Fréttablaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 68
1. maí 2006 MÁNUDAGUR28
SMS LEIKUR
9. HVER VINNUR!
Vinningar verða afhendir hjá BT Sm
áralind. Kópavogi. M
eð því að taka þátt ertu kom
inn í SM
S klúbb. 99 kr/skeytið.
FRUMSÝND 28. APRÍL
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SENDU SMS SKEYTIÐ JA HOF Á
NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO
• DVD
MYNDIR • TÖLVULEIKIR • VARNINGUR
TENGDUR
MYNDINNI OG MARGT FLEIRA
MUNIÐ
MANCHESTERTÓNLEIKANA
2.600 KR. Í STÆÐI
3.700 KR. Í STÚKU
Í LAUGARDALSHÖLL 6. MAÍ FRÁ KL. 17:30–00:00
Miðasala á midi.is, í BT
og í verslunum Skífunnar.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
2
4
5
2
0
4
/2
0
0
6
Nú stendur yfir skráning í Vinnu-
skóla Reykjavíkur fyrir sumarið
2006. Allir krakkar á aldrinum 14-
16 ára geta sótt um starf fyrir 12.
maí en nánari upplýsingar um
kaup og kjör má fá inn á heimasíð-
unni www.vinnuskoli.is. Þeir sem
hafa einhvern tímann unnið í
Vinnuskólanum vita að sú vinna er
engri lík en Vinnuskólinn hefur
það fram yfir aðra vinnu að engar
sérstakar kröfur eru gerðar til
umsækjanda því að allir þeir sem
sækja um vinnu verða ráðnir. Svo
virðist sem ekki verði hörgull á
verkefnum fyrir starfsmenn
Vinnuskólans í ár því nóg er ruslið
í borginni eins og sést á meðfylgj-
andi myndum. Um 300 manns
verða ráðnir sem verkstjórar og
leiðbeinendur til að halda stjórn á
krökkunum og er verið að ganga
frá umsóknum í þær stöður um
þessar mundir. Borgarbúar verða
þó að þola ruslið aðeins lengur því
Vinnuskólinn tekur ekki til starfa
fyrr en 12. júní.
- snæ
Næg verkefni fyrir
Vinnuskólann
Finnsku ríkissjónvarpið, YLE,
hefur hótað að draga þungarokks-
skrímslin Lordi úr Eurovision
vegna kosnaðar við eldtækni á
sviðinu. Lordi ætlaði að standa á
brennandi sviðinu og þarf sjón-
varpsstöðin finnska að greiða sér-
staklega fyrir það.
„Finnland tekur
ekki þátt ef verðið
verður ekki lækk-
að. Við erum
ekki að reyna
að vera dóna-
legir, en slík
hótun er nauð-
synleg á þessu
stigi,“ segir
finnski dagskrárgeraðarstjórinn
hjá YLE, Ilkka Talasranta: „Þrátt
fyrir að eldhafið sé gríðarlega
mikilvægt í lagi Lordi Hard Rock
Halleluja er YLE ekki tilbúið að
borga tugþúsundir evra fyrir
slíkt.“
Greint er frá málinu í finnska
afþreyingarmiðlinum Illtalehti.fi
og einnig að þýskt fyrirtæki hafi
verið fengið til þess að sjá um eld-
hafið á sviðinu og setji það fram
svimandi háa reikninga.
Finnska Eurovision-lagið í ár er
með mjög óhefðbundnu sniði.
Hljómsveitin klæðist búningum
og leikur lag sem er blanda af
lögum Rammstein, Alice Cooper-
laginu Poison og KISS. Aldrei áður
hefur eins þungt rokk verið flutt í
keppninni. Lagið ætti að falla
okkur Íslendingum í geð. Ein-
hverjir hafa líkt atriðinu við leik-
hús.
Hljómsveitin Lordi er ekki
með öllu óþekkt en platan The
Monster Show hefur verið gefin út
í meira en tuttugu löndum. Lordi
varð þekkt í Finnlandi fyrir fjór-
um árum þegar hljómsveitin gaf
út plötuna Get Heavy.
Hljómsveitarmeðlimir vilja
ítreka að þrátt fyrir skrímslaútlit
sitt og aðdáun þeirra á dauðanum
séu þeir alls ekki djöfladýrkendur.
Meðal þekktra laga þeirra í Finn-
landi er til að mynda The Devil Is
A Loser eða djöfullinn er minni-
pokamaður.
Finnar hafa gefið Grikkjum
nokkra daga til að miðla málunum
svo þeir geti baðað sig í eldinum á
sviðinu í Aþenu.
EUROVISION 2006 GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR UM SILVÍU OG KEPPINAUTANA
Finnar hóta að draga skrímslin úr keppni
LJÓTUR HLJÓMSKÁLI Krakkarnir í Vinnu-
skólanum ættu að fara létt með það að
mála yfir þetta ljóta krot á Hljómskálanum
en annars virðist Hljómskálagarðurinn
sjálfur vera í nokkuð góðu standi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
RUSL EFTIR MENNTAMENN Notendur
Þjóðarbókhlöðunnar hafa verið duglegir við
að safna sígarettustubbum og öðru ógeði í
vetur í tréin við Þjóðarbókhlöðuna.
TYGGJÓKLESSUR Á LAUGAVEGI
Það er nóg af ljótum hvítum
klessum á Laugavegi en ekki er
víst að Vinnuskólinn ráði nokkuð
við þær.
MINNGAR UM ÁRAMÓTIN Það er gaman að
safna minningum um skemmtilega hluti en
þó er algjör óþarfi að halda í allt. Í kringum
Perluna má ekki bara finna gamlar rakettur
heldur einnig alls konar annað rusl sem
minnir á áramót og annan mannfagnað.
UMHVERFISLIST? Það er virkilega mikið rusl
að finna í Þverholtinu í kringum Kling og
Bang galleríið. Spurning hvort Listaháskól-
inn sem er til húsa í nágrenninu geti ekki
gert sér mat úr þessu og unnið einhver
umhverfisvæn listaverk úr óskapnaðinum?
VERÐUGT VERKEFNI Má bjóða þér 273 kr. á tímann fyrir að tína rusl í sumar? Unglingum
sem eru fæddir 1991 eða síðar standa þau laun til boða í Vinnuskólanum.