Fréttablaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.00 13.25 21.52 Akureyri 4.33 13.09 21.49 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 02 61 11 /2 00 5 Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is 410 4000 | landsbanki.is Fasteignalán Við hjálpum þér að eignast draumaheimilið HVAÐ SEGIR ÞAKIÐ UM ÞIG? Húsþök Íslendinga eru litrík í meira lagi. En hvað þýða litirnir á þökunum? HÚS 2 GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 1. maí, 121. dagur ársins 2006. Fasteignasalan Ás hefur til sölu glæsilegt og rúmgott hús við Hringbraut í Hafnarfirði. Við Hringbrautina í Hafnarfirði stendur þetta glæsilega hús. Um er að ræða einbýlis- hús á tveimur hæðum með innbyggðum bíl- skúr. Húsið er byggt 2001 af Ásgeiri Úlfars- syni húsasmíðameistara en það var Sigurður Þorvarðarson sem teiknaði það og hafði til hliðsjónar hús á Íslandi um 1900. Mikið er lagt í húsið að öllu leyti og til dæmis er burð- arvirki þess mun öflugra en til er ætlast. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, öll mjög stór. Hjónaherbergi er með fataherbergi og innangengt á snyrtingu. Á neðri hæð er for- stofuherbergi, gestasnyrting með sturtu, þvottaherbergi, eldhús og stofa sem er alrými. Með hurðum og gluggum eru listar eins og tíðkaðist í gömlum húsum. Í lofti er hvítur panell, málaður og stílfærður af Gísla Finnssyni málarameistara. Úr þvottahúsi er innangengt í mjög rúmgóðan bílskúr. Stofan er mjög stór og þaðan er gengið út á stóran pall í garðinum. Sérsmíðaður stigi með timburþrepum liggur upp á efri hæð. Þar er komið í rúm- gott sjónvarpshol en úr því er gengið út á 34,5 fermetra svalir. Neðri hæð hússins er 120,6 fermetrar, sú efri 82,9 og bílskúrinn 39,8 eða samtals 242,7 fermetrar. Húsið selst ef viðunandi tilboð fæst. Áhugasamir hafi samband við Eirík Svan, sölumann hjá Ás. Rúmgott glæsihús í Hafnarfirði Húsið er í byggt í stíl aldamótanna 1900 en á sama tíma mjög nútímalegt og íburðarmikið. UMHVERFISNEFND FJARÐA- BYGGÐAR VILL NÝTA BETUR LÓÐIR Í ÞÉTTBÝLI SVEITARFÉLAGSINS, EKKI SÍST Á ESKIFIRÐI. Lóðir fyrir nálega 100 íbúðir eru til á Eskifirði að mati umhverfisnefndar Fjarðabyggðar, sem gert hefur úttekt á lóðamálum sveitarfélagsins. Þar miðar hún við að hægt sé að skipuleggja 30-40 lóðir með þéttingu og uppkaupum á einhverjum lóðum og húsum. Fimmtíu íbúðir eiga svo að rúmast í nokkrum fjölbýlishúsum sem Eddu-Borgir hafa skipulagt. Að sögn Steindórs Hinriks Stefánssonar, fulltrúa hjá bygginganefnd Fjarðabyggðar, eiga þau hús að standa beint uppi af bryggjunni og frystihúsinu en fyrst þarf ýmsu að breyta, meðal annars að flytja sjóminjasafnið í annað húsnæði. Næsti byggingakostur gæti svo verið að bæta við svæðum í Dalnum. Vilja þéttari byggð Auðveldlega má þétta byggðina á Eskifirði, að mati Umhverfisnefndar Fjarðabyggðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FASTEIGNASÖLUR Ás 10-13 Árborgir 23 Dómus 8 Draumahús 19-22 Eignaumboðið 15 ES 28 FMG fasteignasala 33 Gloria Casa 7 HHús 26 Hof 23 Lundur 24 Lyngvík 6 Neteign 29 Nýtt 14 Perla 31 Remax 27, 30, 32, Saga fasteignir 29 Valhöll 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.