Fréttablaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 78
1. maí 2006 MÁNUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu á föstudaginn skrifuðu
Örn Elías Guðmundsson, betur
þekktur sem Mugison, og bæjar-
yfirvöld á Ísafirði undir viljayfir-
lýsingu þess efnis að tónlistar-
manninum yrði úthlutuð lóð á
Suðurtanga undir einbýlishús og
hljóðver.
Sjálfur hefur Mugison margoft
lýst því yfir í heyranda hljóði að
hann langi að flytjast vestur og
búa þar og ætti þessi viljayfirlýs-
ing að hvetja hann enn frekar til
dáða. Hann var reyndar á leiðinni
út úr bænum þegar Fréttablaðið
náði í skottið á honum. Ætlaði í
Borgarfjörðinn með tveimur
félögum til að taka upp fyrir
næstu plötu. Hann vildi engu lofa
hvenær hún kæmi út, sagði að
hann einn vissi hvenær platan
yrði tilbúin en vonaðist til að það
yrði á þessu ári.
Aðspurður um lóðina fyrir
vestan sagði Mugison að þetta
væri á svæðinu þar sem gamla
safnasvæðið og slippurinn hefðu
verið. „Í fyrsta skipulaginu var
gert ráð fyrir að þarna yrði iðnað-
arhúsnæði en nú vilja bæjaryfir-
völd hafa íbúðarbyggð þarna,“
útskýrir Mugison. „Mig langaði í
hús þarna enda eru margir vinir
mínir og ættingjar fyrir vestan og
ég skrifaði því bæjaryfirvöldum
bréf,“ heldur hann áfram. „Ég
fékk mjög jákvæð viðbrögð og
þegar tónlistarhátíðin Aldrei fór
ég suður stóð sem hæst hitti ég
Halldór Halldórsson bæjarstjóra,
við fengum okkur ís og ræddum
málin,“ bætir hann við. „Við skrif-
uðum síðan undir yfirlýsingu sem
gefur mér móralskan rétt á að
bjóða í lóð þarna,“ segir Mugison,
sem hefur tröllatrú á Ísafirði.
„Þarna er mikið að gerast og fullt
af góðum hugmyndum í farvatn-
inu. Ég vona að þarna verði blóm-
legt háskólasamfélag og næsti
Einstein komi frá Ísafirði.“ - fgg
Byggir Mugison á eyrinni?
MUGISON Hefur fengið vilyrði fyrir lóð á Ísafirði undir einbýlishús og hljóðver.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í dag hefst leitin að sextán einstakl-
ingum til að taka þátt í nýjustu
raunveruleikaseríunni í íslensku
sjónvarpi en það er íþróttastöðin
Sýn sem hefur veg og vanda af
henni. Hér eru þó hvorki verið að
leita að lauslátum partídýrum,
ástsjúkum piparsveinum eða söng-
fuglum með poppstjörnudrauma
heldur viðvaningum í knattspyrnu
til að skipa liðið FC Nörd. „Við vilj-
um fá stráka á aldrinum 18-29 ára
sem hafa litla sem enga reynslu af
íþróttaiðkun heldur eru vel gefnir
einstaklingar,“ útskýrir Hilmar
Björnsson, sjónvarpsstjóri Sýnar,
en áhugasamir geta farið inn á
heimasíðu sjónvarpsstöðvarinnar
og skráð sig. „Þessir dreng-
ir þurfa að vera tilbúnir til
að sjá sig sem nörda og
hafa húmor fyrir sjálfum
sér,“ bætir Hilmar við og
áréttar að æskilegt sé að
þátttakendur búi á höfuð-
borgarsvæðinu og hafi tök
á því að geta æft og mætt í
sjónvarpsupptökur. „Á
Norðurlöndunum hefur það
verið þannig að einstakl-
ingarnir hafa haft mikla
þekkingu á einu sérstöku
sviði, til dæmis frímerkj-
um, sjávardýrum eða húð-
flúrum, ” segir Hilmar.
Hinir fræknu sextán verða
sendir í klösun og látnir
þjálfa undir stjórn reynds
knattspyrnuþjálfara.
Hápunkturinn verður síðan
í haust þegar FC Nörd
keppir við besta knatt-
spyrnulið landsins á Laug-
ardalsvelli. Í millitíðinni fá
sjónvarpsáhorfendur að
fylgjast með þeim takast á
við þessa vinsælustu íþrótt
heims. Hinir sænsku nörd-
ar, sem sýndir eru á Sýn,
hafa hafa slegið í gegn hjá
áskrifendum stöðvarinnar
enda er oft grátbroslegt að
fylgjast með þeim hlaupa á
eftir leðurtuðrunni. „Menn
eru að ræða um þáttinn á kaffistof-
um enda eru þeir drepfyndnir,“
segir Hilmar og tekur fram að
þættirnir hafi jákvæð formerki,
enginn sé sendur heim og fólk hlæi
ekki að nördunum heldur með
þeim. „Þátttakendurnir eru líka að
slá tvær flugur í einu höggi; kom-
ast í betra form og verða að sjón-
varpsstjörnum,“ segir Hilmar.
