Fréttablaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 24
1. maí 2006 MÁNUDAGUR4
Frábært
verð á
girðingaefni:
200cm og
120cm hæð.
Pappi.is
Þakpappi, gúmmídúkar,
PVC og sundlaugadúkar
Nýlagnir og viðgerðir. Gerum verðtilboð
Pappi.is
Flugumýri 14 270 Mosfellsbær
Sími 557 8030 og 892 8131
www.pappi.is pappi@pappi.is
Annar hfRekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is
a Eignaskiptay rlýsingar
atvinnu- og íbúðahúsnæði
fyrir
Hvernig bera menn sig að við
að búa til garða frá grunni?
Pétur Reynisson og Bragi Ár-
dal í fyrirtækinu Skrúðgörðum
ehf. kunna lagið á því.
„Það er gefandi að hanna lóð frá
grunni, framkvæma svo verkið og
fylgja hugmyndunum eftir. Við ein-
beitum okkur að hellulögn og gróðri
en fáum oft smiði í tréverk ef mikið
er af því,“ segir Pétur, sem er
menntaður skrúðgarðyrkjufræð-
ingur. Hann segir algengast að þeir
félagar geri einfaldar teikningar af
lóðunum í samvinnu við garðeig-
endur en sumir séu búnir að láta
hanna lóðina þegar þeir komi að.
„Stundum höfum við alveg frjálsar
hendur og njótum þess, gerum til-
boð í verkið og vinnum það og fólk
biður okkur oft að koma árlega og
snyrta runna og tré.“
Þótt fyrirtæki þeirra félaga sé
ungt hafa þeir báðir langa reynslu
af öllu sem lýtur að garðyrkju og
lóðafrágangi. Mikið er byggt og
það hlýtur að kalla á stöðugan frá-
gang lóða. Er ekki brjálað að
gera?
„Yfir veturinn er eins og allt
sofni í þessum geira og þá sofum
við líka en um leið og fer að vora
verður allt vitlaust. Þá á allt að ger-
ast í gær. Við reynum líka að nýta
birtuna þannig að hvíldartíminn er
oft stuttur,“ segir Bragi. En hverjar
eru áherslurnar hjá garðeigendum
árið 2006?
„Það er misjafnt en flestir vilja
hafa garðana einfalda. Trépallarnir
eru aðeins að minnka því það er
vinna að bera viðarvörn á þá árlega.
Margir eru allt of hræddir við gróð-
ur og halda að hann þurfi svo mikið
viðhald. Vilja helst grasið burt og
hafa bara möl en það er misskiln-
ingur því það þarf að hirða möl vel
ef hún á að haldast hrein. Það fer að
gróa upp úr henni eftir nokkur ár.
Grasið þarf bara að slá og þá er allt
fínt,“ segir Pétur og kveðst mæla
með blöndu af grasi, öðrum gróðri,
hellum og timbri í einhverjum hlut-
föllum sem henta. „Það þarf að
hugsa langt fram í tímann í þessu
fagi. Við þurfum til dæmis að finna
út hvar skuggi muni falla eftir tíu
ár af tré sem er gróðursett nú.
Garðurinn er hugsaður sem fram-
lenging á heimilinu og hann er til að
njóta hans.“ gun@frettabladid.is
Blanda af hellum, timbri,
grasi og öðrum gróðri
Blanda af mörgum tegundum er falleg allt árið.
Hellurnar eru vinsælar og Pétur og Bragi segja suma aðhyllast það að láta mosann vaxa á
milli þeirra. Það gefi þeim gamaldags blæ.
Nýfrágengin lóð eftir þá félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Bragi og Pétur sofa á veturna og vaka á
sumrin.
Hreinsun steinteppa
Síðustu ár hefur steinteppum fjölgað
verulega hér á
landi. Steinteppi
hafa marga góða
kosti sem
sameina kosti
hefðbundina
teppa og harðra
gólfefni s.s. flísa.
Þau eru í senn
bæði mjúk að ganga á en hafa
styrkinn frá flísunum.
Skúfur hefur yfir 20 ára reynslu í að
hreinsa hefðbundin teppi sem kemur
sér vel í steinteppum
SKÚFUR TEPPAHREINSUN
Kleppsvegi 150. • 104 Rvk
Sími 568-8813 • GSM 663-0553
www.teppahreinsun.com
Evíta
Hárgreiðsla og gjafavörur
Starmýri 2, 108 Rvík, s. 553-1900 www.evita.is
Stærri búð, full af
fallegum vörum
á betra verði
Hárþjónusta á frábæru verði,
gerið svo vel að panta tíma.