frá heilmiklu að segja og
hingað koma oft erlendir höfundar
og útgefendur þótt sjaldnast fari
það hátt. Ef þátturinn yrði bita-
stæður myndi líka alveg fyrirgef-
ast þótt hann væri bara yfir hávet-
urinn. Sjónvarpsþáttagerð kostar
auðvitað peninga, varla er leiga á
gönguskíðum gratís. Jafnvel Norð-
menn, ein ríkasta þjóð heims, geta
ekki leyft sér hvað sem er. Í miðj-
um mars þakkaði ungi maðurinn
með hýjunginn mér að minnsta
kosti fyrir veturinn og sagðist
hlakka til að hitta mig aftur í haust.
Ég bíð þess líka í ofvæni.
Norski bóka-
hýjungurinn
AUGL†SINGASÍMI
550 5000