Þættirnir um nördaliðin hafa átt
góðu gengi að fagna á hinum Norð-
urlöndunum. „Þessir einstaklingar
eru frægir í sínu heimalandi og
áhorfendur eiga sinn eftirlætis
leikmann,“ segir Hilmar en FC
Nörd hefur göngu sína fimmtudag-
inn 31. ágúst.
HILMAR BJÖRNSSON: VIÐVANINGAR HERTAKA KNATTSPYRNUNA
Sýn leitar að vel gefnum strákum
fyrir raunveruleikaþátt
SÆNSKU NÖRDARNIR Hafa slegið í gegn hjá áskrifendum Sýnar enda þykja þeir bráðfyndnir og verður spennandi að fylgjast með hinni íslensku útgáfu.
HILMAR BJÖRNS-
SON Sýn leitar nú
að sextán strákum
á aldrinum 18-29
ára til að taka þátt
í nýjum raunveru-
leikaþætti um FC
Nörd.
Frídagur verkamanna, 1. maí, er í dag og
er mikil hefð fyrir hátíðarhöldum um allt
land. Verkalýðsfélög hafa yfirleitt haft
mikið fyrir því að skipuleggja kröfugöng-
ur þar sem málefnum verkafólks eru
gerð góð skil.
Eftirminnilegasti verkalýðsdagurinn að
mati Sigurðar Bessasonar, formanns
Eflingar, var haldinn á Hólmavík fyrir um
það bil tíu árum.
„Ég var ræðumaður á 1. maí á
Hólmavík og renndi alveg blint í sjóinn
hvernig aðstæður yrðu og fyrirkomu-
lag varðandi ræðuhöld og húsakynni.
Þegar ég kom kom í ljós að það átti að
halda daginn hátíðlegan í bragga sem
er á staðnum,“ segir Sigurður. „Kröfu-
gangan lagði af stað frá kaupfélaginu
og þar var Lapplander fremstur og
spilaði Internationalinn. Nokkrar konur
voru þarna með barnavagna en það
sást lítið til karla. Síðan nálguðumst
við staðinn og þá bættust karlarnir við
gönguna og þetta var orðin þokkaleg
ganga. Þegar við vorum mætt í salinn
til að halda skemmtunina röðuðu sér
börn á fyrstu þremur bekkjunum með
kók og popp. Fyrir þeim var þetta eins
og stór skemmtun að fá einhvern í
plássið. Húsið troðfylltist og þetta var
eftirminnilegur og góður 1. maí dagur,“
segir hann.
„Umhverfið var með töluvert ólíkum
hætti en þegar menn ganga niður
Laugaveginn. Þarna sýndi sig að það
skiptir ekki alltaf máli á hvaða stað 1.
maí er haldinn heldur verður baráttu-
andinn að vera til staðar á þessum
degi þegar við metum bæði nútíð og
framtíð.“
Hvað varðar mikilvægustu kjara-
samningana sem Sigurður hefur tekið
þátt í nefnir hann þjóðarsáttarsamning-
ana árið 1990 þar sem takmarkið var að
berja verðbólguna niður og kjarasamn-
ingana árið 2000 þegar fræðslusjóður
fyrir verkalýðshreyfinguna var festur í
sessi.
SÉRFRÆÐINGURINN SIGURÐUR BESSASON OG EFTIRMINNILEGASTI VERKALÝÐSDAGURINN
SIGURÐUR BESSASON
Formaður Eflingar man
vel eftir verkalýðsdegin-
um á Hólmavík fyrir um
það bil áratug.
HRÓSIÐ
...fær Auðunn Blöndal fyrir að
færa Íslendingum viðtöl við
frægar stjörnur á Cannes-
hátíðinni.
��������
�� �� ��� ��� ���
��� ��� ��� ��� ������
�� ��� ��
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
���������
�����������������������
�������������
������������������������������
��
���������
�����������
��������������
���� ���������
�������������������������
LÁRÉTT
2 höfuð 6 skammstöfun 8 herma 9
hrós 11 fyrir hönd 12 rusl 14 viðburð-
ur 16 smáorð 17 skammstöfun 18
æðri vera 20 skyldir 21 ögn.
LÓÐRÉTT
1 tel 3 samtök 4 reyna 5 planta 7
mjög magur 10 flík 13 því næst 15
gróft orð 16 siða 19 tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 haus, 6 eh, 8 apa, 9 lof, 11
pr, 12 drasl, 14 atvik, 16 að, 17 ofl, 18
guð, 20 aá, 21 arða.
LÓÐRÉTT: 1 held, 3 aa, 4 upplifa, 5 sar,
7 horaður, 10 fat, 13 svo, 15 klám, 16
aga, 19 ðð.
1 Darfur.
2 Fram.
3 541 metri.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 6